Alþýðublaðið - 31.01.1987, Page 17
Laugardagur 31. janúar 1987
17
— en áföli hafa aldrei leitt til upp-
gjafar eða hiks. Tvennt nefni ég sem
ljósi varpar á eðli félagsins og eigin-
leika góða.
Á árinu 1943 kom út á vegum fé-
lagsins Iðnsaga íslands, — myndar-
legt rit í tveim bindum sem Guð-
mundur Finnbogason, landsbóka-
vörður, ritstýrði og samdi ásamt
öðrum mætum mönnum. Ritverk
þetta er reisnarlegt upphaf á miklu
menningarsögulegu verki á sviði at-
vinnusögu sem þá var vanrækt.
Verkið var fimm ár í smíðum og
kom út er meiri hætta steðjaði að ís-
lenskri þjóð en nokkru sinni áður.
Margar samvirkar ástæður ollu að
ekki tókst að ljúka nema hluta þess
sem að var stefnt. En það sem gert
var er glæsilegur vitnisburður um
framsýni og stórhug sem ekki gætti
þá annars staðar. Iðnaðarmannafé-
lagið í Reykjavík bar eitt allan kostn-
að af útgáfu iðnsögunnar og enginn
lyfti merkinu þegar félagið varð að
láta það síga. Upplag bókarinnar
brann ásamt mörgum öðrum eign-
um félagsins í Iðnaðarbankabrun-
anum. Þau eintök sem enn eru til af
ritverki þessu teljast kjörgripir.
Frumkvæði félagsins á þessum vett-
vangi er því til stórsóma.
Iðnsaga iðnaðarmannafélagsins í
Reykjavík varð bæði leiðbeining og
hvatning þegar þráðurinn var aftur
upp tekinn röskum fjörutíu árum
síðar fyrir atbeina Sverris Her-
mannssonar, þáverandi iðnaðarráð-
herra. — Ljúft og skylt er mér að
staðfesta að fáir hafa meiri áhuga
sýnt á þeirri iðnsöguritun sem nú
fer fram en einmitt stjórn og félags-
menn í Iðnaðarmannafélaginu í
Reykjavík.
Eldur og endurreisn
Eldur lék félagið grátt í annað sinn
á síðastliðnu sumri. Iðnskólabrun-
inn er ekki bættur þótt Borgarstjórn
Reykjavíkur hafi brugðist skjótt og
vel við og endurreist útveggi, þak
og turn í upprunamynd svo halda
mætti 200 ára afmælishátíð með
fullri reisn. Geta ber þess sem gert
er en ekki má gleyma óbættum
skaða. — Baðstofa iðnaðarmanna,
tréskurðarlistaverk Ríkharðs Jóns-
sonar, eyðilagðist í eldinum. Fiestir
hefðu harmað tjón en lagt síðan ár-
ar í bát. Ekki brást Iðnaðarmannafé-
lagið við á þann máta.
Til eru nákvæmar lýsingar og
teikningar af baðstofunni og út-
skurði öllum. Því mun unnt að end-
urgera Baðstofu iðnaðarmanna og
að því stefnir félagið nú — fámennt
og fjárvana en félagsmenn eru
gæddir þeim baráttuanda og bjart-
sýni sem dugað hefur í 120 ára sögu.
Þeir eru nú flestir í eldri aldurs-
flokkum en að undanförnu hafa í
hópinn bæst ungir menn og röskir.
Enn er þó rými nokkurt fyrir vaska
menn sem vilja standa að næstu af-
reksverkum elsta og merkasta iðn-
aðarmannafélags í landinu.
Hér hefur verið á stóru stiklað og
framhjá mörgu gengið sem verð-
skuldar vandlega umfjöllun. Stór-
brotnu og fjölþættu starfi Iðnaðar-
mannafélagsins í Reykjavík verður
ekki gerð verðug skii í biaðagrein.
En vilji menn fræðast um félagið
vek ég athygli á myndarlegri sögu
þess sem Gísli Jónsson, mennta-
skólakennari á Akureyri, samdi og
félagið gaf út á aldarafmæli sínu
1967.
Bókin er prýðilega úr garði gerð og
samboðin félagi sem verið hefur
menningarlegt forystuafl iðnaðar-
manna stórt hundrað ára.
Jón Böðvarsson
ritstjóri Iðnsögu Islendinga
Skattlausa
Framh. af bls. 5
þess vegna ósköp einfaldlega sú að
fjármálaráðherra taki af öll tvímæli
í þessu efni og eyði öllum efasemd-
um með því að leggja á borð þing-
manna þegar í stað það frumvarp
sem hann hefur lofað. Það er hætt
við því að hinn aldni og djúpvitri
hagfræðingur Benjamín Eiríksson
hafi raunsærra mat á þessu máli en
hinn aðþrengdi stjórnmálamaður
Þorsteinn Pálsson fyrir kosningar.
Benjamín segir réttilega að eina lífs-
von „skattlausa ársins" sé á landi
kosningaloforða en eftir standi að
ekkert sé visst í lífi mannsins annað
en dauðinn og skattarnir.
Breytingar
Framh. af bls. 19
kynja — hvatning til kvenna að
brjóta sér leið á nýjum vettvangi.
Samskonar verkefni eru í gangi í
hverju hinna Norðurlandanna.
Segja má að nú sé verið að hrinda í
framkvæmd þeim hugmyndum sem
varpað hefur verið fram á undan-
förnum árum í jafnréttismálum. Við
munum fylgjast spennt með hvern-
ig gengur, og ef vel tekst til má
hugsa sér að hrinda í framkvæmd
svipuðu verkefni víðar um land.
Ágætu gestir.
Eg vildi koma með þessa punkta
hér því um þetta hlýtur jafnréttis-
umræða komandi ára að fjalla. Við
höfum öðlast öll formleg réttindi
fyrir löngu. En samt hefur hægt
miðað í átt til raunverulegs jafnrétt-
is. Þess þjóðfélags þar sem fólki er
ekki mismunað eftir kynferði. Þar
sem foreldrar hafa jafna foreldra-
ábyrgð og sömu tækifæri að vera
samvistum við börn sín. Þar sem
laun karla og kvenna eru þau sömu.
Þar sem stúlkur og drengir öðlast
sömu menntun. Þar sem einstakl-
ingurinn er metinn að verðleikum
en ekki kynferði. Nú gæti verið lag,
ef rétt er á málum haldið. Öllum
réttindum fylgir ábyrgð. Ábyrgð
sem konur verða að axla jafnt og
karlar.
Á meðan jafnrétti hefur ekki
náðst mun vera full þörf fyrir Kven-
réttindafélag íslands.
Ég vil svo að lokum þakka þeim
sem lögðu hönd á plóginn til að gera
þessa afmælisveislu að veruleika,
konunum í stjórn KRFÍ, afmælis-
nefnd og framkvæmdastjóra og bið
fólk að njóta veitinga.
Bankamál
Framh. af bls. 7
að vera að ná öruggari dreifingu út-
lána og viðskipta yfirieitt. Ástæða
virðist til að ætla, að fjármagnseig-
endur, innlendir sem erlendir, hefðu
síst minni áhuga á að leggja fé í nýtt
félag um bankarekstur, sem stofnað
væri á þennan hátt, en með sam-
runa einkabanka við Útvegsbank-
ann. Viðskiptasambönd og við-
skiptaþekking, sem fólgin eru í
starfsemi ríkisbankanna, mundu án
efa geta nýst á ákjósanlegan hátt í
hlutafélagsbanka, sem stofnaður
yrði með hér um bil helming núver-
andi ríkisbankakerfis. Jafnframt
væri með þessu móti stuðiað að efl-
ingu bankakerfis, þar sem nokkurt
jafnræði væri með ríkisbönkum og
hlutafélagsbönkum, sem án efa
gæti átt drjúgan þátt í að efla efna-
hagslegar framfarir hér á landi í
framtíðinni.
Það er mikilvægt að, sem víðtæk-
ust pólitísk samstaða geti náðst um
lausn þessa máls, því bankaskipu-
lagið þarf að vera nokkuð varan-
legt, og ekki um of háð flokkapóli-
tík. Tillögur Alþýðuflokksins eru
meðal annars samdar í þeim anda.
Það er búið að segja það nokkuð
oft um Útvegsbankamálið, að lausn
BÖRN í BÍLUM
ÞURFA VÖRN
- sama
hve gömul eru.
UMFERÐAR
RÁÐ
þess þoli enga bið. Biðin er nú orðin
heilt ár, og á eftir að lengjast enn.
Þetta er til vandræða. Nú verður
málinu að ljúka. En þótt lausn á fjár-
hagskreppu Útvegsbankans sé ákaf-
lega aðkallandi viðfangsefni, er
ekki síður brýnt að taka almennt á
stjórnkerfi og skipulagi bankanna,
því vandi Útvegsbankans á sér djúp-
ar rætur í úreltu bankaskipulagi.
Bankamálið er í reynd próf-
steinn á vilja manna og flokka til
að gera raunhæfar breytingar í
átt til heilbrigðari og ábyrgari
starfshátta í íslensku viðskipta-
og atvinnulífi.
Höfundur er hagfræðingur og
hefur verið valinn til að vera i
fyrsta sæti á framboðstista Al-
þýðuflokksins í Reykjavík í
næstu þingkosningum.
I LANDSBANKANUM
FÆRÐU DOLLARA, PUND, MÖRK, FRANKA, PESETA,
FLÓRINUR, ESCUDOS OG LIRUR
HVORT SEM ÞÚ VILT í SEÐLUM EÐA FERÐATÉKKUM
m.
g þá er ekki allt upp talið.
í öllum afgreiðslum Landsbankans
geta ferðalangar nánast fyrirvaralaust
gengið að gjaldmiðlum allra helstu
viðskiptalanda okkar vísum.
Ferðatékkar, bankaávísanir og seðlar
eru ávallt fyrirliggjandi, í öllum
helstu gjaldmiðlum.
Við minnum líka á Visakortið,
- athugaðu gildistímann áður
en þú leggur af stað.
Góða ferð.
L
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
Aðalumboðid hf.
V,r F'lf- A*1 ? ' '
4hrr; f ‘> ■
Eigum til fyrirliggjandi:
Wagoneer LTD 1986 m/öllu:
ss. 6 cyl., vökvastýri, litað gler, álfelgur, rafdrifnar rúður, rafdrifin sæti, 5 dyra,
6 Jensen-hátalarar, útvarp og segulband, fjarstýrður hurðaopnari, veltistýri,
sjálfvirkur hraðastillir, sentrallæsingar, leðurklædd sæti, loftkæling, topp-
grind. Selec Trac þróaðasta fjórhjóladrifið. Verð 1280 þús.
Sýningarbíll á staðnum.
Jafnframt fyrirliggjandi m/lntercooler Turbo diesel vél með sama útbúnaði.
Verð 1320 þús.
Getum útvegað allar gerðir bíla eftir óskum hvers og eins.
Cherokee Chif med sama
búnaði + sóllúgu.
Verð 1180 þús.
Upplýsingar gefur
v/Miklubraut
sími 621055.