Alþýðublaðið - 30.05.1987, Side 6
6
Laugardagur 30. maí 1987
„ÉG VÆRI ÁNÆGÐUR MEÐ
TVÖFAU FLEIRI STARFSMENN"
Byggingarfulltrúinn í
Reykjavík heitir Gunnar
Sigurðsson og það hafa
blásið um hann hvassir
og kaldir vindar síðustu
vikuna. Blaðamenn hafa
verið á höttunum eftir
honum þennan tíma, en
símastúlkan á skrifstofu
byggingarfulltrúa hefur
fœrt þeim þau skilaboð
að hann sé upptekinn.
Sem trúr embœttismaður
hafði hann ákveðið að
byrja á því að skýra mál
sitt fyrir yfirmönnum sín-
um í byggingarnefnd
borgarinnar, en að lokum
varð þrýstingurinn of
mikill og hann féllst á að
tala við fjölmiðla.
Gunnar dregur ekki úr
þeirri ábyrgð sem hann
telur sjálfan sig bera.
Hann er líka að nokkru
leyti beygður, vegna þess
að undirmenn hans hafa
farið á bak við hann. En
að hluta til snýr hann
vörn í sókn. Hann full-
yrðir til dœmis að til að
stofnun hans geti sinnt
verkefnum sínum sóma-
samlega þurfi að tvöfalda
starfsliðið. Og niður-
stöðum skýrslu höfunda
tekur hann, vœgt sagt,
með fyrirvara. Þar færir
hann fram gild rök.
Ég heimsótti Gunnar á
skrifstofu hans við
Borgartún undir kvöld á
fimmtudaginn. Það var
uppstigningardagur, sem
er almennur frídagur, en
Gunnar hafði verið í
vinnunni allan þann dag.
Ein af skrifstofustúlkum
hans sem líka var að
vinna, færði okkur kaffi
og ég spurði hann:
Hversu margir starfsmenn eru
hér?
Það má segja að þetta skiptist í
tvær deildir. Annars vegar eru bygg-
ingarnefndarteikningarnar og und-
irbúningur undir afgreiðslumál í
byggingarnefnd. Við erum tveir í
því, byggingarfulltrúinn og skrif-
stofustjórinn auk þess sem ég hef
hálfan arkitekt. í skrifstofustörf-
unum eru þrjár stúlkur auk síma-
stúlkunnar. Þær sjá um afgreiðslu
vélritun og annað sem til fellur. Síð-
an hafa verið tveir menn, verkfræð-
ingur og tæknifræðingur sem hafa
séð um eftirlit með sérteikningum,
þ.e. burðarþols- og lagnateikning-
um. Tveir til viðbótar eru svo í út-
tektum, verkfræðingur og bygg-
ingafræðingur. Svo var hér tækni-
fræðingur í steypueftirliti, en hann
er nýhættur.
í eftirlitsdeildinni eru sem sagt
fimm stöðugildi og auk þess er ég
búinn að fá leyfi fyrir einu til við-
bótar. Það má segja að eftirlits-
deildin hafi alltaf fengið þá fjölgun
starfsfólks sem orðið hefur við
þetta embætti. í öðrum störfum má
heita að hafi verið sami mannskap-
ur í 30 ár, fyrir utan þennan hálfa
arkitekt sem ég gat um áðan.
Hversu mörg stöðugildi þyrftu
að vera í eftirlitsdeildinni til að þú
gœtir verið nokkurn veginn viss um
að dcildin gœtisinnt öllu sem hún á
að sinna samkvœmt ítrustu kröf-
um.
Til að hægt sé að svara þessari
spurningu þarf náttúrlega að skil-
greina hverju hún á að sinna. Það
hefur aldrei verið litið þannig á að
það ætti að fara reikningslega yfir
allar teikningar. Kerfið hjá okkur er
þannig að það er krafist mjög mik-
ils af þeim sem eiga að standa fyrir
byggingum og líka gerðar miklar
kröfur til hönnuða.
Byggingarnefnd veitir bygginga-
meisturum, húsasmíðameisturum,
múrarameisturum og pípulagn-
ingameisturum réttindi til að
standa fyrir byggingu. Þarna þarf
sem sagt meistarapróf og meistara-
skóla. Frá því að nýju byggingalög-
in komu til 1979, er það ráðherra
sem veitir þessi réttindi.
Á þessu byggist allt kerfið. Við
gerum þessar miklu kröfur og ætl-
umst til að þessir menn standi fyrir
sínu og því sé hægt að minnka eftir-
litið. Miðað við að við ættum að
halda uppi reikningslegu eftirliti er
ógerningur fyrir mig að áætla
hversu margir starfsmennirnir
þyrftu að vera. En til samanburðar
má vísa til þess hvað þessir sex-
menningar voru lengi að fara yfir
þessi tíu hús.
Eitthvert reikningslegt eftirlit
hlýtur þó að þurfa. Mætti ekki t.d.
taka einhverjar stikkprufur?
Einhverjar stikkprufur mætti
taka og sæmilega glöggir menn geta
verið fljótir að átta sig á þessu.
Áður en ég varð byggingarfulltrúi,
var ég yfir þessari deild. Það eru nú
ein fimmtán ár síðan og það hefur
ákaflega mikið breyst á þeim tíma.
Það hefur fjölgað gríðarlega í þess-
um stéttum. Maður hafði betra
yfirlit þá og gat betur metið hverj-
um maður þyrfti sérstaklega að
vara sig á! Bæði verkfræðingum og
tæknifræðingum hefur fjölgað
gríðarlega og námið hefur orðið
meira skipt.
En þótt reikningslega eftirlitinu
sé sleppt, þá er ýmislegt fleira sem
kemur til. Þú ert t.d. sjálfur að
vinna hér á uppstigningardag og þú
sagðir, þegar ég kom að hér væri
verið að vinna flestar helgar. Þetta
og raunar margt fleira bendir mjög
ákveðið til að stofnunin sé verulega
undirmönnuð. Hversu marga
starfsmenn þyrftir þú að hafa til að
gera verið heima um hetgar og haft
hreina og góða samvisku gagnvart
því að stofnunin standi undir öllum
þeim kröfum sem hægt er að gera
með sanngjörnu móti?
Það er ógurlega erfitt að slá á ein-
hverja tölu í þessu sambandi.
Einn af þeim verkfræðingum
sem ég hef haft tal af að undan-
förnu í þessu sambandi, sagði að
það vœri svona 380 sinnum von-
laust að embættið stæði undir því
sem til væri œtlast. Ertu sammála
honum?
Nei, ég er ekki á því. Ég þættist
góður ef ég fengi tvöföldun á starfs-
liðinu á stofnuninni í heild. í þessu
sambandi verður þó að geta þess að
það er ekki sama hvaða fólk maður
fær. Ef við eigum að hafa eftirlit
með teikningum og öðru slíku, þá
þarf mjög hæfa og reynda verk-
fræðinga.
Og reynda menn er vonlaust að
fá til þessara starfa, eða hvað?
Á þessu kaupi, já. Það er alltaf
verið að tala um að allir þurfi að
vinna tvöfalda vinnu. Það má segja
að miðað við þessi launakjör sem
opinberir starfsmenn vinna við, þá
fáum við hingað nýgræðinga frá
prófborðinu, sérvitringa sem af ein-
hverjum ástæðum vilja ekki fara út
á einkamarkaðinn og svo gamla
karla eins og mig.
Við skulum líka athuga það að
menn þurfa að hafa bein í nefinu til
að fara yfir og setja út á teikningar
eftir reynda verkfræðinga úti í bæ.
Það er hæpið að menn treysti sér til
þess, sem eru nýskriðnir út úr skóla.
Hvað hafa verkfræðingar í kaup
hérna?
Ég býst við að það séu svona
50-60 þúsund. Ég skammast mín nú
fyrir að segja það en það er ekki
meira en svo að ég viti það. Það eru
nú nýkomnir nýir kjarasamningar.
Þetta eru væntanlega dagvinnu-
launin. Svo hafa menn trúlega ein-
hverja fasta yfirvinnu og bílastyrk
o.s.frv. er það ekki?
Jú, það er náttúrlega mikil
keyrsla í sambandi við þessar út-
tektir. Þetta var mælt á sínum tíma
og er áætlað og ég held að þeir sem
eru mest í úttektum verði ekki of-
saddir af því. Flestir verkfræðingar
hér hafa orðið að vinna eftirvinnu.
Það er algengt að yfirvinnan hér sé
svona 25-30 tímar á mánuði stund-
um meira. Ég er sjálfur með fasta
yfirvinnu og fæ sem sagt ekki
greidda yfirvinnu sem ég kann að
vinna umfram það.
Ef við förum úr yfirvinnunni í
aukavinnuna, þá hefur það tíðkast
íár og kannski áratugi að verkfræð-
ingar hér hafa fengið að taka sér
sjálfstœð hönnunarverkefni íauka-
vinnu. Eru einhver dæmi þess að
verkfræðingar hér hafi unnið þessi
aukaverk sín hér á vinnustað eða
kannski í vinnutímanum.
Nei, ég held ég geti fullyrt að svo
hefur ekki verið. Það er satt að
segja svo mikið að gera hér að ég
myndi strax verða var við ef eitt-
hvað slíkt kæmi fyrir.
En hafa mennirnir tíma til að
sinna þessum aukaverkefnum þeg-
ar tekið er tillit til að þeir þurfa að
vinna svo og svo mikla yfirvinnu
hér?
Hvort þeir hafa tíma. Það kann
að vera svo með þessa menn mína
sem ekki hafa skilað inn teikning-
um að þessum aukaverkefnum sín-
um, að það stafi að einhverju leyti
af Jjví.
Attu við að þeir hafi aldrei gert
teikningarnar?
Þeir hafa haft nauman tíma. Þeir
hafa gert teikningar, en ekki full-
lokið við þær og svo svikist um að
koma þeim í skjalasafnið.
Þeir hafa sem sagt ekki haft tíma
til að Ijúka nægilega vel við teikn-
ingarnar til að hœgt væri að sýna
þær hér?
Ég verð að meta það þannig í
þessu sambandi.
Gunnar Torfason, verkfrœðing-