Alþýðublaðið - 21.05.1988, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 21.05.1988, Blaðsíða 8
8 Laugardagur 21. maí 1988 úr sér og eigandinn kannski kominn á aldur, gæti hann selt sinn kvóta og hann þannig sameinast öðru skipi. I dag er þrýstingurinn á end- urnýjun flotans vegna þess að menn halda að í framtið- inni fái þeir að veiöa meira vegna þess að þeir eru með betri báta og afkastameiri en áður.“ Göslarahugsunarháttur — Gætir sömu vantrúar hjá ykkur sem öðrum á að hlutirnir haldist og annars staðar i samfélaginu? „Já, mér finnst algjör óþarfi að láta ríkja óvissu hér. Svæðatakmarkanirnar eru til þess að hindra veiðar I smáfisk og hrygningarfisk og kvótakerfiö á að vera þannig að það séu hagsmunir sjó- manna og útgerðarmanna að auka verðmæti fisksins úr sjónum. Það þarf að breyta ríkjandi göslarahugsunar- hætti.“ — Minnkar flotinn nokkuð ef kvótinn flyst á milli þó að bátar gangi úr sér? „Við sjáum hvað er að ger- ast. Þeir sem hafa verið að missa báta hafa keypt þá inn- anlands án þess að kvóti hafi fylgt með. Þannig þjappast veiðiheimildir saman. Það verður aldrei friður um minni flota nema menn hafi hag af því sjálfir. Kapphugs- unarhátturinn sem fylgir sóknarkvótanum verður að víkja fyrir þvi að menn geri sem best úr því sem má fiska. Við skulum ekki gleyma því að kvótanum var komið á, þegar afli dróst saman. Menn þurfa að kornast út úr gamla hugsunarhættinum um að Bretinn veiói fiskinn ef við veiðum hann ekki sjálf.“ — Viltu aö sóknarkvótinn hverfi alveg? „Já.“ — Er þá ekki veriö að afhenda aðilum aðgang að verðmætum? „Það er ekkert óeðlilegt að þeir sem hafa fjárfest í at- vinnutækjum njóti þess. Þeir eiga líka að fá að gera það á hagstæðasta máta, og ég treysti engum betur en sjó- mönnum og útgerðarmönn- um að ganga skynsamlega um fiskistofnana." Það liggur í augum uppi „Ég sé fyrir mér að í vinnslunni verði annars vegar tiltölulega stór fyrirtæki eins og Grandi og Útgerðarfélag Akureyrar og hins vegar lltii fyrirtæki. Rekstur frystihúSs sem vinnur fisk úr einum togara og hefur enga gámamögu- leika verður mjög erfiður í samanburði viö fyrirtæki í dreifðri vinnslu sem getur staðið i gámaútflutningi til sérhæfingar. Slíkt fyrirtæki skilar mjög góðum arði.“ — Viltu hafa útgerð og fiskvinnslu á einni hendi? „Já, eða menn kaupi á fisk- mörkuðum og nýti sér þann- ig sérhæfingu." — Menn hafa fyrirmynd af hagnaöi i útgerð og vinnslu af Utgerðarfélagi Akureyr- inga.. „Þeir hafa stýrt vinnslu og veiðum saman, og skila hagnaði á sama gengi og aðrir. Þeir eru að fá sömu dollarana fyrir veiðina eins og aðrir og greiða starfsfólki launauppbót á sama tíma og aðrir berjast í bökkum. Aðrir hljóta þá að spyrja sig: Hvað getum við gert til þess að ná sömu afkomu og þeir eru að ná? Það liggur í augum uppi.“ — Ef þú litur til Vest- mannaeyja, eru þá ekki allt of mörg fyrirtæki hér? „Jú, en það kemur alltaf að því sama hvernig ætla menn að breyta hlutunum og bæta hag fyrirtækjanna. Fjárfest- ingin er til staðar." _ — Þú sérö ekki fyrir þér sameiningu eins í Granda t.d.? „Það liggur Ijóst fyrir að menn verða að skoða málin. Það verður kannski ekki meiri sameining, heldur sérhæfing. í Granda er í öðru húsinu unninn karfi og í hinu bol- fiskur og það er þetta sem menn verða að hugsa um á stöðum eins og hér í Eyjum.“ — Hver á að hafa frum- kvæði að breytingum? „Við sjáum breytingarnar alls staðar í þjóðfélaginu. Þær eru að eiga sér stað. Efnahagsmálin eru öll að breytast. Við raunvexti urðu fyrirtæki að endurgreiða lán með réttum krónum en ekki lengur með litlum krónum. Þetta gerir allt aðrar kröfur til stjórnenda fyrirtækja hvernig fjármagnið er notað. Áður fyrr gátu menn gert regin- skissur án þess að það setti menn út af laginu — svo kom gengislækkun einhvern tíma seinna og þurrkaði lánið út. Umræðan um kaupfélögin, Álafoss og iðnaðardeild Sam- bandsins sýnir glöggt að um- ræðan er á öðrum nótum en áður. Það er greinilegt að það er ákveðinn vendipunktur al- mennt í atvinnulífi." — Er ekki fjárfestingin í verslun á Reykjavíkursvæð- inu þvert á þessa skoðun þina um breytta hugsun i at- vinnulífinu? „Það er bara ekki komið aö þeim. Og ég held að verslun- in í Reykjavík sé ekki þessi dans á rósum sem menn úti á landi vilja vera láta. Deilan í VR leiddi það í Ijós að kjör fólks í stórmörkuðunum voru ekki betri en í fiskvinnslunni. Kaldur raunveruleikinn tek- ur þar við sem annars staðar í atvinnulífinu, — og þá tekur almannavaldið ekki við eins og Byggðasjóður hefur gripið inn í víða úti á landi. Þaö er best að menn beri sjálfir ábyrgð á því sem þeir gera.“ Lán Byggðasjóðs mesta böl fyrir útgerð og fiskvinnslu — Sérðu að fólk og fyrir- tæki geti boriö ábyrgð ein án þess að ríkið gripi inn, ef út af bjátar? „Þessi ríkistrygging þarf að hætta. Ég held að eitt- hvert mesta böl fyrir útgerð og fiskvinnslu á landsbyggð- inni sé að Byggðasjóður skuli lána til útgerðar og fisk- vinnslu. Það þýðir að stjórn- endur gera ekki ráðstafanir til að tryggja rekstrargrundvöll heldur er einhver sjóður lát- inn útvega lánsfé til þess að hægt sé að halda áfram tap- rekstri — og það þýðir líka að stjórnendur gera ekki ráð- stafanir sem þyrfti aö gera vegna utanaðkomandi að- gerða, þar sem mönnum eru gefnir peningar. Á lista Byggðastofnunar yfir fyrir- tækin sést að ár eftir ár eru þetta sömu fyrirtækin. Þetta eru smáskammtalækningar fram og til baka, og þetta er ein ástæða þess að fisk- vinnsla á í vök að verjast. Fyrirtæki þurfa að vera rekin með hagnaði, og sveitarfé- lögum er ekkert gagn í þess- um fyrirtækjum, ef þau geta ekki borgað fólki gott kaup og gjöld til sveitarfélaganna." — Er ekkert til í því aö fyrirtækin gengu ekki viða úti á landi, ef ekki væri þessi að- gangur að ódýru lánsfé? „Eg held að þetta mismuni bara fyrirtækjum. Sum eiga rétt og önnur ekki. Mér finnst eðlilegra að öll fyrirtæki fái lán gegnum sína banka. Þá neyðast stjórnmálamenn og stjórnendur fyrirtækja til að láta fyrirtækin ganga þannig að þau skili hagnaði." — Nú heyrast þær raddir að byggðastefnan sem trygg- ir byggð í öllu landinu sé úrelt. Þéttari byggð sé nauð- synleg. Mun ekki sú grisjun í byggð sem afleiðing af fisk- veiðistefnunni eiga sér stað sjálfkrafa? „Það er erfitt að segja fólki að flytja af stað, en ég held að það sé æskilegra að þjappa byggð saman. Eins og nú er finnst manni víða von- laust og allir tapi í barátt- unni. Félagslegar aðstæður eins og skólar og þjónusta við fyrirtæki krefst ákveðinn- ar byggðar, og það er greini- legt að fólk er að gefast upp á þessu." Sameiginlegir hagsmunir „Það er miklu æskilegra að taka allar atvinnugreinar und- ir eitt og hugsa um starfs- skilyrði þeirra i einu lagi. Samstaða atvinnugreina er lika miklu meiri en menn ætla. Auðvitað hefur t.d. at- vinnurekstur í landinu hag af ódýrri orku, en ekki bara sjáv- arútvegur. Hið sama á við um samgöngur til dæmis. Hagsmunir atvinnulífsins eru betur tryggðir saman en í sundrungu sem nú ríkir.“ — Er skynsamlegt að hugsa þetta land sem eitt, hafa sama orkuverð um allt, simakostnað o.s.frv.? „Það er dýrara að rafvæða á stað með hundraö manns en þar sem 5 þúsund eru fyrir og þá er alltaf spurning hver borgar brúsann. Framleiðendur sem flytja út geta ekki velt orkuverði út í verðlagið, því að erlendir kaupendur vilja að sjálfsögðu ekki taka þátt í að jafna orku- verð á íslandi — en raf- magnsverð til iðnaðar hér á landi er með því allra hæsta i Evrópu. Ég held að það sé hættu- legt að jafna starfsskilyrðin með því að blekkja með gjaldskrám. Meö því móti er hvatt til sóunar. í stað þess á að styrkja byggöarlög beint. Það er blekking ef kostnaður- inn er ekki látinn koma beint fram." Bakslag við gengisfellinguna — Hvernig list þér á landsstjórnina? „Það er erfitt að stjórna landinu í þriggja flokka stjórn. Þær eru veikar og erfiðara að taka á málum." — Finnst þér það jákvætt sem hefur verið gert í efna- hagsmálum? „Mér finnst þaö. Það er já- kvætt að koma á stað- greiðslu skatta og það er já- kvætt að breyta tollum og láta allar vörur bera sölu- skatt, og það er jákvætt að taka upp virðisaukaskatt. Ég held að rnenn séu að mörgu leyti á réttri leið, en hvort menn hafa tíma eða úthald til að halda út er annað mál. Menn koma alltaf að því sama í efnahagsmálum að menn eyða ekki meiru en aflað er. Ef menn byggja flug- stöð fyrir tvo og hálfan millj- arð verða einhverjir að vinna fyrir henni." — Hafa menn úthaldið eft- ir gengisfellinguna? „Ég er voða hræddur um að við lendum í veróbólgunni aftur. Aðhaldið sem stjórn- málamenn þurfa að fá og vilja hafa, hverfur að nýju. Við það að verðbólgan fór þó niður byrjaði fólkið að átta sig á því hvað hlutirnir kosta." — Heldurðu að komi bak- slag við gengisfellinguna? „Ég er mjög hræddur um það.“ Eitthvert mesta böl fyrir útgerð og fiskvinnslu á lands- byggðinni að Byggða- sjóður skuli lána til útgerðar og fiskvinnslu

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.