Alþýðublaðið - 21.05.1988, Síða 5
Laugardagur 21. maí 1988
FRETTIR
Efnahagsráðstafanir á síðustu stundu
NYJflR SATTATILLOGUR
BJÖRGUÐU STJÓRNINNI
Eftir ágreining og ströng
fundahöld síðustu daga náði
ríkisstjórnin saman um efna-
hagsaðgerðir í gær, en Þor-
steinn Pálsson forsætisráð-
herra var búinn aö lýsa því yf-
ir að annað hvort væri að
duga eða drepast. Það voru
sáttatillögur sem fram komu
síðasta sólarhring sem björg-
uðu stjórninni.
Samhliðavoru gefin út
bráðabirgðalög um ráðstafan-
ir í efnahags- og kjaramálum,
sem miða að því að gengis-
breyting krónunnar 11. maí sl.
skili tilætluðum árangri. Með
lögunum eru launahækkanir
umfram 10% á tímabilinu
31/12 ’87 til 1/6 1988 bannaðar
og fram að 1. september
mega laun ekki hækka meira
en 2,5%. Skattleysismörk
hækka strax 1. júní í 46 þús-
und kr.
í bráðabirgöalögunum er
einnig kveðið á um heimild
Seðlabanka að ákveða að lán
til skemmri tíma en tveggja
ára verði óverðtryggð og verð-
bréfasjóðir verði skikkaðirtil
að kaupa ríkisskuldabréf fyrir
20% af aukningu ráðstöfun-
arfjár þeirra.
Með sáttatillögunni verða
kjarasamningar sem gerðir
hafa verið og launahækkanir
annarra hópa takmarkaðar.
Ellilífeyrir og aðrar bætur
Almanna trygginga hækka
um 10% 1. júní og persónu-
afsláttur hækkaður 1. júní,
sem hækkar skattleysismörk
í 46 þúsund krónur.
Verðlagseftirlit verður hert
og hækkanir á gjaldskrám
ríkisfyrirtækja háðar sam-
þykki ríkisstjórnarinnar.
Nefnd verður m.a. falið að
undirbúa lagasetningu um að
vextir af verðtryggðum lánum
verði fastiren ekki breytilegir
og svo virðist sem ríkis-
stjórnin stefni að því að
afnema verðtryggingu af lán-
um.
Ríkisstjórnin ætlar að
leggja fram á þingi í haust
frumvarp um starfsemi verð-
bréfasjóða, sérstaklega með
tilliti til þess að skattlagning
fjármagns- og eignatekna
verði í samhengi við aðra
skatta í landinu.
Um ríkisútgjöld segir að
þau verði ekki hækkuð meira
en nemur launahækkunum.
Stefnt er að því að engin
erlend lán veröi tekin á árinu
1989 og jöfnuði náð í ríkis-
búskapnum á því ári.
Fyrirtækjum í útflutnings-
greinum verður heimilt að
taka allt að 800 milljóna
króna lán erlendis til fjár-
hagslegrar endurskipulagn-
ingar. Þá verður Byggðastofn-
un heimilað að verja 200
milljónum króna af erlendu
lánsfé til að styðja endur-
skipulagningu fyrirtækja.
Jöfnunarsjóður sveitarfélaga
fær 40 milljónir króna auka-
lega til aðstoðar sveitarfélög-
um í erfiðleikum.
Talið er að yfirvofandi
stöðvun í álverinu í Straums-
vik hafi sett mikla pressu á
ríkisstjórnina að Ijúka málum
í gær. Þegar Alþýðublaðið fór
í prentun í gærkvöldi höfðu
álversmenn enn ekki samið
og útlit var fyrir að þeir
fengju á sig bráðabirgðalög.
Yfirlýsing ríkisstjórnarinnar
er birt í heild á blaðsíðu 9 í
blaðinu í dag.
Þorsteinn Pálsson forsætisráðherra kynnti efnahagsráðstafanirnar strax að loknum fundi rikisstjórnarinnar
í gær.
H vítasunnu veðrið:
SÓLARLAUST UM ALLT LAND
Hvítasunnuveörið verður
svipað um allt land, sunnan-
átt og sólarlaust. Búist er við
rigningu á Suðurlandi.
Samkvæmt upplýsingum
frá Veðurstofu íslands verður
sunnan- og suðvestanátt um
allt land en hægari norðan-
og austanlands. Tiltölulega
þurrt verðúr og jafnvel alveg
þurrt norðan- og norðaustan-
lands. Það má búast við ein-
hverri úrkomu hér sunnan-
Arnarflug;
ATLANTICA KAUPIR HLUT
Hlutafé hefur verið aukið í
Arnarflugi h.f. og hefur þýskt
fyrirtæki, Atlantica keypt
25% af heildarhlutabréfum.
Að sögn Magnúsar Odds-
sonar, markaðstjóra Arnar-
flugs var ákveðið á síðasta
aðalfundi Arnarflugs að auka
hlutafé. Það hefur nú verið
gert og keypti þýska fyrirtæk-
ið Atlantica 25% af heildar-
hlutafénu.
lands næstu daga. Sólarlaust
verður víðast hvar en hitastig
mun hækka um nokkrar gráð-
ur.
Lögreglan um hvítasunnuna:
HERT EFTIRLIT
Lögreglan í Reykjavík og
bifreiðaeftirlitið verða með
aukið eftirlit nú um hvíta-
sunnuhelgina, fyrstu stóru
ferðahelgina i sumar. Þjóð-
vegalögreglan verður með
eftirlit á þjóðvegum og til
styrktar henni verður þyrla
landhelgisgæslunnar.
Lögreglan í Reykjavík mun
leggja áherslu á að fylgjast
með umferð um Suður- og
Vesturlandsveg. Hún mun
vinna í samstarfi með bif-
reiðaeftirlitinu og m.a. verða
skyndiskoðanir fyrir og um
helgina.
Þjóðvegalögreglan verður
með eftirlit á þjóðvegunum
og til styrktar heni verður
þyrla landhelgisgæslunnar.
Hún verður notuð til að fylgj-
ast með umferðarstreyminu,
hvar fólk kann að safnast
saman og auk þess munu
verða farnar eftirlitsferðir inn
yfir hálendið.
Öryrkjabandalagið:
MÓTIHÆUR SÖLUSKATTI Á HJÁLPARTÆKI
Afruglarar Stöðvar 2 undanþegnir söluskatti, en ýmis hjálpartœki fatlaðra ekki.
Öryrkjabandalag íslands
hefur sent ráðherrum ríkis-
stjórnarinnar bréf þar sem
álagningu á hjálpartæki fatl-
aðra er mótmælt, en hefur
ekki fengist leiðrétting, þrátt
fyrir ítrekuð samtöl viö fjár-
málaráðuneytið. Segist Helgi
Seljan félagsmálastjóri
bandalagsins ekki trúa öðru
en að um handvömm sé að
ræða. Hefur bandalagið bent
á tvær leiðir í þessu máli þar
sem hjálpartæki sem samtök
fatlaðra viðukenndu yrðu
undanþegin söluskatti eða
að innflytjendur tækjanna
skrifuðu upp á skuldarviður-
kenningu fyrir söluskatt sem
ekki yrði innheimtur.
Á blaðamannafundi sem
Öryrkjabandalag (slands hélt
í gær, kynntu Arnþór Helga-
son formaður bandalagsins,
Helgi Seljan félagsmálastjóri,
Ólöf Ríkarðsdóttir varafor-
maður og Ásgerður Ingimars-
dóttir framkvæmdastjóri bréf
sem bandalagið hefur sent
ráðherrum rikisstjórnarinnar.
í því er mótmælt álagningu
söluskatts á hjálpartæki fatl-
aðra, en þau hafa samkvæmt
hefð undanfarin áratug verið
undanþegin söluskatti. Segir
að í síðasta mánuði hafi tveir
fulltrúar bandalagsins farið á
fund Jóns Baldvins
Hannibalssonar fjármálaráð-
herra til að útskýra málið fyr-
ir honum. Sagðist Helgi Selj-
an ekki trúa öðru en að um
handvömm væri að ræða, að
málið skuli ekki hafa verið
leiðrétt. „Ég held að hér sé
ekki um ásetningarsynd að
ræða, heldur hafi menn ekki
gert sér grein fyrir hve mikil-
vaegt þetta er.“
í stað þess að hjálpartæk-
in verði undanþegin sölu-
skatti, er áætlað að opinber-
ar stofnanir sem flytja þau
inn, fái aukafjárveitingu til að
mæta þessum viðbótarkostn-
aði. Einnig hefur komið til
tals aö endurgreiða sölu-
skattinn siðar, en Öryrkja-
bandalagið segir að fjárútlát
einstaklinga vegna hjálpar-
tækja séu slík, að þeir fá ekki
risið undir þeim kostnaði
sem bið eftir endurgreiðslu
hefði í för með sér.
Öryrkjabandalagið hefur
bent á tvær leiðir til lausnar
þessu máli. Annars vegar
væri um reglugerð að ræða
yfir hjálpartæki sem samtök
fatlaðra viðurkenndu yrðu
skattlaus, og hins vegar að
innflytjendur hjálpartækja
skrifuðu upp á skuldarviður-
kenningu fyrir söluskatt sem
væntanlega yrði ekki inn-
heimtur.
„Ástæðan fyrir því að við
gripum til þessara örþrifa-
ráða að ná samvinnu við fjár-
málaráðuneytið er sú, að
nokkrar opinberar stofnanir
s.s. Heyrna- og talmeinastöð
íslands, Sjónstöð íslands og
Blindrabókasafnið hafa gert
sínar fjárhagsáætlanir, og
þær voru ekki miðaðar við að
greiða söluskatt af þeim vör-
um sem þessar stofnanir
þurfa að útvega sínum skjól-
stæðingum", sagði Arnþór
Helgason. Þá kom fram á
fundinum að fjármálaráð-
herra hafi verið bent á, að
óeðlilegt væri að afruglarar á
Stöð 2 væru undanþegnir
söluskatti, á meðan segul-
bandstæki sem blindir þurfa
á að halda og heyrnarhjálpar-
tæki væru háð skattinum.
Almennur notkunartími
sem heyrnadaufir þurfa að
nota textasima þá er f notkun
eru, hefur verið mældur og
kom í Ijós að þeireru 6 sinn-
um lengur en almennir slm-
notendur, en þurfa þó að
greiða sama skrefagjald.
Stjórn Öryrkjabandalagsins
fagnar því að söluskattur af
iðgjöldum bifreiðatrygginga
fatlaðra skuli vera endur-
greiddur, og sagði Arnþór að
öryrkjar yllu færri umferðar-
slysum en aðrir miðað við
fjölda. „Það er þvi um arð-
bæran hóp að ræða, þannig
að það er ekki allt slæmt við
þennan hóp.“