Alþýðublaðið - 06.05.1989, Blaðsíða 15
'* O ' •
1 »”> ~
• : t » -
Laugardagur 6. maí 1989
ÚTLÖND
Hinn margháttaði Woody Allen
Allen Stewart Koningsberg
fæddist í New York árið 1935.
Það er ekki auð-
velt fyrir hina
fjölmörgu aðdá-
endur Woody
Allen, að segja
eitthvað nýtt um
hann. Það hefur
allt verið sagt
áður. „Anti-
hetjan“, þessi
smávaxni rindill,
með þunnar hár-
lýjur og sorg-
mœdd augu. Allt
þetta virðist höfða
til blíðra tilfinn-
inga, jafnvel
móðurlegra til-
finninga hjá aðdá-
endum hans.
Skrifaði texta
Næst tók hann sér lyrir hendur
að skrifa texta fyrir sjónvarps-
þáttinn „The Gary Moore Show“,
sem var með vinsælli þáttum í
Bandaríkjunum árum saman og í
þeim þáttum hóf gamanleikkon-
an Carol Burnett feril sinn.
Hann varð fljótlega leiður á að
skrifa fyrir aðra og árið 1961 fór
hann að skrifa texta fyrir sjálfan
sig, og með aðstoð góðra vina fór
hann að troða upp í klúbbunum í
Greenwich Village. Á einum þess-
ara klúbba „The Blue Angel “, sáu
leikkonan fræga, Shirley Maelai-
ne og kvikmyndaframleiðandinn
Charles Feldman skemmtiþátt
Allen, og sögðust hafa hlegið sig
máttlaus af tragikonhk hans.
Árangur þessara kynna varð sá,
að Woody Allen bæði skrifaði
handrit og lék, í kvikmyndinni
„Whats New Pussycat". Að þessu
verki loknu, ákvað Allen að verða
Woody Allen.....anti-hetjan“ virð-
ist framleiða kvikmyndir á færi-
bandi.
Þegar hann var 15 ára, tók hann York pressunnar og sendir þær
upp á þvi að senda skrítlur til New undir nafninu Woody Allen.
Skólaganga hans gekk svona og
svona. Að loknu námi í mennta-
skóla, fór hann í New York há-
skólann, en var rekinn fljótlega.
Það sama skeði við City Collage
og New York. Ástæðan fyrir þess-
um brottrekstrum var ■- lélegar
mætingar og léleg frammistaða
þegar mætt var ...
algjörlega sinn eiginn herra. Síð-
an hefur hjólið rúllað stanslaust,
um það bil 20 kvikmyndir frá ár-
inu 1964.
Woody Allen kann best við að
vinna með fólki, sem hann þekkir.
Það er þvi engin tilviljun að sam-
býliskonur hans hafa verið aðal-
leikkonur hans. Eiginkona nr. 2
Louisa Lasser, lék t flestum af
fyrstu kvikmyndum hans. (Hann
var 19 ára, þegar hann kvæntist
fyrstu eiginkonunni, Harlene
Rosen sem var 16 ára). Þær, sem
voru þó þýðingamestar fyrir hann
voru Diane Keaton og Mia
Farrow.
Það, sem þykir einkenna kvik-
myndir hans er, það gólátlega
grín, sem hann gerir að sjálfum
sér, þó með broddi af kaldhæðni,
fyndinn texti en jafnframt hlýleg-
ur, og bláttáfram mannkærleikur.
Þeir eru þó sannarlega til, sem
afskrifa allt sem Woody Allen
gerir, með því að segja það allt
saman bölvaða vitleysu og að
ntaðurinn ætti ekki að vera að
auglýsa fyrir alheiminum hvað
hann sé snargalinn ...
(Arbeiderbladet.)
INGIBJORG
ÁRNADÓTTIR
RAÐAUGLÝSINGAR
Verkamannafélagið Dagsbrún
Félagsfundur
Félagsfundurverðurhaldinn mánudaginn 8. maí
kl. 13.00 i Bíóborginni (áður Austurbæjarbíó).
Fundarefni: Nýir kjarasamriingar. Dagsbrúnar-
menn, komið beint úrvinnu og sýnið styrk ykkar
með því aö hafa fullt hús.
Stjórn Dagsbrúnar.
ÚTBOÐ
Austurlandsvegur
Vegagerð ríkisins óskar eftir
tilboðum í lagningu tveggja
kafla á Austurlandsvegi í Suð-
ur-Múlasýslu: Fossárvík
Framnes (12 km) og Merki -
Valtýskambur (3 km).
Helstu magntölur: Fyllingar
33.000 m3, skeringar
36.000 m3, þar af bergskering-
ar 5.000 m3, burðarlag
54.000 m3 og rofvörn
5.000 m3. Verkið skal að fullu
lokið 1. júlí 1990.
Útboðsgögn verða afhent hjá
Vegagerð ríkisins á Reyðar-
firði og í Reykjavík (aðalgjald-
kera) frá og með 9. þ.m.
Skila skal tilboðum á sömu
stöðum fyrir kl. 14:00 þann 22.
maí 1989.
Vegamálastjóri
Lögtök
Eftirkröfu gjaldheimtustjórans í Reykjavík og að
undangengnum úrskurði verða lögtök látin fara
fram án frekari fyrirvara á kostnað gjaldenda, en
ábyrgð Gjaldheimtunnar, að átta dögum liðnum
frá birtingu auglýsingar þessarar, fyrir eftirtöld-
um gjöldum:
Vanskilafé, álagi og sektum skv. 29. gr. laga nr.
45/1987 um staðgreiðslu opinberra gjalda, sbr.
14. gr. laga nr. 90/1987 fyrir 1.-3. greiðslutímabil
1989 með eindögum 15 hvers mánaðar frá febr-
úar 1989 til apríl 1989.
Reykjavik 2. maí 1989,
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
HAGFRÆÐINGUR
Hjá Fjárlaga- og hagsýslustofnun er
laus til umsóknar staða yfirhagfræð-
ings.
Starfið tengist vinnu við fjárlagagerð, m.a. mat á
áhrifum verðlags- og launaþróunar og vinnu við
tölvukerfi sem notuð eru við fjárlagavinnsluna.
Ennfremur felur í sér vinnu við athuganir og út-
tektir í ríkisfjármálum. Nauðsynlegt er að við-
komandi sé talnaglöggur og hafi áhuga á töl-
fræði.
Umsóknum, er greini frá menntun og fyrri störf-
um umsækjanda, skal skilað til Fjárlaga-og hag-
sýslustofnunar, Arnarhvoli, eigi síðar en 16. maí
n.k.
Fjármálaráðuneytið, fjárlaga- og hagsýslu-
stofnun
se:
Alþingi
ÍSLENDINGA
FRÁ ALÞINGI
íbúð fræðimanns í
húsi Jóns Sigurðssonar
íbúð fræðimanns í húsi Jóns Sigurðssonar í
Kaupmannahöfn er laus til afnota tímabilið
1. september 1989 til 31. ágúst 1990. Fræðimenn
sem hyggjast stunda rannsóknir eða vinna að
verkefnum i Kaupmannahöfn geta sótt um af-
notarétt af íbúðinni. í íbúðinni eru fimm herbergi
og fylgir þeim allur nauðsynlegasti heimilisbún-
aður. Hún er látin í té endurgjaldslaust. Dvalar-
tími í íbúðinni skal eigi vera skemmri en 3 mán-
uðir en lengstur 12 mánuðir, en venjulega hefur
henni verið ráðstafað til þriggja mánaða í senn.
Umsóknir um íbúðina skulu hafa borist til skrif-
stofu Alþingis eigi síðar en 30. mai n.k.
Umsækjendur skulu gera grein fyrir tilgangi
með dvöl sinni í Kaupmannahöfn, svo og mennt-
un og fyrri störfum. Þá skal tekið fram hvenær
og hve lengi óskað ereftir íbúðinni, svo og fjöl-
skyldustærð umsækjanda. Tekið skal fram að
hússtjórn ætlast til að dvalargestir nýti úthlut-
aðan tíma sinn að fuilu við störf í Kaupmanna-
höfn.
Sérstök eyðublöð er hægt að fá á skrifstofu Al-
þingis í Alþingishúsinu í Reykjavík og í sendi-
ráðinu í Kaupmannahöfn.