Alþýðublaðið - 06.05.1989, Síða 8
8
Laugardagur 6. maí 1989
A Ibvðuflokksfélag Reykjavíkur:
VELHEPPNAÐ
1. MAÍ KAFFI
Alþýðuflokksfélag Reykjavíkur efndi til kaffisamsætis að
Hótel Borg þann 1. mai. Tókst samkoman með miklum ágæt-
um og er talið að um 600 manns hafi litið inn á Borgina þenn-
an fagra og bjarta 1. mai.
Jón Baldvin Hannibalsson, utan-
ríkisráðherra og formaður Alþýðu-
flokksins, Jóhanna Sigurðardóttir,
félagsmálaráðherra og varaformað-
ur Alþýðuflokksins og Jón Sigurðs-
son, viðskipta- og iðnaðarráðherra
fluttu ávörp. Fundarstjóri var
Bjarni P. Magnússon, borgarfull-
trúi.
Hinn óviðjafnanlegi og síungi
Haukur Morthens og félagar iljuðu
gestum um hjartarætur með
gömlu, g/)ðu dægurlögunum. Segia
má að sannkölluð hátíðarstemming
hafi ríkt á Hótel Borg á degi verka-
lýðsins er Alþýðuflokksfélag
Reykjavíkur efndi til kaffisamsæt-
isins.
uvrniiv ivmn UUTMH Oi jt.
1 Stofnaður I 12. mars 1916 m m KÍRF HIA m,
Hér má m.a. sjá Árna Gunnarsson
alþingismann í miklum samræðum
við tvo sendimenn sænska Sósial-
demókrataflokksins.
Hannibal Valdimarsson fyrrum for-
maður Alþýðuflokksins og forseti
ASÍ hellir rjúkandi kaffi i bolla sonar
sins, Jóns Baldvins Hannibalsson-
ar utanrikisráðherra eftir að sá sið-
arnefndi hafði lokið viö ræöu sina.
Eiginkona Hannibals og móöir
Jóns Baldvins, Sólveig Ólafsdóttir,
fylgist með. Eiginkona utanríkis-
ráðherra, Bryndis Schram, var hins
vegar í hrókasamræöum við Magn-
ús Jónsson, veðurfræðing, og ný-
kjörinn formann Alþýðuflokksfé-
lags Reykjavikur. I baksýn Ámundi
Ámundason stjórnarmaður í Al-
þýðuflokksfélagi Reykjavikur.
Setið var við hvert borð i báðum söl-
um og urðu margir að standa um
stund og biða eftir sæti.
[Æ i \
m * 'mm
Ungir sem aldnir gæddu sér á vöfl-
um og drykkjarföngum. í forgrunni
Ingólfur Margeirsson, ritstjóri Al-
þýðublaðsins og Jóhanna Jónas-
dóttir ásamt syni þeirra Jónasi Mar-
geiri. Lengst til hægri Örn Bjarna-
son visnasöngvari meö meiru.
Kaffistund milli striða: Sjöfn Sigur- Júlíusdóttir,
björnsdóttir, skólastjóri, og Lára V. ASÍ.
framkvæmdastjóri
A-mynd/G.T.K.