Alþýðublaðið - 16.12.1987, Blaðsíða 19

Alþýðublaðið - 16.12.1987, Blaðsíða 19
Miövikudagur 16. desember 1978 19 BOKMENNTIR Gylfi Gröndal skrifar MINNINGIN SPRETTUR EINS OG BLÓM „Sól á heimsenda er merkilegur áfangi á ritferli Matthiasar Johann- essens. Bókln er skrifuð af næmri tilfinningu og list- fengi. Hún er Ijóð- ræn i eðli sinu, þótt i lausu máli sé, og það er spá undirritaðs að henni verði skipað við hlið einnar af bestu Ijóðabókum Matthiasar, Morguns í mai,“ skrifar Gylfi Gröndal m.a. i rlt- dómi sínum. Matthias Johannessen Sól á heimsenda Saga Almenna bókafólaglð 1987. Skáldskapur Matthlasar Jóhannes- sens hefur tekiö athyglisveröum breyt- ingum hin slðari ár. Ljóö hans gerast nú æ styttri og hnitmiöaöri, en hins vegar leggur hann I vaxandi mæli stund á texta I óbundnu máli og lætur þá gjarnan gamminn geisa ekki ósvip- aö og hann geröi áður I löngum Ijóða- flokkum sínum. Nýjasta bók Matthlasar Sól á heim- senda er tvlmælalaust besta verk hans I lausu máli til þessa; marg- slungiö skáldverk, listilega vel skrifaö, Ijóörænt og fallegt. Einn tími og eitt atvik Hér er ekki um eiginlega sögu aö ræöa I heföbundnum skilningi þess orðs. Atburöarás er ekki önnur en sú, að fjölskylda leggur af staö I feröalag til Portúgal viö upphaf frásagnar og heldur slðan heim á leiö I bókarlok. Sagt hefurveriö um bækurThors Vil- hjálmssonar, aö þær gerist I stllnum, og hiö sama má segja um þessa nýju bók Matthlasar. Þessirtveir höfundar eru vissulega jafn óllkir og frekast er hægt aö hugsa sér, en aöferö þeirra er aö þessu sinni sviþuð. Tilefni bókarinnar er sumarleyfi blaöamanns: „Hann haföi ekkert aö gera annað en spóka sig I sólskininu og slappa af. Hann naut þess að vera I frli og draga andann eins og annað fólk. Honum haföi oft fundist hann vera eins og húöarklár I vinnunni ... Blaðamennskan var lýjandi starf og gott aö slaka á spennunni og flat- maga hugsunarlaust I sólinni. Nú gat hann lesið þaö sem honum sýndist. Og hann þurfti ekki að hugsa neitt frekar en hann vildi." (Bls. 53.) En minningarnar taka aö spretta eins og blóm, eins og komist er aö oröi á einum staö I bókinni, og þeim er lýst ásamt ótal öðrum hugleiöing- um; Á ytra boröi beinist frásögnin að vanabundnum atvikum fólks I sólar- landaferö. Þaö er setið á svölum eöa legiö á strönd, boröað á veitingahús- um, sögulegar minjar skoöaöar og horft á nautaat. Atvikin eru lltil og hversdagsleg, en Matthlasi tekst að gera þau stór I frásögn sinni. Þau ööl- ast vlöara samhengi og meiri dýpt: „Þannig tengdist eltt ööru. Og tlminn leiö og varð einn tlmi og atvikin runnu saman I eitt atvik og allir götusalar uröu aö elnum götusala." (Bls. 67.) Og: „Þau höfðu gengiö um vfgvöllinn þar sem Ólafur helgi var veginn og þá glitraöi regnbogi allt I einu yfir höfð- um þeirra og allir dagar uröu aö ein- um degi og öll smáblóm að einu smá- blómi og öll tár uröu aö einu tári. Og öll bros að einu brosi." (Bls. 81.) Hann, hún og drengurinn Persónur bókarinnar eru þrjár, hann, hún og drengurinn, og hefur hver sln sérstöku einkenni. Hún er„ábyrg, hag- sýn, skipulögö, hlédræg, stjórnsöm, metnaöargjörn, dugleg, skynsöm, vandvirk, formföst, kerfisbundin," eins og hann las I stjörnuspánni hennar. Hann hafði hins vegar alltaf „séö lifiö svo sem I skuggsjá. Og hann haföi ort um þaö þannig, þvl hann haföi ekki farið varhluta af þeirri ástrlöu sem skáldskapur er.“ Og drengurinn er fróöleiksfús og spurull og gerir stund- um „flókna hluti að einföldum sann- indum eins og börnum er lagiö". Á einum staö segir, aö I rauninni búi þau þrjú hvert I sinni eigin veröld, og stundum blandast þessiróllku heimar skemmtilega saman, eins og til dæmis á bls. 57: „,,Ég ætla að kaupa svona hund þegar ég er orðinn stór,“ sagöi drengurinn og benti á rauðbrúnan setterhund með lafandi eyru. „Hann er svo fallegur. Og hann er ekki gamall." „Já, þetta er fallegur hundur,“ sagöi móöir hans. „Hérna voru serkirnir," sagöi faöir hans. „Ha?“ sagði drengurinn. „Márarnir," áréttaöi móöir hans. „Já, hérna byggöu þeir húsin sln,“ sagöi hann. „Og þetta er virkisveggurinn þeirra. Hérnahrundu mörg hús I skjálftunum 1755." „Var jarðskjálfti?" sagöi drengurinn hik- andi. „Þaö er langt slöan,“ sagði hún.“ Stlll bókarinnar er á margan hátt frábrugöinn þvi sem Matthlas hefur áður skrifaö. Setningar eru stuttar, lýs- ingar myndrænar og samtöl falla mjúklega aö textanum eins og bárur að strönd. Ýmsum stílbrögöum er beitt og heppnast yfirleitt vel. Tlminn er til aö mynda þurrkaöur út, eins og Matthlas hefur áöur gert I verkum slnum, til dæmis I nýjum hluta Hólmgöngu- Ijóöa, sem hann orti 1984. Drengurinn er þannig á ýmsum aldri I frásögninni, og stundum er bróöir hans, sem er tíu árum eldri, kominn I hans staö: „Hann var hættur aö upplifa drenginn sem barn. Mörg ár voru liðin frá þvl aö syn- ir hans voru börn. Samt uppliföi hann þá I öllum börnum.“ Frásögnin er fleyguð nokkrum frum- sömdum Ijóöum og stuttum köflum úr (slendingasögum, þegar faöirinn les fyrir drenginn á kvöldin. ísland er hvarvetna á næstu grös- um, þótt bókin gerist erlendis. Veröld annars fólks Þaö sem minnisstæöast veröur aö loknum lestri þessarar bókar er sú undiralda sem I frásögninni er; hversu vel tekst aö lýsa hverfulleika og hætt- um hins borgaralega llfs okkar Vestur- landabúa. Kaflarnir um nautaatiö og hákarlana I Flórida eru til vitnis um þetta og ýmsar frásagnir um voveif- lega atburði I blöðum og sjónvarpi. „Og nýr dagur þrengir sér inn I vit- und þeirra, veröld annars fólks þrengir sér inn I veröld þeirra," segir I niöur- lagskafla bókarinnar. „Og vinalegt um- hverfi breytist I vfgvöll: Þremur börn- um rænt á ítallu, hvernig er unnt aö fremja slíkan glæp I svo undurfögru landi...“ Sól á heimsenda er merkilegur áfangi á ritferli Matthlasar Johanns- sens. Bókin er skrifuð af næmri til- finningu og listfengi. Hún er Ijóöræn I eðli sínu, þótt I lausu máli sé, og þaö er spá undirritaös, aö henni veröi skip- aö viö hliö einnar af bestu Ijóðabók- um Matthlasar, Morguns I mal. Bæði verkin byggjast á djúpstæöri persónu- legri reynslu og eru skrifuö af innri þörf. Gylfi Gröndal Höf. er ritstjóri Samvinnunnar 1988 árgerðin af Skutlunni frá Lancia kostar nú að- eins 313 þúsund krónur. Þú gerir vart betri bíla- kaup! Opið laugardaga frá kl. 1—5. BÍLABORG HF. FOSSHÁLSI 1, S. 68 12 99.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.