Tíminn - 16.07.1967, Side 14
i
14
TIMINN
SUNNUDAGTTR 1«. Jfflí ÍWU
HAPPDRÆTTI
BLINDRA-
FÉLAGSINS
Þessi númer hlutu vinning:
24049 Fíat fólksbiíreiS.
19329 Ferð fyrir tvo á heimssýn
inguna í Kanada, ásamt
vikudvöl í Bandaríkjun-
um.
Vinninga má vitja í skrifstofu fé-
lagsins að Hamrahlíð 17 n.k. mánu
dag kl. 3—5. Eftir þann tíma verða
upplýsingar veittar í síma 51763
næstu kvöld, þar sem skrifstofan
verður lokuð vegna sumarleyfa.
Blindrafélagið flytur öllum
þeim, sem unnu að happdrættinu
eða styrktu það á annan hátt, beztu
Iþaikkir. (Birt án ábyrgðar).
TRULOFUNARHRINGAR
afgreiddir
samdægurs.
Sendum um allt land. —
H A L L D Ó R
Skólavörðustíg 2.
FYRIRSPURN
Blaðið hefur verið beðið fyrir-
spurn til stjórnar Læknafélags
Reykjavíkur, og byggist hún á
eftirfarandi málavöxtum:
Heimilislæknir konu einnar í
borginni er nýfarinn í sumarfrí,
eins og lög gera ráð fyrir, og
hefur annar læknir, Björn Önund
arson, tekið að sér að. gegna heim
ilislæknisstörfum fyrir hann á
meðan.
■ Kona þessi kemur síðan á aug-
lýstum viðtalstíma í Domus Med-
ica s.I. föstudag, þar sem Björn
hefur stofu sína, í þeim tilgangi
að fá sprautu, sem hún á að fá
með venjulegu millibili. Aðstoð-
arstúlkán spyr hana fyrst, hvort
hún hafi pantað tíma, en konan
kveður svo ekki vera. Er henni
þá sagt, að hún verði að gera það,
og geti í fyrsta lagi komizt að á
mánudaginn.
Fyrirspurnin er: Telst það for-
svaranlegt, að sv.ona erfitt sé fyrir
sjúklinga að fá afgreiðslu hjá þcim
lækni, sem tekur við heimilisstörf
um annars læknis?
FRIÐRIK
Frambalda af bls. 1.
stundum á skemmtilegum flétt-
um. Gligoric hefur sdgrað báða
skozku ksákmennina heldur auð
veldlega — og Larsen vann Davie
létt í annarri umferð.“
Gerið
góðan liiat
betri
með
BÍLDUDALS
nidursodnu. íjraenmeti
Hjartaniega þökkum viö auðsýnda vináttu og samúð við andlát og
jarðarför föður míns og afa.
Ásgeírs Halldórssonar
frá Fossi.
Sigríður Ásgeirsdóttir og dætur.
Við þökkum af alhug alla þá hluttekningu, sem okkur var auðsýnd
af öllum, bæði nær og fjær, við andlát og jarðarför
Alberfs Guðmunassonar, 'i
kaupfélagsstjóra, Sveinseyri.
Guð blessi ykkur öll.
Steinunn Finnbogadóttir
Vilhjálmur Albertsson
Ester Celín
Bragi Friðfinnsson
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við fráfall
móður okkar og bróður,
Guðríðar Guðmundsdóttur og
Alberts Guðmundssonar
frá Sveinseyri
Aðstandendur.
Hvernig urðu önnur úrslit í
þeirri umferð?
„Penrose sigraði þá Wade, Gli
goris vann Pritohert, en þedr
Kottnauer og Pomar gerðu jafn
tefli. Umferðin var tefld á
fimmtudagskvöld og lauk öll-
um skákunum nema milli okkiar
0‘Kelly, en biðskákirnar voru
tefldar í gær. Þriðja umferðin
hefst í dag kl. þrjú, það er frí
á sunnudag og fjórða uimferð
verður tefld á mánudag og
fimmta umferð á þriðjudag.
Staðan eftir þessar tvær umferð
ir er þannig: Gligoric hefur 2
vinninga, Friðrik, Larsen og
Penrose V/2 vinning. Wade og
Kottnauer einn vinning hvor.
0‘Kelly, PritOhert og Pomar
% vinning hiver og Davie engan
vinning."
Ég sé, að mótið hefur ekki
byrjað á fyrstu umferðinni eins
og hún £f ti að vena samkvæmt
töfluröð, heldur annarri umferð
inni. Hvað veldur?
„Já, það er rétt. Við dróg-
um um núrner — en ég held, að
það hafi verið búið að ákveða
fyrirfram að hafia þennan hátt
á — en ástæðan fyrir breyting-
unni ekki sú, að samkvæmt töflu
röð hittist svo einkennilega á,
að við Larsen áttum þá að tefia
saman, og Gligorie og 0‘Kelly.
Það má kannski segja, að viss
spenna hafi borfið, ef þessar,
skákir hefðu verið tefldar í
fyrstu umferð, en það er þó
sem sagt ekki ástæðan fyrir
breyting.unni."
Þú teflir þá við Larsen í síð-
ustu umferð og hefur svart?
„Já, það verður víst þannig —
ég held það sé öruggt, að það
sé síðasta umferðin."
Og hvað er langt síðan sá,
sem hefur haft hvítt hefur unn
ið í innbyrðis skákum ykkar?
„Það er nú orðið anzi langt
siðan, — sá, sem hefur haft
hvítt hefur ekki unnið síðan
við tefldum einvígið fræga u-m
Norðurlandameistaratitilinn í
Reykjavík. Og þegar vdð Larsen
höfum teflt saman hefur sá
unnið nœr undantekningarlaust
sem teflir á svart. Örfáum skék
um hefur lokið með jafntefli en
það er eins og rauður þráður í
skákum okkar, að sá sem teflir
á hvítt — sóknina — „sprenglr
sig“ hver svo sem niðurstað-
an verður nú.
HÁLOFTIN
Framihalda aí bls. 1.
einkar hagstæð hér, þar sem
við erum í norðurljósabeltinu,
en van Allen geislabeltin koma
næst jörðu yfir íslandi, og því
kemur mikil geislmn inn í háloft
in hér. Hafa hliðstæðar rannsókn
ir verið framkvæmdar af sömu
stofnun bæði í Alaska og Finn-
landd, en fyrri rannsóknir hér á
landi hafa dregið fram í dagsljós-
ið ýmsar markverðar nýjungar
um þessi efni.
Túlkur Frakkanna og deið-
sögumaður hér á landi verður Ey-
borg Guðmundsdóttir listmálari.
FYRIRLESTUR
Framihald af bis. 16.
bil og er þetta árið formaður and
lega herráðsins í Dundar. Hún
hefur flutt fyrirlestra um Balh'á‘
itakenningarnar um gjörvallt
Kanada, í Bandaríkjunum og
Bvrópu.
Nanoy Campell hefur getið sér
mikinn orðlstír á sviði danslistar
bæði sem ballettdansari og ballett
semjiari. Hún er meðlimur Hamil
ton deildar Sameimuðu þjóðanna
og starfað að ýmsum félagsmálum.
Ferð hennar hingað er svo sem
fyrr segir á vegum Baihá‘ita í
Reykjavík. Hiún gefur kost á sér
sem fyrirlesara á fundum félags
samtaka, sem þess kynnu að óska.
Tekið er á móti beiðnum í síma
82323.
DA NANG
Frambalda af bls, 1,
ur, og í þedrri sprengingu jöfn-
uðust öll hús í nágrenninu við
jörðu.
Bara flugvélatapið er metið á
a.m.k. 23 milljóriir diollaira.
HEYSKAPUR
Frambald af bls. 16.
Austuriandi. En í heild held ég,
að kannski sé ekki hægt að segja,
að ástandið sé eins slæmt og þá.
En svo veit maður aldrei um það
svona á vorinu, hvað mikið af
kölunum er alger eyðilegging og
hvað kemur til með að gróa upp
af sjálfu nér. Það var a-llt afskap-
lega illa farið fyrir tveimur ár-
um fyrir austan, og segja má, að
eins sé það með jörð og jörð og
noikkrar jarðir samliggjandi á
sumum sfcöðum um Norður-
land, en aftur á móti eru nú
'heilar sveitir óskemmdar.
Dodge
D 400
Önnur sending af hinum margreyndu DODGE D400 v8ru-
bílum er komin til landsins. Nokkrir bílar til afgreiðslu strax.
DODGE D400 er tilvalinn bíll fyTir bændur, heildverzlanir, iðn-
fyrirtæki og aðra aðila, sem þurfa trausta en létta vörubíla.
DODGE D400 er 6 tonn og er með 140 ha. vél, fjórskiptan
synchro gírkassa, 11 kiplinga, og m. fl.
Hin margra ára reynsla á íslandi sannar gæði DODGE bifreiða.
Tryggið yður einn af hinum traustu og hagstæðu DODGE D400
vörubifreiðum.
Hafið samband við umboðið strax.
CHRYSLER-UMBOÐIÐ VÖKULL H.F.
Hringbraut 121. — Sími 10600.
Glerárgötu 26, Akureyri. — Sími 21344.