Alþýðublaðið - 16.12.1987, Blaðsíða 17

Alþýðublaðið - 16.12.1987, Blaðsíða 17
Miðvikubagur 16. desember 1978 17 BARA MARGAR LITLAR SMÁSÖGUR Bangsasögur eftir ýmsa höfunda Örn og Örlygur 1987 — Við erum ekki búin að lesa hana. Þetta eru bara margar litlar smásögur. En veistu það að hann Svavar er alltaf að skoða hana og hann segir, hann er alltaf svona: Æææ, váá, aumingja hún. Hann er alltaf eitthvað svona. Hvernig eiga góðar bækur að vera? — Bækur eiga að vera spennandi. Fyndnar líka, svona eins og Kuggur, hún er fyndin. Olla og Pési er spennandi og líka fyndin. — Mikið af myndum, lit- myndum. Bækur eiga að enda vel. Þessar enduðu allar vel nema Saga af Suðurnesj- um, því þá fór stelpan til að leita aftur að Kobba. — Skemmtileg bók er spennandi, skemmtileg, fynd- in. Með litmyndum helst. góðum soldiö. — Leiðinlegar bækur eru eru með engri mynd og kannski langt á milli mynda, ekki með góðum litmyndum og ekki með myndum sér- staklega. Og kannski ekki fyndnar. — Þær mega vera soldið sorglegar. — Og líka rlmbækur, þessi rímaði. — Engin bók var leiðinleg- ust. — Kuggur var voöa skemmtileg og fyndin. Jóla- grauturinn var spennandi. — Það er hægt að lesa sömu bók oft. — Ég get ekki sagt hvaða bók mér finnst skemmtileg- ust, mér finnst allar skemmti- legastar. Viðtal: Eirikur Brynjólfsson Magnea J. Matthíasdóttir. Myndir: Róbert Saga af Suðurnesjum þótti „spennandi en dáldið sorgleg". GAMAN AÐ ÆVINTÝRUM Fjööur af hauknum frækna Mál og menning — Það eru bara hérna ævintýri. Mér finnst sagan af Ivan prins skemmtileg. Menn- irnir þarna sem eru með bog- ana. — Nei, hún heitir það ekki. Froskaprinsessan heitirhún. — Hann fékk froskinn. — Það er gaman að ævin- týrum. hjá þessum sel. í jólamatinn. — Nei, tvo sekki. — Mér finnst hún ekki skemmtileg. Ömurlega leiðin- leg. — Það var strákur sem datt oní sjóinn og hitti systur sína. Fyrst þáveiddi pabbi hans og veiddi en svo veiddi hann ekki neitt og hérna og þá fór strákurinn og ætlaði að reyna að veiða og svo beit á hjá honum og svo ákvað hann að láta teyma sig alveg útfyrir og þá datt hann bara í sjóinn. Og svo kom selur sem hét Kobbi og þá fór hann með selnum oní sjóinn, selurinn, og svo fór hann með honum inní höll sem hann átti. Svo var fjall hjá höllinni. — Það var annar selur, manstu ekki, sem var systir hans? — Þá hitti hann systur sína. Svo var selurinn kóngs- sonur og svo synti selurinn með þau. Svo fór hann aftur í haminn, svo hann var eins og selur, og svo synti hann með þau til lands. Og hérna þá fóru þau með lax heim með sér sem þau höfðu fundiö f sjónum og borðuðu ájólun- um. En svo var stelpan svo leið, systir hans, og hún fór aftur niður í fjöru og ætlaði að reyna að finna Kobba, fór aftur út í vatnið og synti af því hún ætlaði að reyna að finna Kobba. — Þetta var góð bók. Spennandi en dálítið sorgleg af því að hann datt í sjóinn og þarria síðast þá fór hún aftur af því að hún var svo leið. Það er gaman að rím- bókum, sem ríma svona. — Þessar myndir eru alltaf svo skrýtnar, þær eru svona. Allt svona klippt út. Þær eru allar einhvern veginn svona. Mér finnst hún svo skrýtin. Sjáðu bátinn! svo skemmtilegur. Af því að hér eru þeir að klifra upp í tré. Hér eru þeir svo að smíða kofa. Svo eru allir að stríða. Það er dáldið fyndið þegar strákarnir stríða hon- um uppá vegg, þá krota þeir Einar Askell leikur sér við stelpur. EinarÁskell plús Milla. Palli er asni. Bubbi er bestur. — Nei, verstur. Milla, hún borar upp í nefið og gerir svona (grettir sig). — Stelpur eru alltaf að spegla sig og greiða sér og uppteknar af fötunum sínum, sleikja sér upp við kennar- ann, hlæja eins og bjánar út af engu, leika sér í asnaleg- um leikjum, hanga alltaf tvær og tvær saman. — Það er í bókinni, strák- arnir segja það í bókinni. — Hún er að stökkva svona hátt af bilskúr, Milla. Hún er frænka hans eða ég veit ekki nákvæmlega hvað. Þau eru að smíða kofa og svona grindverk. — Milla var að gera það. — Hún er að búa til grind- verk. Svo er hún að gera póstkassa og hengja hann upp á kofann og síðan hugs- ar Einar Áskell hvort að Milla sé að gera kofann með fána. Hann var hættur hérna, hann vildi aldrei vera með stelpum af þvi strákarnir voru búnir að skrifa á vegginn í skólanum, á klósettið, Einar Áskell plús Milla eða eitthvað. Hann mátti ekki leika sér við stelpu af þvi þeim fannst það svo leiðinlegt. — Nei, asnalegt. — Já, þeim fannst það asnalegt. Síðan kom hún bara með fána. En mér finnst eitt skrýtið. Hérna eru stafir fyrir aftan, það eru á tveimur stöðum bara límmiðar. Þeir vildu ekki skrifa þá. — Þetta er skemmtileg bók. — Ég hef lesið soldið margar bækur um Einar Áskel. Ég meina ég hef hérna lesið eitthvað þrjátíu bækur. Ekki allar um Einar Áskel. ROSALEGA SPENNANDI Hvaðan ert þú eiginlega? eftir Ásrúnu Matthíasdóttur ísafold 1987 — Hún er um stelpu, nei það eru tvær stelpur, og þær ætluðu að stofna leynifélag. Þær verða bara að búa til kofa því næsti kafli heitir „Kofanum ógnað“. Við erum ekki búin að lesa hana alla. — Hún er spennandi. — Rosalega spennandi. — Það eru svo fáar myndir og það eru engir litir í henni. Það er skemmtilegra að hafa liti. — Einu sinni þegar stelp- urnar fóru í leikfimi þá fóru strákarnir að kikja á stelpurn- ar. Siðan ætluðu tvær stelpur að hefna sín, Erla og Laufey, að kíkja á strákana. Þær sáu að Bjössi var á brækunum og töluðu saman um hvort hann mundi ekki fara úr brækun- um. Þau eru ellefu og átta eða níu — nei, Laufey, hún er átta. — Lárus er ellefu og Lauf- ey er níu eða átta. Erla hlýtur að vera svona sjö eða átta. Lárus og Laufey eru systkini. Hitt er bara vinkona hennar Laufeyjar, Erla. — Þau eiga heima á Ólafs- firði, allavegana Laufey. — Síðan þegar þær voru að kíkja á strákana, þá kom kennarinn og sagði: Ætli það sé ekki móg komið af glugga- leikfimi. — Gluggaleikfimi, hvað er nú það? SKEMMTILEG BÓK Einar Áskell og Milla eftir Gunille Bergström Mál og menning — Mér finnst Einar Áskell ..soidið spennandi að vita hvernig svona snjóboltahnoðunarvél mundi virka.“

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.