Alþýðublaðið - 21.05.1988, Side 9
.0.00► im '■o iim.í’nRrcisí i
Laugardagur 21. maí 1988
YFIRLÝSING RÍKISSTJÓRNARINNAR
UM AÐGERÐIR í EFNAHAGSMÁLUM
Ríkisstjórnin hefur ákveöiö aögeröir i efnahags-
málum meö það fyrir augum að tryggja aö gengis-
breyting krónunnar 16. mai sl. skili tilætluðum
árangri viö aö skapa undirstöðugreinum atvinnu-
lifsins viöunandi rekstrarskilyrði, hamla gegn
sjálfvirku víxlgengi verölags, gengis, launa- og
fjármagnskostnaöar, og leggja grunn aö jafnvægi
í efnahagslifinu. Meö aögeröum ríkisstjórnarinnar
er tryggt samræmi í launaþróun, kaupmáttur
lægstu launa varinn og dregiö úr veröbólguáhrif-
um gengisbreytingarinnar.
I. Aðgerðir til að treysta afkomu
atvinnuvega og atvinnuöryggi á
lan dsbyggðinni
1. Lækkun á gengi krónunnar um 10% hinn 16.
maí sl. miðar aö því aö bæta hag útflutnings- og
samkeppnisgreina og fyrirtækja í sjávarútvegi, af-
stýra stöðvun atvinnurekstrar og treysta atvinnu-
öryggi á landsbyggðinni.
2. Fyrirtækjum í útflutnings- og samkeppnisgrein-
um verður heimilað að taka allt að 800 m.kr. að
láni erlendis til fjárhagslegrar endurskipulagning-
ar annað hvort beint eða fyrir milligöngu banka.
Leyfin til þessara lána verða veitt samkvæmt til-
lögum þeirra viðskiptabanka sem -þjóna þeim
fyrirtækjum sem í hlut eiga. Auk þessa hefur
Byggðastofnun verið heimiluð 200 m.kr. lántaka
erlendis til að styðja fjárhagslega endurskipulagn-
ingu fyrirtækja. Skapað verður svigrúm til þessar-
ar lánafyrirgreiðslu með aðhaldi að lántökum til
fjárfestingar.
3. Nefnd um Veröjöfnunarsjóð fiskiðnaðarins
verður gert að hraða störfum og skila tillögum um
ráðstöfun innstæðna þeirra greina sem greitt hafa
verulegar fjárhæðir í sjóðinn á undanförnum
misserum.
4. Veitt verði aukafjárveiting til Jöfnunarsjóðs
sveitarfélaga 40 m.kr. til þess að treysta fjárhag
sveitarfélaga á landsbyggðinni sem eiga I fjár-
hagserfiðleikum.
II. Aðgerðir til að verja kaupmátt lœgstu
launa og draga úr launamun
1. Tryggt verður með lagasetningu að kjarasamn-
ingarnir sem gerðir hafa verið við þorra launafólks
verði varðir og launahækkanir hópa sem hafa
lausa kjarasamninga fari ekki fram úr hækkun
launa í samningum Verkamannasambandsins, iðn-
verkafólks og verslunarmanna eða raski forsend-
um_þeirra að öðru leyti.
2. Ákvörðun um láglaunabætur og afnám vísitölu-
viðmiðana í kjarasamningum verðurtekin í tengsl-
um við niðurstöður nefndar, sem fjallar um láns-
kjaravísitölu og lækkun-vaxta af verðtryggðum
lánum og kemur til framkvæmda samtímis.
3. Ellilífeyrir og aðrar bætur almannatrygginga
hækka um 10% 1. júní 1988.
4. Hækkun persónuafsláttar verður flýtt til 1. júní,
þannig að skattleysismörk hækki I 46 þúsund
krónur á mánuði.
III. Aðgerðir til að auka verðlagsaðhald
og verðsamanburð
1. Hert verður á eftirliti með verðlagsþróun. Upp-
lýsingar um verðsamanburð af hálfu opinberra
aðila verða birtar reglulega og látnar ná til dreif-
býlisverslunar í auknum mæli.
2. Hækkanir á gjaldskrám ríkisfyrirtækja verða
háðar samþykki ríkisstjórnarinnar.
3. Hækkun á gjaldskrám sérfræði- og þjónustu-
stétta fari ekki fram úr hækkun launa eins og lög
kveða á um. Sömu takmarkanir gilda um gjald-
skrár útseldrar vinnu.
4. Verðhækkanir i greinum þar sem samkeppni er
áfátt verða sérstaklega takmarkaðar.
IV. Aðgerðir til að draga úr
fjármagnskostnaði og jafna
starfskjör fjármálastofnana
1. Tryggt verður að verðbréfasjóðir taki þátt í inn-
lendri fjármögnun rikissjóðs með sambærilegum
hætti og innlánsstofnanir. Þannig verji sjóðirnir
20% af aukningu ráðstöfunarfjár frá 1. jan. 1988 til
kaupa á ríkisskuldabréfum.
2. Rfkisstjórnin hefur ákveðið að komið verði í
veg fyrir alvarlegt misgengi launa og lánskjara og
hefur falið nefnd sem fjallar um fyrirkomulag á
verðtryggingu fjárskuldbindina að skila tillögum
um hvernig þessu markmiöi verði náð.
3. Ríkisstjórnin hefur ákveðið að frá 1. júlí 1988
verði óheimilt að binda fjárskuldbindingar til
skemmri tíma en tveggja ára við hvers kyns vísi-
tölur. Nefnd sem fjallar um verðtryggingu fjár-
skuldbindinga hefur verið gert að skila tillögum
um frekari áfanga I afnámi verðtryggingar þar sem
m.a. verði höfð hliðsjón af verðlagsþróun.
4. Rikisstjórnin hefur falið nefnd um verðtrygg-
ingu fjárskuldbindinga að undirbúa nauðsynlega
lagasetningu þess efnis, að vextir af verðtryggð-
um lánum verði fastir en ekki breytilegir, og þeir
lækki til samræmis við það sem gerist í helstu
viðskiptalöndum. Nefndinni hefur verið gert að
hraða störfum sínum svo sem unnt er og skila
greinargerð eigi siðar en 1. júlí n.k.
5. Með því að stuðla að minnkandi verðbólgu,
bættri stöðu ríkissjóðs og betra jafnvægi í pen-
ingamálum mun ríkisstjórnin jafnframt skapa skil-
yrði fyrir lækkandi raunvöxtum. Ríkisstjórnin mun
hvetja Iífeyrissjóði, viðskiptabanka og sparisjóði,
og aðra aðila á fjármagnsmarkaðinum til að gera
sitt til að raunhæfur árangur náist I þessu efni.
Seðlabankanum verður falið að fylgjast náið með
vaxtaþróuninni og vinna að því að þessu mark-
miði verði náð.
6. Ríkisstjórnin mun beita sér fyrir lækkun vaxta-
munar hjá bönkum og sparisjóðum og mun fela
Seðlabankanum að vinna að þvi að þessu mark-
miði verði náð.
7. Ríkissjórnin mun í upphafi næsta þings leggja
fram frumvörp um starfsemi verðbréfasjóða, fjár-
mögnunarleigufyrirtækja og annarra fjármálafyrir-
tækja utan bankakerfisins og stuðla þannig að
samræmingu starfskjara á fjármagnsmarkaði.
V. Aðgerðir til að draga úr erlendu lánsfé
til fjárfestinga og samrœma
skattmeðferð fjármögnunar
1. Dregið verði úrerlendum lántökum til fjárfest-
inga og krafist aukinnar innlendrar fjármögnunar.
2. Lagt verður fram á haustþingi frumvarp um að
skattmeðferð greiðslna vegna fjármögnunarleigu
verði breytt þannig að skattalegu hagræði af-
skriftareglna umfram aðrar fjármögunarleiðir verði
ekki til að dreifa.
3. Ríkisstjórnin áréttar það ákvæði stjórnarsátt-
málans að athuguð verði skattlagning fjármagns-
og eignatekna og samhengi slíkrar skattlagningar
og eignarskatts og skatta af öðrum tekjum.
VI. Aðgerðir til að auka aðhald að
ríkisútgjöldum
1. I því skyni að tryggja hallalausan ríkisbúskap á
árinu 1988 verði framlög úr rikissjóði til ráðuneyta,
stofnana og ríkisfyrirtækja einungis hækkuð að
þvi marki sem rekja má aukna fjárþörf til meiri
launahækkana á þessu ári en gert er ráð fyrir I
fjárlögum ársins 1988.
2. Stefnan viö fjárlagagerð fyrir árið 1989 miðist
við að jöfnuður verði í ríkisbúskapnum á því ári.
Þessu markmiöi verði náö m.a. með því að draga
úr lögbundinni sjálfvirkni rikisútgjalda. Rikis-
stjórnin ítrekar það markmið stjórnarsáttmálans
að ríkisútgjöld vaxi ekki örar en þjóðarframleiðsla.
3. Undirbúningur lánsfjárlaga miðist við að ríkis-
sjóður taki engin erlend lán á árinu 1989. Dregið
verði úrerlendum lántökum opinberra aðila, sjóða
og einkaaðila i þvi skyni að ná marktækum
árangri við að draga úr viðskiptahalla og erlendri
skuldasöfnun.
VII. Aðgerðir til að auka hagkvœmni í
atvinnurekstri og stuðla að
markvissri byggðaþróun
1. Ríkisstjómin mun skipa ráðgjafanefnd til þess
að benda á nýjar leiðir til að auka hagkvæmni í
rekstri íslenskra fyrirtækja. Jafnframt verður skip-
uð nefnd til að skila tillögum um aðgerðir í
byggðamálum á grundvelli athugunar Byggða-
stofnunar um það efni.
2. Endurskoðun fiskveiðistefnunnar verði hraðað.
Settar verði markvissar reglur um útflutning á
ferskum fiski. Framleiðslustjórn í landbúnaði og
búvörusamningurinn verði endurskoóuð í sam-
ræmi við stjórnarsáttmálann.
Reykjavík, 20. mai 1988
BRÁÐABIRGÐALÖGIN
Samkvæmt stjórnarskránni þarf brýna nauðsyn að
bera til svo hægt sé að gefa út bráðabirgöalög. Þaö
voru handhafa forsetavaldsins sem undirrituðu lögin i
gær vegna fjarveru Vigdisar Finnbogadóttur forseta ís-
lands. I formála að lögunum segir að brýna nauðsyn
beri til að tryggja aö gengisbreyting krónunnar hinn 11.
mai s.l. beri tilætlaðan árangur við að skapa undir-
stöðugreinum atvinnulifsins viðunandi rekstrarskilyrði
og leggja grunn að jafnvægi í efnahagslífinu. Til þess
að þessu markmiði verði náð sé nauðsynlegt að tryggja
að forsendur kjarasamninga þeirra sem þorri launafólks
hefur gert verði ekki raskað. Bráðabirgðalögin eru eftir-
farandi:
1- gr.
Um lausa kjarasamninga við gildistöku laga þess-
ara.
Launataxtar og kjaratengdir liðir slðast gildandi kjara-
samninga skulu hinn 1. júnl 1988 hækka um það sem á
kann að vanta 10% hækkun frá 31. desember 1987 að
telja.
2. gr.
Um gildandi kjarasamninga við gildistöku laga
þessara.
Laun skv. gildandi kjarasamningum skulu hækka á
sama hátt og segir í 1. gr. nái þau ekki tilgreindum
hækkunum.
3. gr.
Um áfangahækkanir launa.
Hinn 1. september 1988 skulu laun skv. 1. gr. og gildandi
kjarasamninga hækka um það sem á kann að vanta
2,5% hækkun á tímabilinu frá 1. júní til 31. ágúst 1988.
Hafi hluti þeirrar hækkunar, sem almennt hefur um
samist komið til greiðslu fyrir upphaf þessa tímabils
hækki kaup í samræmi við ákvæði þar um gildandi
kjarasamninga á tímabilinu 1. júni til 31. ágúst 1988.
Hinn 1. desember 1988 skulu laun skv. 1. gr. og skv. gild-
andi kjarasamningum hækka um 1,5% og aftur um
1,25% hinn 1. marz 1989.
4. gr.
Verðlagsgrundvöllur landbúnaðarvara.
Fjárhæðir launaliða í verðlagsgrundvelli búvöru skulu
taka þeim hækkunum sem mælt er fyrir i 1. og 3. gr.
5. gr.
Gjaldskrár sjálfstætt starfandi sérfræðinga og
þjónustuaðila.
Fjárhæðir launaliða f gjaldskrám sjálfstætt starfandi
sérfræðinga svo sem tannlækna, verkfræðinga og
tölvufræðinga skulu ekki hækka meira en greinir í 1. og
3. gr. Sama gildir um hvers kyns þjónustuaðila.
6. gr.
Þrátt fyrir ákvæði 9. gr. laga um Seðlabanka Islands nr.
36, 1986 er Seðlabankanum heimilt að ákveða að verð-
trygging nýrra fjárskuldbindinga til skemmri tífna en 24
mánaða verði óheimil.
7. gr.
Um skuldabréfakaup verðbréfasjóða.
Seðlabanka íslands er heimilt að ákveöa að starfandi
verðbréfasjóðir verji 20% af aukningu sjóðanna frá gild-
istöku laga þessara til kauþa á markaðsverðbréfum rík-
issjóðs.
8. gr.
Um gjaldskrár opinberrar þjónustu
Á gildistima laga þessara er óheimilt að hækka gjald-
skrár oþinberrar þjónustu án samþykkis ríkisstjórnar-
innar.
9. gr.
Um hækkun persónuafsláttar i tekjuskatti.
Þrátt fyrir ákvæði 121. gr. laga nr. 75, 1981 um tekjuskatt
og eignarskatt sþr. lög nr. 49, 1987 skal hækkun
persónuafsláttar flýtt, þannig að hún komi til fram-
kvæmda 1. júní 1988 i stað 1. júli s.á.
10. gr.
Um gerðardóm
Rísi ágreiningur um túlkun á ákvæðum laga þessara við
framkvæmd kjarasamninga einstakra starfsgreina geta
verkalýðsfélög eða vinnuveitendafélög vísað honum til
úrskurðar sérstaks gerðardóms.
Gerðardómurinn skal skipaöur þremur mönnum. Skal
hvor aðila kjarasamnings tilnefna einn mann og Hæsti-
réttur hinn þriðja og er hann formaður dómsins. Úr-
skurður gerðardóms er fullnaðarúrskurður.
11. gr.
Ýmis ákvæði
Verkbönn, verkföll, þar með taldar samúðarvinnustöóv-
anir, eða aðrar aðgerðir sem ætlað er að knýja fram
aðra skipan kjaramála en lög þessi mæla fyrir um eru
óheimilar.
Brot á lögum þessum varða sektum. Um meðferð brota
skal fara að hætti opinberra mála.
Lög þessi taka þegar gildi og falla þau úr gildi 10. apríl
1989.
i