Alþýðublaðið - 06.05.1989, Page 16

Alþýðublaðið - 06.05.1989, Page 16
MÞY9UBUBIB Laugardagur 6. maí 1989 Alþingi: Húsbréf úr nefnd Samkomulag við Alþýðubanda- lagið um vexti í núverandi kerfi. Húsbréfafrtimvarpið var tekið til umræðu í neðri deild Alþingis í gær, þar sem fullt samkomulag lial'ði tekist á milli stjórnarflokkanna um framgöngu málsins. Alþýðu- bandalagið hafði uppi fyrir- vara varðandi vexti í núverandi kerfi sem rekið verður sambiiða húsbréfa- kerfinu fyrst um sinn, en sættir sig við samkomulag sem gert var í ríkisstjórninni sl. miðvikudag. Samkvæmt samkomulag- inu verður vaxtamunur á keyptu fjármagni frá lífeyris- sjóðunum og útlánum frá Húsnæðisstofnun aldrei meiri en 0,5-l% og þar sem búið er að semja við lífeyris- sjóðina um kaup á fjármagni i lok ársins, með 5°/o vöxtum, má gera ráð l'yrir að lán frá Húsnæðisstofnun verði þá ekki hærri en 4,5%. Kopavogur: Baráttufundur um verndun Fossvogsdals Bæjarstjórn Kópavogs og Samtiik um verndun Koss- vogsdals lialda barátiufund í dag í Iþróttahúsi Snælands- skóla í Fossvogi, Kópavogs- megin. Markmið fundarins er að kynna sjónarinið þess l'jölmenna lióps sem vill að Fossvogsdalurinn verði um alla framtíð alhvarf og skjól fyrir íbúa svæðisins og aðra þá sem njóta vilja útivistar. Fundurinn hefst klukkan 14. „Á það skal bent að á síð- asta ári gerði Neytendablað- ið könnun á viðhorfum al- mennings til Fossvogsdalsins og framtíðarnýtingar hans. Næstum þrír af hverjum fjórum þeirra sem afstöðu tóku, eða 71%, reyndust and- vtgir því að dalurinn yrði lagður undir vegamann- virki,“ segir m.a. í fréttatil- kynningu vegna fundarins. Ræðumenn á fundinum verða: Heimir Pálsson, for- seti bæjarstjórnar, dr. Sig- mundur Guðbjarnason, há- skólarektor, Magnús Harð- arson, formaður íþróttafé- lags Kópavogs, Brynjólfur Jónsson, skógræktarfræð- ingur og fulltrúi frá samtök- unum um verndun Fossvogs- dals. Fundarstjóri verður Kristján Guðmundsson bæj- arstjóri. Á fundinum og fyrir utan fundarstaðinn munu Horna- flokkur Kópavogs og Skóla- hljómsveit Kópavogs leika undir stjórn Össurar Geirs- sonar. Skólakórar Kársness undir stjórn Þórunnar Björnsdóttur og Snælands- skóla undir stjórn Björns Þórarinssonar syngja. Kynntar verða og skýrðar skipulagsmyndir að Foss- vogsdal framtíðarinnar. „Baráttufundurinn er haldinn í því skyni að ítrekað verði að íbúar bæjanna sem liggja að dalnum eru enn sömu skoðunar og vilja að Fossvogsdal verði skilað heil- um í hendur komandi kyn- slóða í stað hraðbrautar- mannvirkis, sem fáum er ljóst hvaða tilgangi á að þjóna,“ segir í tilkynningu frá fundarboðendum. SUJ 60 ára: Ráðstefna um unga fólkið og stjórnmálin Samband ungra jafnaðar- manna heldur ráðstefnu í dag í tilefni af 60 ára afmæli sambandsins. Yfirskrift ráö- stefnunnar er „Koma stjórn- mál ungu fólki við?“ Ræðumenn verða Anna Margrét Guðmundsdóttir, forseti bæjarstjórnar í Kefla- vík, Arnór Benónýsson, leik- ari, Birgir Árnason, formað- ur SUJ, Vilhjálmur Þor- steinsson, framkvæmda- stjóri, Þorlákur Helgason, kennari, Karl Th. Birgisson, blaðantaður, Guðmundur Árni Stefánsson, bæjarstjóri i Hafnarfirði, Kristján Þor- valdsson, blaðamaður og Ragnheiður Björk Guð- mundsdóttir, formaður Nemendafélags Samvinnu- skólans í Bifröst. Ráðstefnu- stjóri verður Magnús Árni Magnússon formaður utan- ríkismálanefndar SUJ. Ráðstefnan er haldinn í Borgartúni 18, kjallara, í sal Vélstjórafélagsins og stendur frá klukkan 14.00-17.00. Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra setti sýninguna lcefood ’89 í Laugardalshöll í gær. Hilmar B. Jónsson matreiðslumað- ur sýndi siðangestum hvernig búa á til úrvals mat úr íslensku hráefni. Þess má geta aö Hilmarbjó til styttuna af laxinum, en hún er gerð úr klakaklumpi sem tekin er úr frosti eftir fjögurra vikna geymslu. Hilmar mótaði laxinn með sporjárni. Þess má geta að meistaraverkið stendur aðeins i 4-5 tíma viö stofuhita. A-mynd/E.OI, ICEFOOD ’89: íslensk matvælasýning í Laugardalshöll „Það er búið að kynna sýninguna út um allan heim. Markmiðið er að fá útlendinga til að koina hingað til lands og eiga við- skipti hér, frekar en við sækjum þá heim. Það hljóta að koma sterkari viðskiptabönd út úr því ef þessir menn koma hingað og kynnast þjóð og menn- ingu um leið og þeir kynna sér vöruna,“ segir Birna Sigurðardóttir sölustjóri íslensku matvælasýningar- innar ’89, Ieefood ’89, sem opnaði í Laugardalshöll í gær og lýkur á föstudag í næstu viku. íslenska matvælasýn- ingin er skipulögð af Ai- þjóðlegum vörusýningum sf. í samvinnu við Industri- al and Trade Fairs Interna- tional Limited. Hátt í 60 aðilar taka þátt í sýning- unni og er aðaláhersla lögð á fiskrétti ýmisskonar og nýjungar á sviði matvæla- framleiðslu. Sýningin er opin al- menningi og kostar að- gangur 400 krónur. í dag er opið frá klukkan 17-22 og á sunnudag frá klukkan 14-22. Frá mánudegi til föstudags verður sérstakur opnunartími fyrir þá sem hyggjast gera samninga, á milli kl 15-18, en opið er al- ntenningi frá klukkan 18-22. A sýningunni gefst almenningi kostur á að kaupa ýmis matvæli á hag- stæðu verði. ATLANTAL rœðir tvo möguleika: Stækkun ISAL eða nýtt fyrirtæki Svör berast á nœstu dögum, segir iðnaðarráðherra. „Það sem um var beðið að fyrirtækin tækju af- stöðu til var annars vegar hvort þau kysu fremur stækkun á álverinu, Isal, sem fæli þá í sér stækkun á því félagi um leið, eða stofnun nýrrar verksmiðju með nýju félagi. Þeir eiga að taka afstöðu til þessara tveggja atriða og hvort þeir vilji halda áfram þessum athugunum og undirbúa ákvarðanir," sagði Jón Sigurösson iónaðarráð- herra í samtali við Alþýðu- blaðið uin þær hugmyndir sem ræddar eru við ATL- ANTAIj-hópinn svokall- aða í viðræöum um nýtt ál- ver. Jón sagði að svör bærust væntanlega á næstu dög- um, en nokkrar vikur tæki að meta þau. „í framhaldi af því þarf að meta málin bæði innbyrðis hjá fyrir- tækjunum svo og gagnvart íslenska ríkinu. Eg á ekki von á neitt liggi fyrir fyrr en undir lok mánaðarins,“ sagði iðnaðarráðherra. Dagsbrún: Kjósa á mánudag Nýgerðir kjarasamningar vinnuveitenda verða bornir Alþýðusambandsins og upp skýrðir á félagsfundi hjá Verkamannafélaginu Dags- brún næstkomandi mánu- dag. Fundurinn hefst klukk- an 13.00 í Bíóborg. Að sögn Guðmundar J. Guðmunds- sonar formanns Dagsbrúnar er reiknað með að komið verði til fundarins beint úr vinnu, en slíkt mæltist vel fyrir á dögunum þegar 900-1000 félagar fylltu Bíó- borg, gamla Austurbæjar- bíó.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.