Alþýðublaðið - 21.05.1988, Page 4
LONDON
txíviku
FLUGLEIDIrJS'
-fyrir þíg- *
FLUGLEIÐIR Æ0
-fyrir þíg- ^
FRANKFURT
lxiviku
FLUGLEIÐIR
-fyrír þíg- *
ÚTBOÐ
Klæöingar á Vesturlandi 1988 Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í ofangreint verk. Nýlagnirog yfirlagnir á sjö köflum samtals 30 km. ■^Verki skal lokið 1. september 1988. ' Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins í Borgarnesi og Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og með 24. maí n.k. Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl 14.00 þann 6. júní 1988.
Vegamálastjóri
HR FÉLAGSMÁLASTOFNUN
BgS REYKJAVÍKURBORGAR
FJÖLSKYLDUDEILD
Fósturheimili óskast fyrir þroskaheft börn.
Nánari upplýsingar gefur Áslaug Ólafsdóttir félags-
ráðgjafi í síma 685911 e.h. alla virka daga.
!«! RE Y K JÞNIKURBORG Ifl
Jlawuvi Stixávi MT
Heisluverndarstöö Reykjavíkur
óskar eftir að ráða eftirtalið starfsfólk til sumar-
afleysinga:
Vid heilsugæslustöðvar í Reykjavík
SKRIFSTOFUMANN til símavörslu og afgreiðslu.
LÆKNARITARA
Upplýsingar eru gefnar á skrifstofu framkvæmda-
stjóra heilsugæslustöðva, sími 22400.
Við útibú Barnadeildar — Asparfelli 12
HJÚKRUNARFRÆÐINGA
Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma 75100.
Umsóknum skal skilatil Starfsmannahalds Reykja-
víkurborgar, fyrir kl. 16.00 föstudaginn 27. maí 1988.
Laugardagur 21. maí 1988
-----------------TTT---; I'--. ■
FRÉTTIR
Ráðhúsið:
DEILT UIH STÆRD
LÓÐARINNAR
Bjarni P. Magnússon, fulltrúi Alþýðuflokksins, lagði fram bókun á
borgarstjórnarfundi á fimmtudag, vegna upplýsingar frá byggingar-
nefnd Reykjavíkurborgar um að félagsmálaráðherra hefði verið
sendar rangar upplýsingar varðandi stœrð ráðhúslóðarinnar.
„Ég er ekki á móti því aö
lóðir séu sameinaðar heldur
geri ég athugasemd vegna
ónákvæmni í vinnubrögðum
hjá embætti borgarstjóra,
þegar rikislögmanni var sent
bréf upp á það að lóöin væri
3880 fermetrar“ sagði Bjarni
P. Magnússon, fulltrúi
Alþýöuflokksins í borgar-
stjórn í samtali við Alþýðu-
blaðið en á borgarstjórnar-
fundi á fimmtudag geröi
Bjarni athugasemd við þaö
að embætti borgarstjóra
skyldi senda félagsmálaráð-
herra rangar upplýsingar
varðandi stærö ráðhúslóðar.
Á fundi byggingarnefndar,
11. maí sl. lögðu þeir Gunnar
H. Gunnarsson og Guðmund
ur Haraldsson fram umsögn
er i sagði að ráðhúslóð sú,
sem samþykkt sé í deili-
skipulagi kvosarinnar, sé
stærri heldur en getið sé um
í skipulaginu. Segja þeir að
við nánari athugun hafi kom-
ið í Ijós að í álitsgerð ríkis-
lögmanns til félagsmálaráð-
herra, 2. febrúar sl. segi að
lóðin sé 3880 fermetrar. í
kæru, sem 37 íbúar við Tjarn-
argötu sendu ráðherra vegna
sameiningu lóðanna Tjarnar-
götu 11 og Vonarstrætis 11,
segir hins vegar að ráðhús-
lóðin sé 4.333 fermetrar.
Vegna þess gerði Bjarni P.
Magnússon eftirfarandi bók-
un: „Ég harma ónákvæmni
þá í vinnubrögðum, sem lýst
er í 70. lið fundargerðar bygg-
ingarnefndar og varöar vill-
andi upplýsingar embættis
borgarstjóra til ríkislögmanns
um að lóð ráðhússins sé
3880 fermetrar.11
Fjögurra daga veisluhátíð verður í Hafnarfiröi um næstu mánaðamót.
A-mynd/Róbert
HAFNARFJÖRÐUR
80 ÁRA
Hafnarfjarðarbær á 80 ára
afmæli um næstu mánaöa-
mót og verður af því tilefni
haldin fjögurra daga veislu-
hátið. Hátíðahöldin hefjast
þann 1. júní
Þórir Jónsson, sem situr í
framkvæmdanefnd afmælis-
hátíðar, sagði í samtali viö
Alþýðublaðið að haldið yrði
upp á afmælið með pompi
og pragt. Á afmælisdaginn
sjálfan, 1. júni, fer fram
athöfn í Hellisgerði, sagði
Þórir, þegar Málfundafélagið
Magni afhendir Hafnarfjarðar-
bæ garðinn formlega. Um
kvöldið verða síðan hátlðar-
höld I menningarsetri Hafnar-
fjarðar, Hafnarborg, og verður
húsið þá vígt.
Á öðrum degi hátíðarhald-
anna verða opnaðar hinar
ýmsu sýningar er segja sögu
bæjarins s.s. I Riddaranum,
Byggðasafninu og Öldutúns-
skóla. Um kvöldið verður síó-
an frumsýnd heimildarmynd
um Hafnarfjörð I Bæjarbíó
sem Erlendur Sveinsson hef-
ur verið að vinna aö. Sagði
Þórir að hér væri um að ræða
gamlar myndir settar I nýjan
búning.
Dagur barnanna er siðan
föstudaginn 3. júní. Þá verður
hópganga barna af dagvistar-
stofnunum í Hafnarfirði og
ýmsar uppákomur í bænum.
Einnig verður afhjúpað lista-
verk, sem staðsett er í fisk-
markaðnum, eftir Gest Þor-
grímsson og konu hans
Rúnu. Hátíðarhöldunum lýkur
á laugardegi með fjölskyldu-
hátíð í iþróttahúsinu.
70 ÁRA
Siglfirðingar fögnuðu því í
gær að 70 ár voru liðin frá því
að Siglufjarðarkaupstaður
fékk kaupstaðarréttindi og
170 ár síðan hann fékk versl-
unarréttindi. Einnig var þess
minnst að 100 ár eru liðin
síðan séra Bjarni Þorsteins-
son tónskáld og fyrsti heið-
ursborgari Siglufjarðar vígð-
ist til Siglufjarðar. í tilefni
þessa verður Hvítasunnu-
guðsþjónustu í Siglufjarðar-
Siglufjörður:
AFMÆLI
kirkju á sunnudag sjónvarp-
að.
Hátíðahöld vegna afmæl-
isins hófust kl. 14 með opn-
un nemendasýningar í
Grunnskólanum. Seinna um
daginn var hátíðarfundur bæj-
arstjórnar Siglufjarðar hald-
inn í nýjum fundarsal og
Leikfélag Siglufjarðar frum-
sýndi leikritið Galdrakarlinn í
Oz eftir L. Frank. Baum. Um
FAGNAÐ
kvöldið var hátíöardagskrá í
Siglufjarðarkirkju með hinum
ýmsu skemmtiatriðum.
I tilefni þess að 100 ár eru
liðin frá vígslu séra Bjarna
voru hátíðarsöngvar hans
fluttir við guðsþjónustuna en
henni verður sjónvarpað á
hvítasunnudag. Söngvarnir
eru fluttir af kirkjukór Siglu-
fjarðar undir stjórn Antonys
Raleys og sóknarprestsins sr.
Vigfúsi Þór Árnasyni.