Alþýðublaðið - 17.01.1987, Qupperneq 21
Laugardagur 17. janúar 1987
21
Ferðamiðstöðin hefur gefið út vöru-
sýningarskrá þar sem hægt er að
finna helstu vörusýningar og kaup-
stefnur í Evrópu og Ameríku á árinu
Undanfarin ár hefur Ferðamið-
stöðin lagt ríka áherslu á að kynna
helstu vörusýningar og kaupstefnur
í Evrópu og Ameríku. Nú hefur
Ferðamiðstöðin gefið út veglega
vörusýningaskrá fyrir árið 1987,
þar sem finna má það helsta sem á
döfinni er á árinu.
Vörusýningar hafa notið vaxandi
vinsælda og að sama skapi hefur
mikilvægi þeirra aukist. Þar eru
viðskiptasambönd mynduð, nýj-
ungar kynntar, tækniframfarir op-
inberaðar og framtíðarsýnin skoð-
uð. Viðfangsefnin eru margvísleg.
Þannig er hægt að fara á sýningar
sem fjalla um byggingariðnað, skó-
gerð, ilmvötn, loftræstingu, mat-
væli, tannlækningar, húsgögn,
skartgripi, vörubíla, vínföng, rekst-
ur hótela eða nánast aila hluti hugs-
anlega, milli himins og jarðar.
Ferðamiðstöðin býður upp á
hópferðir á nokkrar sýningar og eru
þær merktar sérstaklega í vörusýn-
ingarskránni. Eins eru skipulagðar
einstaklingsferðir. Þáttur ferða-
skrifstofu er mikilvægur þegar far-
ið er á slíkar sýningar. Það er síður
en svo auðvelt að tryggja öllum
hótelherbergi í þeim borgum sem
stærstu sýningar eru haldnar. Jafn-
vel flugfarmiða og bílaleigubíl þarf
að panta með löngum fyrirvara.
Þess vegna biður Ferðamiðstöðin
viðskiptavini sína að athuga tíman-
lega hvert skal halda og hvenær.
Kjörorðið er: Því fyrr, því betra.
Staða fræðslustjóra
Staða fræðslustjóra í Hafnarfirði er laus til um-
sóknar. Umsóknir er greini menntun og fyrri störf
svo og hvenær viðkomandi geti hafið störf skulu
berast bæjarskrifstofunni í Hafnarfirði eigi síðar
en 23. janúar n.k.
Bæjarstjórinn í Hafnarfirði.
Rúnar Bjarnason
slökkviliðsstjóri:
Færri útköll
1986 en 1985
Viö samanburð á útkallafjölda
áranna 1986 og 1985 kemur í Ijós að
það hefur orðið fækkun á útköllum
s.l. ár, 564 í stað 581 árið 1985.
Talin til útkalla er öll aðstoð
slökkviliðs þar sem ekki var um
eldsvoða að ræða, svo sem efnaleki,
vatnsleki, losun úr bílflökum
o.s.frv. Utköll þar sem slökkva
þurfti eld voru 330 árið 1986 en 377
árið 1985, þar af voru 86 sinueldar.
Sjúkraflutningar voru alls
10.187, voru 10.096 árið 1985. Hef-
ur fjöldi sjúkraflutninga haldist svo
til óbreyttur allt frá árinu 1973 eða
rúmlega 10.000 á ári, t.d. 10.400 ár-
ið 1983, 10.371 árið 1981 og 10.295
árið 1980.
Eitt meiriháttar brunatjón varð á
árinu 1986 að Lækjargötu 14. Tveir
fórust í eldsvoða árið 1986 á Kópa-
vogshæli.
KÁSTÁRAR
GoodÁ^
ólbaRÐAR
endinflv-
driflokur
Fvrir flesW 9fC
%iólodrifsöHa
DíSINOAR
L?ckimQ..
oftttm'tÆ
serr]
v,irburð óviðia'nd'
ijtakantaR
pegO<
inle9^P_
VVHITE SPC
’ ó flestar t@
í SLizuki
lCjcruiser o
laugardað
/VMRT
Aðeins 15% útborgun.
Eftirstöðvar á 4 — 6 mánuðum
Fyrsta afborgun í MARS.
Vatnagörðuml4
Sími 83188