Alþýðublaðið - 30.05.1987, Síða 10

Alþýðublaðið - 30.05.1987, Síða 10
10 Laugardagur 30. mal 1987 SKERPLU- HÁTÍfl MUSICA NOVA Súld: Szymon Kuran (fiðla), Steingrlmur Guðmundsson (trommur og tabla), Stefán Ingólfsson (bassi) og Þor- steinn Magnússon (gltar) sem vantar á myndina hér að ofan. Páll Eyjólfsson gítarleikari. Musica Nova heldur sérstaka Skerpluhátíð sem hófst fyrr í vikunni og stendur fram yfir helgi. S.l. miðvikudag var íslensk tónlist 1967-86 kynnt með verkum eftir Atla Ingólfsson, Karólínu Sveinsdóttur, Atla Heimi Sveinsson, Leif Þórarins- son, Hjálmar H. Ragn- arsson. Það var nýi mús- íkhópurinn sem flutti þau verk. Daginn eftir hélt ís- lensk tónlist áfram að hljóma og í þetta skipti í Norrœna húsinu en þá voru flutt verk eftir Karólínu Sveinsdóttur, Gunnar Reyni Sveinsson og Herbert H. Ágústs- son. Á morgun, sunnudag heldur Páll Eyjólfsson gítarleikari tónleika í Ás- kirkju og þriðjudaginn 2. júní leika píanóleikararn- ir Ástmar Ólafsson og Sveinbjörg Vilhjálmsdótt- ir lög eftir erlend tón- skáld. Skerplutónleikum Musica Nova lýkur á miðvikudag, 3. júní á Hótel Borg er tríóið Súld flytur rafmagnaða tónlist í djasstíl eftir innlenda og erlenda höfunda. Hér á eftir verður gerð grein fyrir tónleikunum á sunnudag, þriðjudag og miðvikudag. í inngangi Skerpluhátíðar Mus- ica Nova segir: „Tilgangur þessarar litlu hátíðar er að vekja athygli manna á dálitlu broti af þeirri tónlist sem er verið að semja í kringum okkur. Við vitum að tónlist er ekki sam- in til að liggja kjur í möppum. Að vísu hvílir mikill sægur tónsmíða frá öllum tímum í grafarþögn að verðleikum en við eigum líka bunka af sprelllifandi tónlist sem heyrist of sjaldan. Á íslandi vantar hvorki góð tónskáld né flytjendur. Þá skortir hins vegar næði til að vinna. Hér eru flestir listamenn á hlaup- um, vinna samt afrek en gætu af- rekað miklu meira við betri skilyrði. Listin getur aldrei blómstrað sem tómstundagaman eða -alvara fá- einna velviljaðra einstaklinga. Á þessum tíma árs er þó við hæfi að vera bjartsýnn. Án bjartsýni væru reyndar engir tónleikar haldn- ir í þessu Iandi“ Áskirkja, 31. maí: Gítartónlist Sunnudaginn 31. maí heldur Páll Eyjólfsson gítarleikari tónleika í Áskirkju kl. 20.30. Á efnisskránni er Dans (1985) eftir Mist Þorkels- dóttur, Preludio nr. 2 (1985) og Ton- ada de Contrapunto (1984) og Im- provisación nr. 2 (1986) (frumflutn- ingur) eftir Eyþór Þorláksson. Þá er á efnisskránni verk eftir Jana Obrovska sem nefnist Hommage a Béla Bartók (1972) og verk eftir Francis Poulenc sem heitir Sarab- ande (1960). Að loknu hléi flytur Páll Eyjólfsson Fjórar bagatellur (1984) eftir John Speight og Berg- mál Orfeusar eftir sama höfund (1986). Um þessi verk er eftirfarandi að segja: Dans er ýmist spilaður sem ein- leiksverk eða sem verk fyrir söng- rödd og gítar við ljóð eftir Stein Steinarr. Dansinn var skrifaði fyrir Pál og frumfluttur af honum á Musica Nova tónleikum vorið 1985. Eyþór Þorláksson hefur samið mikið fyrir gítar og þessi þrjú verk eru hér öll flutt í fyrsta sinn. Jana Obrovska er tékkneskt tón- skáld sem skrifaði þetta verk Bart- ók til heiðurs handa eiginmanni sínum, gítarleikaranum Milan Zel- enka. Franska tónskáldið Francis Poul- enc var í upphafi undir áhrifum frá Eric Satie en tókst að skapa sér sér- stöðu meðal franskra tónskálda á þessari öld. Hann var í tónskálda- klíkunni Les Six. Sarabandan er samin í New York handa gítarleikaranum Ida Presti. John Speight skrifaði Bagatell- urnar fyrir Símon ívarsson sem frumflutti þær síðastliðið sumar en tónverkið Echoes of Orpheus var skrifað handa Páli vorið 1986 og hann frumflytur það á þessum tón- Ieikum. Páll Eyjólfsson lærði hjá Eyþóri Þorlákssyni í Gítarskólanum og lauk þaðan burtfararprófi 1982. Hann hefur síðan dvalið á Spáni um þriggja ára skeið og stundað framhaldsnám hjá Jose Luis Gonz- ales. Norrœna húsið, 2. júní: Píanódúó í Norræna húsinu, þriðjudaginn 2. júní, fáum við að hlýða á píanó- dúó þeirra Ástmars Ólafssonar og Sveinbjargar Vilhjálmsdóttur. Um þetta góða fólk er eftirfarandi að segja: Ástmar Ólafsson lærði á píanó hjá Sveinbjörgu í Tónskóla Sigur- sveins og lauk þaðan burtfararprófi árið 1978. Síðan stundaði hann nám í sex ár hjá Philip Jenkins við Royal Academy of Music í London og að því loknu sótti hann einka- tíma hjá Luis Kentner í London til ársins 1986 þegar hann fluttist til ís- lands. Hann kemur nú fram í fyrsta sinn á tónleikum á íslandi. Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir lærði á píanó hjá Jóni Nordal í Tónlistar- skólanum í Reykjavík. Hún var bú- sett í London um árabil og lauk þá meðal annars einleikaraprófi í píanóleik frá Guildhall School of Music and Drama. Hún hefur verið virk í flutningi kammertónlistar og leikið mikið með söngvurum, eink- um eiginmanni sínum John Speight. Efnisskrá þeirra Ástmars og Sveinbjargar lítur svona út: Mariko Kabe (1950), Fantasía I, Willem Pýper (1894-1947), Sónata (1935), Allegro aperto ma pesante, Grave, Moderato assai. Hlé. Lennox Berkley (1903), Capr- iccio, Nocturne e Polka, John Speight (1945), Tónlist á júníkvöldi (1987), Preludio, Notturno, Inter- mezzo, Canto, Scherzo, Benjamin Britten (1913-1976), Mazurka El- egiaca (1941) im memoriam I.J. Paderewski, Inngangur og Rondó alla Burlesca. Og um höfundana er það að segja að því miður vitum við ekkert um Mariko Kabe annað en það að hún er japönsk og hefur ekki áður átt verk á íslenskum efnisskrám. Hollenska tónskáldið Willem Pýper starfaði sem gagnrýnandi og kennari í Utrecht og Amsterdam og skrifaði alls konar músík, I dúr og moll og síðustu æviárin atónal. Lennox Berkley var lengstaf pró- fessor í tónsmíðum við Royal Áca- demy of Music í London en nam sjálfur sín fræði í París. Benjamin Britten byrjaði ungur að semja og hafði tíu ára gamall lokið við allmarga strengjakvart- etta og píanósónötur. Nú er hann ef til vill þekktastur fyrir óperur sínar. Mazurka Elegiaca er saminn til minningar um pólska píanistann og forsætisráðherrann Ignacy Jan Paderewski (1860-1941). Music for a June Evening eða Tónlist á júníkvöldi er samin fyrir Ástmar og Sveinbjörgu. Verkinu var lokið í maí 1987. Hótel Borg, 3. júní: Súld Súldin var stofnuð haustið 1986 sem tríó en varð síðar kvartett, fyrst með Tryggva Húbner á gítarinn. Þeir félagar hafa frá upphafi samið sjálfir alla þá tónlist sem þeir hafa flutt í nafni Súldarinnar. Þeir hafa nýtt sér margvísleg form jazz-tón- listar og farið út fyrir hefðbundinn ramma og reynt að móta sína eigin tónlistarstefnu. Sú tónlist sem þeir flytja gæti hugsanlega fallið undir það sem nefnt hefur verið „Ad- vanced Jazz“ á ensku. Annars er Súldin opin fyrir öll- um nýjum straumum og hræring- um í tónlistinni. Efnisskrá Súldarinnar er á þenn- an veg: Szymon Kuran, Augliti til auglit- is (1987), (Konfrontacja). Hlé. Steingrímur Guðmundsson, Paughkeepsie (1986), Stefán Ing- ólfsson, Augnablik (1987), Szymon Kuran, “11’8“ (1986), Þorsteinn Magnússon, Myndyrði úr meðvit- und (1987), (Frumflutningur). Tónleikarnir eru sem sagt á Hótel Borg og hefjast kl. 21.00. Og þar með lýkur Skerpluhátíð þótt Mus- ica Nova haldi áfram góðu starfi og gleðji okkur með tónlisf nútímans áfram. Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir og Ástmar Ólafsson.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.