Alþýðublaðið - 24.10.1987, Blaðsíða 12

Alþýðublaðið - 24.10.1987, Blaðsíða 12
GAUKSI. VERUM MEÐ í ÞJÓÐARÁTAKI! 23., 24. og 25. október 1987. Þrír merkisdagar í sögu íslenskra sjóslysavarna. Slysavarnafélag fslands var stofnað í ársbyrjun 1928 og hefur starfsemi þess markast af tveim nieginþátt- um - Annars vegar af útbreiðslu- og fræðslustarfi um slysavarnir en hins vegar hefur félagið skipulagt al- hliða leitar- og björgunarstörf. Landinu er nú skipt í 10 umdæmi sem telja 94 slysavama- sveitir. Slysavarnafélag íslands hefur ávallt kappkostað að sinna öryggis- málum sjómanna. Um árabil veitti félagið nemendum sjómannaskólanna fræðslu um öryggis- mál en árið 1985 urðu þáttaskil er Slysavarnaskóli sjómanna var stofnaður og er miðstöð hans um borð í Sæbjörgu, sem áður var varðskipið Þór. í slys- avarnaskólanum eru meðal annars Jkennd björgunar- tækni, eldvarnir, skyndihjálp og „björgun með þyrlu“. Hraðbátar af þessari gerd eru aflmiklir og gefa mikla möguleika við erfiðar aðstœður. Fjölmargar sveitir Slysavarnafélagsins hafa brýna þörf fyrir slíka báta. Tilkynningaskylua íslenskra skipa tók til starfa í maí árið 1968 og var Slysavarnafélaginu frá upphafi falin skipulagning hennar og framkvæmd. Slysavarnafélagið starfrækir nú 46 skipbrotsmanna- skýli við strendur landsins. Vitaskuld þarf mikinn og traustan búnað til þess að slysavama- sveitir geti sinnt sínum margvís- legu verkefnum. Pörfin fyrír nýjan og betrí björgun- arbúnað er víða brýn, því réttur búnaður getur skipt sköpum á öríagastund. Slys og óhöpp gera ekki boð á undan sér en máttur okkar felst í því að treysta varnarvegginn. Slysavarnafélag íslands treystirþvíá stuðningþinn þessa merkisdaga. ÞESSI AUGLÝSING ER STYRKT AF SÖLUMIÐSTÖÐ HRAÐFRYSTIHÚSANNA - SJÓVÁ - SJÁVARAFURÐADEILD SAMBANDSINS - NESSKIP - BRUNABÓT - KASSAGERÐ REYKJAVÍKUR - VERZLUNARBANKANUM OG ALÞÝÐUBANKANUM

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.