Alþýðublaðið - 24.10.1987, Blaðsíða 12
GAUKSI.
VERUM MEÐ í ÞJÓÐARÁTAKI!
23., 24. og 25.
október 1987.
Þrír merkisdagar
í sögu íslenskra
sjóslysavarna.
Slysavarnafélag fslands var stofnað í ársbyrjun 1928
og hefur starfsemi þess markast af tveim nieginþátt-
um - Annars vegar af útbreiðslu- og fræðslustarfi um
slysavarnir en hins vegar hefur félagið skipulagt al-
hliða leitar- og björgunarstörf. Landinu er nú skipt í
10 umdæmi sem
telja 94 slysavama-
sveitir.
Slysavarnafélag
íslands hefur
ávallt kappkostað
að sinna öryggis-
málum sjómanna.
Um árabil veitti
félagið nemendum
sjómannaskólanna
fræðslu um öryggis-
mál en árið 1985 urðu þáttaskil er Slysavarnaskóli
sjómanna var stofnaður og er miðstöð hans um borð
í Sæbjörgu, sem áður var varðskipið Þór. í slys-
avarnaskólanum eru meðal annars Jkennd björgunar-
tækni, eldvarnir, skyndihjálp og „björgun með þyrlu“.
Hraðbátar af þessari gerd eru aflmiklir og gefa mikla möguleika við erfiðar aðstœður.
Fjölmargar sveitir Slysavarnafélagsins hafa brýna þörf fyrir slíka báta.
Tilkynningaskylua íslenskra skipa tók til starfa í
maí árið 1968 og var Slysavarnafélaginu frá upphafi
falin skipulagning hennar og framkvæmd.
Slysavarnafélagið starfrækir nú 46 skipbrotsmanna-
skýli við strendur landsins.
Vitaskuld þarf
mikinn og traustan
búnað til þess
að slysavama-
sveitir geti sinnt
sínum margvís-
legu verkefnum.
Pörfin fyrír nýjan
og betrí björgun-
arbúnað er víða
brýn, því réttur
búnaður getur skipt sköpum á öríagastund. Slys og
óhöpp gera ekki boð á undan sér en máttur okkar
felst í því að treysta varnarvegginn. Slysavarnafélag
íslands treystirþvíá stuðningþinn þessa merkisdaga.
ÞESSI AUGLÝSING ER STYRKT AF SÖLUMIÐSTÖÐ HRAÐFRYSTIHÚSANNA - SJÓVÁ - SJÁVARAFURÐADEILD SAMBANDSINS -
NESSKIP - BRUNABÓT - KASSAGERÐ REYKJAVÍKUR - VERZLUNARBANKANUM OG ALÞÝÐUBANKANUM