Alþýðublaðið - 21.05.1988, Blaðsíða 14

Alþýðublaðið - 21.05.1988, Blaðsíða 14
14 Laugardagur 21. maí 1988 Rauði krossinn með nýstár- lega fjáröflun Eþíópíski Rauði krossinn hefur nú, í samvinnu við Rauðakrossfélög ýmissa landa, áform um að búa í haginn fyrir framtíðina með stórfelldu átaki til byggingar brunna og verndunar linda i Eþíópíu. Samhliða þessum aðgerðum ereinnig fyrirhug- uö umfangsmikil trjárækt til uppgræðslu á örfoka land- svæðum. Með trjárækt er stuðlað að því að jarðvegur- inn geti nýtt sér úrkomuna og safnað vatnsforða. Þetta er nauðsynlegt til að koma I veg fyrir lækkun á yfirborði grunnvatnsins sem er undir- staða alls gróðurs. Til þessara aðgerða þarf aðstoð. Fyrst og fremst er óskað eftir fjármagni til efn- iskaupa en sá kostnaður er um 75.000 ísl. kr. fyrir lind sem þjónað getur um 3000 manns. Einnig er óskað eftir því að sendifulltrúar vinni með eþiópískum aðilum aö áætlanagerð og eftirliti með framkvæmdum. | Sjúkdómur vegna mengaös neysluvatns er oft helsti skaðvald- ur meðal fátækra þjóða. Þessi mynd er hins vegar frá vernduðu vatnsbóli i Gojamhéraöi í Eþíópiu. Til að afla fjár til þessara framkvæmda mun RKÍ leita til almennings í landinu um stuðning. Söfnun hefst nú um Hvítasunnuhelgina og verða gíróseðlar sendir út til allra heimila auk þess sem fólki verður boðið að kauþa hreint íslenskt drykkjarvatn á dósum. Fimleikasamband íslands mun annast sölu á dósunum og mun fimleikafólk vera við fjölfarna staði á stór-Reykja- víkursvæðinu, Suðurnesjum, Vestmannaeyjum, Hveragerði, Selfossi og víðar á föstudag og laugardag. Á mánudaginn, annan í Hvítasunnu, verður gengið I hús sem víðast á of- angreindum stöðum. Mark- miðið er að safna 20 milljón- um króna og heitir Rauði kross Islands á landsmenn að styðja þróunarverkefnið með frjálsum framlögum á gíróseöli eða kaupum á is- lensku vatni. fflegas á faraldsfæti Nú í kvöld, nánar tiltekið á Höfn í Hornafirði, hefur meistari Megas sína árlegu tónleikaferð um landið okkar kæra. Að venju verður vinur- inn með kassagítarinn með sér og mun hann leika og syngja lög af sinni nýjustu plötu, Höfuðlausnir, sem kom út fyrir rúmri viku síðan. Landsmenn eru eindregið hvattir til þess að láta þetta tækifæri ekki framhjá sér fara því eins og flestir vita er Megas einstaklega fær mað- ur á sínu sviði. Viðkomustað- ir á Megasartúrnum ’88 eru eftirfarandi: 21. maí, laugard. Höfn Hornafirði, 22. maí, sunnud. Djúpivogur, 23. maí, mánud. Breiðdalsvík, 24. maí, þriðjud. Stöðvarfjörður, 25. maí, miðvikud. Norðfjörður, 26. maí fimmtud. Seyðisfjörður, 27. maí, föstud. Egilsstaðir, 28. maí, laugard. Voþnafjörður, 29. maí, sunnud. Þórshöfn, 30. maí, mánud. Kóþasker, 31. maí, þriðjud. Húsavík, 1. júní, miðvikud. Grenivík, 2. júní, fimmtud. Akureyri, 3. júní, föstud. Grimsey, HJÚKRUNARFRÆÐINGAR Eftirtaldarstöður hjúkrunarfræðinga í heilsugæslu- stöðvum eru lausar til umsóknar nú þegar: 1. Staða hjúkrunarforstjóra við Heilsugæslustöð- ina á Egilsstöðum, veitt frá 1. september 1988. 2. Staða hjúkrunarforstjóra við Heilsugæslustöð- ina í Ólafsvík. 3. Staða hjúkrunarforstjóra við Heilsugæslustöð- ina í Hólmavík. 4. Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslustöð- ina í Reykjahlíð, Mývatnssveit. 5. Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslustöð Suðurnesja í Keflavík. 6. Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslustöð- ina á Þórshöfn. 7. Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslustöð- ina í Kópavogi. 8. Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslustöðv- arnar á Fáskrúðsfirði og Stöðvarfirði. 9. Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslustöð- ina í Asparfelli, Reykjavík. Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf við hjúkrun sendist heilbrigðis- og tryggingamála- ráðuneytinu, Laugavegi 116, 150 Reykjavík. Heilbrigdis- og tryggingamálaráðuneytiö 18. maí 1988. 555 Félagsstarf aldraðra i Reykjavík fjí ORLOFSDVÖL Eins og undanfarin sumur efnir Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar í samstarfi við ísl. Þjóökirkjunatil grlofsdvalar að Löngumýri í Skagafirði. í sumar hafa eftirfarandi tímabil verið ákveðin. 1. hópur 30. maí til 10. júní 2. hópur 4. júli til 15. júlí 3. hópur 18. júli til 29. júlí 4. hópur 15. ágúst til 26. ágúst 5. hópur 5. sept. til 16. sept. Innritun og allar upplýsingar eru veittar á skrifstofu félagsstarfs aldraðra í Hvassaleiti 56-58 simar: 689670 og 689671 frá kl. 9.00 - 12.00. Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar 4. júní, laugard. Siglufjörður, 5. júní, sunnud. Sauðárkrókur, 6. júní, mánud. Skagaströnd, 7. júní, þriðjud. Hólmavík, 8. júní, miðvikud. Súðavík, 9. júní, fimmtud. ísafjörður, 10. júní, föstud. Bolungarvík, 11. júní, laugard. Þingeyri, 12. júní, sunnud. Bíldudalur, 13. júní, mánud. Patreksfjörður, 14. júní, þriðjud. Stykkishólmur, 15. júní, miðvikud. Ólafsvík, 16. júnf fimmtud. Akranes. Svo lítur út hin árlega tón- leikaferð Megasar um landið sem fylgja mun eftir útkomu nýju plötu hans „Höfuðlausn- ir“. Vikivaki í sjónvarp Á fundi tónlistarstjóra nor- rænu sjónvarpsstöðvanna sem fram fór dagana 4. til 6. maí s.l. i Osló, var gengið frá framleiðslu og upptökuáætl- un á íslensku Sjonvarpsoper- unni Vikivaki, sem byggð er á samnefndri skáldsögu Gunn- ars Gunnarssonar. Thor Vilhjálmsson gerir Ijóða- söngvana, en tónlistina sem- ur Atli Heimir Sveinsson. Leikstjóri er Hannu Heikinheimo. Framleiðandi fyrir hönd Sjónvarpsins verð- ur Hrafn Gunnlaugsson. Þá var íslensk tónlist kynnt, og þar á meðal út- færsla hljómsveitarinnar Rikshaw á kvæðinu Völusþá í sjónvarpsgerð Gunnlaugs Jónassonar. Sjónvarpsstöðvarnar á Norðurlöndunum hafa óskað eftir að fá þessa dagskrá til sýningar, og verður hún sýnd þar á haustdögum. Þá var einnig kynnt söng- dagskráin Söngvaseiðir, þar sem íslenskir einsöngvarar koma fram og Björn Emils- son stjórnaði upptöku á og verða kaflar úr henni sýndir hjá frændum okkar. Jafn- framt mun flutningur Þursa- flokksins á Saemundi Klem- enssyni, sem íslenski dans- flokkurinn dansaði og var tekinn upp fyrir nokkrum ár- um, verða sýndur um Norður- lönd. Sprækustu unglingarnir æfa í gær hófst í Reykjavík keppni úrvalsliða landshlut- anna í 3. og 4. flokki í knatt- spyrnu. Keppnin er liður í undir- búningi fyrirval á liði íslands sem tekur þátt I Norðurlanda- móti drengjalandsliða sem fram fer í Vesterás í Svíþjóð í sumar og fyrir val á leik- mönnum í Knattspyrnuskóla KSÍ í haust. Alls verða þarna saman komnir um 150 leik- menn sem tilnefndir hafa ver- ið af félögum hvaðanæva af landinu. Fjögur lið verða valin til keppni úr hvorum flokki, þannig að eitt kemur frá Reykjavik (lið A), eitt frá UMSK-svæði (lið B), eitt frá Suðurnesjum, Suður- og Suð- vesturlandi (lið C) og eitt frá Norðurlandi, að viðbættum Vestfjörðum og Austfjörðum (lið D). Keppnin hefst í dag kl. 9.45 á gervigrasvellinum í Laugar- dal, en keppnin verður endur- tekin fyrir norðan 18. og 19. júní. Þjálfari drengjalandsliðs- íns er Lárus Loftsson, sem hefur sinnt unglingastarfi um árabil, en aðstoðarþjálfari er Jón Þór Brandsson. AUGLYSING Um lausar stöður veiöieftirlitsmanna Sjávarútvegsráöuneytiö óskar aö ráða veiöieftirlits- menn. Umsækjendur sem til greina koma þurfa að uppfylla eftirfarandi skilyröi: 1. Hafa lokiö fiskimannaprófi II. stigs. 2. Hafa starfað sem yfirmenn á fiskiskipi. 3. Hafa þekkingu á öllum algengustu veiðum og veiðarfærum. 4. Æskilegur aldur 30-50 ára. Umsóknir þurfa aö hafa borist ráöuneytinu fyrir 15. júní n.k. og skal þar greina aldur, menntun og fyrri störf. Sjávarútvegsráðuneytið, 18. maí 1988. Frá Menntaskólanum við Hamrahlíð Innritun nýnema í öldungadeild fer fram í skólanum 24., 25. og 26. maí kl. 15-19 gegn greiðslu 1000 krónur staófestingargjalds. Rektor. Gerið skil vorhappdrætti Krata Dregið var í happdrættinu 10. maí s.l. þar sem ennþá hafa ekki verið gerö skil á útsendum miðum, eru vinningsnúmer geymd hjá Borgarfógetanum í Reykjavík. Þau veröa birt þann 27. maí n.k. Skrifstofa Alþýðuflokksins

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.