Alþýðublaðið - 02.07.1986, Page 16
alþýðu-
blaöió
Miövikudagur 2. júlí 1986
Rannsóknir benta til að:
Alþýðublaðið, Ármúla 38, 108 Reykjavik
Sími: (91) 681866, 81976
Útgefandi: Blað hf.
Ritstjóri: Árni Gunnarsson (ábm.)
Blaðamenn: Jón Daníelsson og Ása Björnsdóttir
Framkvaemdastjóri: Valdimar Jóhannesson
Skrifstofa: Halldóra Jónsdóttir og Eva Guðmundsdóttir
Setning og umbrot: Alprent hf., Armúla 38
Prentun: Blaðaprent hf., Síðumúla 12
Askriftarsíminn
er 681866
Bændur fái lungnaþembu
án þess að hafa reykt
I hópi bænda sem
lagöir voru inn á
Vífilstöðum á árun-
um 1975—1984
meö lungnaþembu
á háu stigi haföi
aðeins helmingur
þeirra reykt.
Lungnaþemba er flokkur sjúk-
dóma þar sem útvíkkun verður á
loftveginum í lungunum, þannig
stækkar loftvegurinn og veggir í
honum eyðileggjast. Eftir meina-
fræði sjúkdómsins eru til að
minnsta kosti fjórir flokkar, en þeir
eru allir jafn slæmir. Flokkunin
byggir á af hvaða tilefni útvíkkun
verður. Orsakir hafa um tima verið
taldar reykingar og er það rækilega
sannað í marg endurteknum rann-
sóknum. Nýleg kenning, sem ekki
er fullsönnuð, byggir á að lungun
séu stöðugt útsett fyrir árásarþætti,
sem heilbrigðir verjast auðveldlega
með varnarþætti. Reykingar skerða
hins vegar talsvert áhrif varnarþátt-
anna þannig að árásarþátturinn
vegur meira á vogaskálinni. Ein-
kenni sjúkdómsins er fyrst og
fremst mæði og á lokastigi sjúk-
dómsins verða sjúklingar móðir í
hvíld. Sjúkdómurinn greinist oftast
um sextíu ára aldur og 3—5 sinnum
algengari hjá körlum heldur en
konum. Nánast allir sjúklingar sem
hafa greinst með þennan sjúkdóm
hafa reykt einn pakka af sígarettum
á dag í 15—20 ár. Öndun verður erf-
ið og sjúklingur andar hraðar en
aðrir, oft um tuttugu sinnum á mín-
útu. Lungun þenjast smám saman
út og sjúklingurinn verður lystar-
laus, megrast og hefur því oft á
lokastigi sjúkdómsins lést um 10—
15 kg. Röntgenmynd er notuð til að
staðfesta sjúkdómsgreiningu og
sýnatöku eða aðrar rannsóknir
koma að takmörkuðu gagni við
mismunagreiningu. Meðferð við
sjúkdómnum er fyrst og fremst að
hætta að reykja og það dregur veru-
lega úr gangi sjúkdómsins og stopp-
ar þróunina hjá sumum. Talsvert er
gert að því að nota súrefni sem er
tengt við sjúklinginn í 16—20 klst.
á sólarhring og það virðist bæta
lífslíkur og líðan. Horfur á bata
með bestu mögulegri meðferð, ef
fólk hættir að reykja, er að annar
hver sjúklingur lifir í fimm ár, en
fjórði hver í tíu ár þá við sæmilega
líðan. Gangur sjúkdómsins er
venjulega tröppugangur þannig að
fólki fer stöðugt versnandi, en hef-
ur góð og slæm tímabil inn á milli.
Nýlega hafa komið í ljós tveir hópar
sem hafa aukna tíðni lungna-
þembu. Þar ber fyrst að nefna þann
hóp sem hefur meðfæddan skort á
varnarþætti og fær þannig sjúk-
dóminn án þess að hafa reykt. Þetta
hefur ekki enn fundist hér á landi.
Hinn hópurinn eru bændur. Lækn-
arnir Sigurður Heiðdal, Tryggvi Ás-
mundsson og Hrafnkell Helgason
hafa kannað þetta hér á landi á öll-
um sjúklingum sem lögðust inn á
Vífilsstaðaspítala á árunum 1975
—1984. Könnunin leiddi í ljós að af
þeim sem stunduðu búskap og
greindust með lungnaþembu, reykti
aðeins u. þ. b. helmingur. Hins veg-
ar reyktu nær allir eða u. þ. b. 95%
af þeim sem ekki stunda búskap en
höfðu lungnaþembu. Augljóst er
að einhver annar þáttur en reyking-
ar eru að gera bændum óleik og
þegar haft er í huga að 10% lands-
manna stunda búskap sést að full
ástæða er til að athuga þetta mál
nánar.
Ef viðskiptavinur greiðir fyrir vöru eða þjónustu með tékka
skal hann útfylla tékkann í þinni viðurvist
og framvísa bankakortinu ásamt tékkanum.
SPARIBANKINN
BEIKNINGS AO'l.Ar"
NÚMER ____
-ÆBFinin ílFriN
—C. -
SPARIBANKINN
k
KR
%/ö~OQ-
CrO
d&i~jfííÍrw/y$T^-
111b 0000 0034 1352
BANKI NAFNNÚMER FÆÐINP^HUMéR
1176 5155-5635 I50t(26
J0I J0RS30*
3^ 9-3S2_________________
)g áriðandl að hér fyrir neðan sjáist hvorki skrift né stimplun.
GILDIR ÚT 02/88
--------c
Banki-Hb
Roikn.nr.
Upphæð
■ ---------------—-f --
Þú athugar:
O hvort bankakortið sé frá sama banka og tékkinn
© að gildistími kortsins sé ekki útrunninn
© fæðingarár með tilliti til aldurs korthafa
o hvort undirskrift á tékka sé í samræmi við rithandarsýnishorn á bankakorti.
Séu ofangreind atriði í lagi
© skráir þú númer bankakortsins (6 síðustu tölurnar) neðan við undirskrift
útgefanda tékkans. Þetta gildir um alla tékka, óháð upphæðinni.
/ *
Bankakortið - tákn um traust tékkaviðskipti
Alþ
ýðubankinn - Búnaðarbankinn - Landsbankinn - Samvinnubankinn
Útvegsbankinn - Verzlunarbankinn - Sparisjóðirnir
AIIK hf X2.d/<;ÍA