Alþýðublaðið - 30.05.1987, Qupperneq 5
Laugardagur 30. mal 1987
5
Neytendasamtökin með stríðsyfirlýsingu:
„VIRÐIÐ REGLURNAR AÐ VETTUGI"
Neytendasamtökin sendu í gær
frá sér yfirlýsingu, þar sem skorað
er á ríkisstjórnina að nema þegar úr
gildi reglur um innflutningsleyfi
fyrir blóm og ýmsar grænmetisteg-
undir. Jafnframt skoruðu samtökin
á framléiðendur þessara vara hér-
lendis að virða þessar reglur að vett-
ugi meðan unnið er að því að fá þær
numdar úr gildi.
Hér virðist vera um eins konar
stríðsyfirlýsingu að ræða af hálfu
Neytendasamtakanna. í greinar-
gerð með áskoruninni segir m.a. að
Neytendasamtökin hafi um árabil
barist fyrir endurbótum á framboði
og verslun með grænmeti og garðá-
vexti, en ástandið í þeim efnum hafi
verið óviðunandi lengst af.
Að áliti samtakanna er hin tak-
markaða neysla íslendinga á þess-
um tegundum, afleiðing af þessu
Útivistardagur
aldraðra
Sunnudaginn 31. maí kl. 13.30
efnir Félag áhugafólks um íþróttir
aldraðra til útivistar í trjágarðinum
í Laugardal. Farið verður í „rat-
leik“. Skemmtilegur leikur sem allir
geta tekið þátt í. Stjórnandi er
Anton Bjarnason, íþróttakennari.
Klæðist hlýjum fötum og verið í
þægilegum skóm. Takið lesgleraug-
un með.
Ath. Ekið frá Suðurlandsbraut
niður Holtaveg eða Múlaveg.
Allir velkomnir.
ástandi. Nú er neyslan hins vegar á
uppleið og Neytendasamtökin virð-
ast vilja fylgja þeirri þróun eftir
með því að auka enn á frjálsræði í
þessum efnum.
í lok greinargerðar samtakanna
kemur fram að áskoruninni er beint
til ríkisstjórnarinnar í heild, vegna
þess að samtökin telja með öllu tii-
gangslaust að leita hófanna við
landbúnaðarráðherra í ljósi feng-
innar reynslu.
Samvinnuskólinn á Bifröst
góð atvinnutækifæri
ágæt námsaðstaða og tölvubúnaður
kröftugt félagslíf
frekari menntunarleiðir
skólaheimili tvö námsár
undirbúningur undir störf og frama
þjálfun í félagsstörfum og framkomu
stúdentspróf
Inntökuskilyrði: Umsóknirsendist: Samvinnuskólinn
Tveggja ára framhaldsskólanámi lokið skólastjóri
— á viðskiptasviði eða með viðskiptagreinum Bifröst
— eða öðrum sambærilegum undirbúningi. 311 Borgarnesi
Umsóknarfrestur: ÍO. mars til ÍO. júní Upplýsingar í skólanum: Símar 93-5000/5001
W pjp ÍST ill SÍ0T \Mmif iitBÍ . p
i llí íHli. 111 n
BENIDORM
Beint flug í sólskinið
Góð gisting — íslenskir fararstjórar — Hagstætt verðlag — Veður-
blíðan á BENIDORM er á allra vitorði — Tívolí — Vatnaland —
Fjöldi diskóteka — Frábærir veitingastaðir — Næturklúbbar —
Úrval skoðunarferða.
Á BENIDORM hittist fólk á öllum aldri, þar er ekkert kynslóðabil.
KOMDU MEÐ TIL BENIDORM.
Næstu ferðir:
2. júní UPPSELT 4. ágúst UPPSELT
16. júní UPPSELT 18. ágúst UPPSELT
23. júní 10 sæti laus 25. ágúst 8 sæti laus
7. júl! laus sæti 8. sept. laus sæti
14. júli laus sæti 15. sept. laus sæti
28. júlí 6 sæti laus 29. sept. laus sæti
Verð: fyrir hjón m/2 börn 2ja—12 ára frá kr. 22.700,- — 3 vikur
Nú er hver að verða síðastur að komast með til BENI-
DORM.
PANTAÐUR STRAX! Því eins og þið sjáið hér að ofan,
fyllast nú ferðirnar óðfluga.
FERÐA
MIÐSTÖÐIN
C&hixat
lccwrt
AÐALSTRÆTI 9 - REYKJAVÍK - S. 2 8 1 3 3