Alþýðublaðið - 16.12.1987, Page 11
Miðvikudagur 16. desember 1978
11
BÓKMENNTIR
Eiríkur Brynjólfsson
skrifar
BÓK SEM Á ERINDI
Kaldaljós
eftir Vigdísi Grimsdóttur,
Svart á hvitu 1987,
453 bls.
Um langan tíma hefur verið í tísku
að allt lífið sé einfalt og auðskilið,
eins og stafrófið „i erind þessi lítil
tvö“. Þess vegna hafa menn horft með
stærilæti á lífið kringum sig og sagt
sísvona: Ef við högum þessu svona,
þá verður allt eins og það á að vera.
Og af því að allt á að vera eins og það
á að vera, þá líka er allt eins og það á
að vera.
í framhaldi af þessu hafa menn lagt
meira upp úr yfirboröinu heldur en þvl
sem undir niðri býr. Þetta gildir um rit-
höfunda eins og annað fólk. Sumir
góðviIjaðir rithöfundar eins og fyrir-
verða sig fyrir lífsskilning sinn og
grípa þess vegna til þess ráðs að
flækja sögurnar í sjálfar sig. Hafa
kannski fyrsta kaflann aftast, miðju-
kaflann fremst o.s. frv. og grlpa til
þess ráðs að vera óstjórnlega fyndnir.
í Kaldaljósi gerir Vigdís Grímsdóttir
hvorugt. Hún þarf þess ekki. Hún beit-
ir ekki klippibrögðum. Hún er ekki
óstjórnlega fyndin en lesandinn finnur
fyrir góðlátlegri og hlýlegri kímni. Hún
þykist alls ekki skilja alla skapaða
hluti. Sumt er skiljanlegt og annað
ekki. Hún er ekki flókin og ekki ein-
föld. Kannski hvort tveggja eins og líf-
ið er. En fyrst og fremst trúverðug. Við
skyggnumst undir yfirborðið í Kalda-
Ijósi. Kannski eru til álfar og nornir og
draumar sem rætast. Og kannski er
þetta allt í höfðinu á honum Grími
Hermundssyni.
Kaldaljós fjallar um Grím Hermund-
son, ungan dreng í þröngum firði und-
ir háum Tindi, og hans fólk og örlög
þess. Hann teiknar myndir og trúir á
nornir, þangað til hann hittir gömlu
konuna, Álfrúnu, sem hann hélt að
væri norn. Hann verður fyrir áhrifum
af henni og sögum hennar. í fyrri
hluta bókarinnar er Grlmur tiu ára og
við dveljum inni i hugarheimi hans. I
seinni hlutanum er hann tvítugur og
kominn í myndlistarnám en fortíðin er
alltaf umhverfis hann. Allt sem hendir
hann og hann tekur sér fyrir hendur á
sér hliðstæður í fortlð hans. Fólkið
hans og örlög þess fylgja honum alla
leið. Að lokum málar hann fortíðina á
veggi íbúðar sinnar og verður sjálfur
hluti af þeirri mynd, sameinast fortíð-
inni, stendur í sömu sporum og I upp-
hafi og sagan gæti þess vegna hafist
að nýju.
Frásagnarandinn í bókinni er ein-
stakur. Mér fannst ég ekki vera að
lesa heldur var eins og einhver hvísl-
„Frásagnarandinn i bókinni er einstakur.
Mér fannst ég ekki vera að lesa heldur var
eins og einhver hvislaði að mér. Hún talar
við lesandann, þessi bók, þvi hún á við
okkur erindi," skrifar Eiríkur Brynjólfsson
m.a. um bók Vigdisar Grímsdóttur „Kalda-
ljós“.
aði að mér. Hún talar við lesandann,
þessi bók, því hún á við okkur erindi.
Bókin byggir á sannsögulegum at-
burðum en þeir eru færðir til í tíma og
rúmi þannig að þær fyrirmyndir skipta
ekki máli lengur. Aðeins örlög fólksins
skipta máli. Og manni er ekki sama
um Grím Hermundsson en verður
samt að játa fyrir sér í lokin að öðru-
vísi gat ekki farið.
í bókinni er fullt af nýjum oröum og
barnaorð gera Grím ungan og Gottínu
systur hans að einstaklega lífandi
fólki. Sérstaklega hafði ég gaman af
þvl hvernig Vigdís leikur sér að nafn-
inu Grímur. Hér er eitt dæmi af mörg-
um: „Og hann hlustar vel. Verður allur
ein eyru. Eymagrímur." Endurtekning-
um er einnig beitt af mikillilistfengi.
I
Bókin er heiðarleg og falleg og
sönn, skemmtileg og vel sögð. Vigdísi
tekst að búa til trúverðugar og lifandi
persónur og lýsa högum þeirra og ör-
lögum á sannfærandi hátt. Kaldaljós
er mjög metnaðarfullt verk og stingur
I stúf við hinn metnaðarlausa nútíma.
Og í lokin segi ég nú ekki annað en
þetta: Lesið Kaldaljós. Það verður
enginn svikinn af þvi.
Eiríkur Brynjólfsson
Höfundur er kennari og rithöfundur
BÓKAFRÉTTIR
JESS STERN
EDGAR
UNORALÆKklRINN OG SJAANDINN
CAYCE
Edgar Cayce.
Undralæknirinn
og sjáandinn
„Bandaríkjamaðurinn
Edgar Cayce sem lést árið
1945, þá 67 ára að aldri, er
tvímælalaust athyglisverðasti
dulspekingur og sjáandi sem
um getur á þessari öld,“
segir m.a. aftan á bókarkápu
nýendurútgefinnar bókar um
Edgar Cayce hjá Erni og
Örlygi. Höfundurinn er Jess
Stern og þýðinguna gerði
Loftur Guðmundsson. Bókin
sem kom fyrst út á íslensku
árið 1967, er löngu uppseld
og því tímabært að endur-
útgefa hana.
Á bókarkápu segir enn-
fremur. „Hann lauk aldrei
barnaskólanámi, en I dá-
svefni talaði hann reiprenn-
andi erlendar tungur, sá fyrir
ævi manna og óorðna at-
burði, eða lýsti löngu liðnum
atburðum." Hann sagði m.a.
fyrir um siðari heimsstyrjöld-
ina, sá fyrir jarðskjálfta og
náttúruhamfarir. Sumir þeirra
hafa verið aö rætast að und-
anförnu en aðrir eiga, ef til
vill, eftir að rætast á þessum
áratug, s.s. eyðing New York
borgar, Los Angeles og San
Fransisco.
I frétt frá forlaginu segir
ennfremur að einn undursam-
legasti hæfileiki hans hafi
verið að greina sjúkdóma
manna, sem hann hafði
aldrei heyrt né séð og bú-
settir voru í margra mllna
fjarlægð eða I öðrum lönd-
um.
HUGH LOFTING
DAGFINNUR
DÝRALÆKNIR
i APALANDI
Dagfinnur dýralæknir.
Dagfinnur
dýralæknir
Bókin um Dagfinn dýra-
lækni í apalandi er nú endur-
útgefin hjá Erni og Örlygi.
Höfundur er Hugh Lofting og
Andrés Kristjánsson íslensk-
ar.
Fyrsta sagan um Dagfinn
dýralækni, „Dagfinnur dýra-
læknir i apalandi" kom út
1920 og hlaut þá strax miklar
vinsældir. Lofting hlaut
Newbury-verölaunin, helstu
verðlaun Bandaríkjanna fyrir
barnabækur 1923 fyrir bók
slna „Dagfinnur dýralæknir í
langferðum".
A titilblaði bóka sinna
hafði Hugh Lofting eftirfar-
andi tileinkun: „Öllum börn-
um — börnum í æsku og
börnum í hjarta, tileinka ég
þessa sögu.“
Vel sögð saga um innri baráttu,
átök og uppgjör...
Saga um ungling sem liður fyrir
fötlun sina..
Saga sem vekur til umhugsunar...
Skemmtileg saga sem sker þó
óvægilega á kýlin.....
Sagan segir frá upphafi skóla-
göngu Ástu, systur Kára litla sem
allir þekkja.
POTTÞETTUR VINUR
POTTÞÉTT UNGLINGABÓK
ASTA LITLA LIPURTÁ
— Kjörin bók til að lesafyrirbörn!
— Kjörin bók fyrir börn, sem eru
að byrja að lesa!
Bókin sem hlaut hæstu verðlaun,
sem veitt hafa verið I samkeppni
um barna- og unglingaskáld-
sögur hérlendis.
Sagan snýst um daglegt amstur
og ástarskot nemenda i 8. H —
glettin og gáskafull — þangað til
að Sindbað sæfari kemur til
sögunnar. —- Þá æsist leikurinn
heldur betur og ótrúlegur háski
vofir yfir aðalsöguhetjunni....
ÁSTA LITLA LIPURTÁ
er nú gefin út i sjöunda sinn. Það
segir meira um söguna en mörg
orð.
ÆSKAN
Simi 17336