Alþýðublaðið - 24.10.1987, Blaðsíða 24

Alþýðublaðið - 24.10.1987, Blaðsíða 24
Skjót viðbrögð tryggja sparifé þínu Nú bjóðast þér í takmarkaðan tíma, 8,5% raunvextir ó sparislrirteinum rikissjóðs til 6 óra Ríkissjóður mun í skamman tíma bjóða sparifjáreigendum sérstök kjör á spari- skírteinum með 6 ára binditíma, sem tryggja þér 8,5% ársvexti umfram verðtryggingu. Á þeim tíma vex sparifé þitt um hvorki meira né minna en 63% umfram verðtryggingu. Hafðu í huga, að þetta einstaka boð stendur aðeins í takmarkaðan tíma. Nú er því rétti tím- inn ef þú vilt ávaxta sparifé þitt á kjörum, sem tryggja þér háa raunávöxtun á örugg- an hátt. Spariskírteini ríkissjóðs hafa einnig þann kost, að þau eru tekju- og eigna- skattsfrjáls og bera auk þess ekkert stimpilgjald. Ef þú vilt losa fé þitt á binditímanum getur þú alltaf selt spariskírteini ríkissjóðs í gegnum Verðbréfaþing Islands. Þú færð spariskírteini ríkissjóðs í Seðla- banka íslands og hjá löggiltum verðbréfa- sölum, sem eru m.a. viðskiptabankar, ýmsir sparisjóðir, pósthús um land allt og aðrir verðbréfamiðlarar. RÍKISSJÓÐUR ÍSLANDS t

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.