Alþýðublaðið - 20.05.1989, Blaðsíða 9

Alþýðublaðið - 20.05.1989, Blaðsíða 9
Laugardagur 20. maí 1989 9 ALÞJÓÐLEGT SAMSTARF MUN AUKAST_________________ — Verður framtíð sósíaldemó- krata meir byggð á alþjóðlegu samstarfi en áður? „Já, alþjóðleg og alheimsleg viðhorf og lausnir verða æ víð- tækari. Svíar vilja auka samvinn- una við EB-löndin og samtímis taka þátt í umræðum um atvinnu- og launþegamál í Evrópu og hafa áhrif á þá málaflokka. Til að mynda er nú um 10 °7o atvinnu- leysi í V-Evrópu. Að ráða að nið- urlögum atvinnuleysis er stór- verkefni fyrir launþegahreyfingu V-Evrópu. Hvað viðvíkur sambúð austurs og vestur, þá er það ljóst að þjóð eins og Svíar hafa margt til mál- anna að leggja og geta gegnt þar mikilvægu hlutverki.“ ENGIN RÁÐ TIL ÍSLENSKRA KRATA____________ — Snúum okkur að íslenskum sósíaldemókrötum. Eftir klofning íslenskra jafanaðarmanna 1938 hefur Alþýðuflokkurinn aldrei náð því að verða stór og afgerandi stjórnmálaflokkur á Islandi líkt og bræðraflokkar hans á Norður- löndum. Vilt þú gefa islenskum jafnaðarmönnum einhver ráð hvernig gera á sósíaldemókratísk- an flokk að stórflokki? „Nei, það vil ég ekki. Sérhver flokkur verður að vinna út frá sín- um aðstæðum og umhverfi. Hér er um að ræða hefðir, sögu og þróun sérhvers flokks í sérhverju landi. Ég yrði því ekki góður ráð- gjafi fyrir Alþýðuflokkinn. Hins vegar trúi ég sterklega á samvinnu milli sósíaldemókratiska flokka á Norðurlöndum. Að við deilum með okkur reynslu hvers annars og skiptumst á skoðunum. Þar hefur SAMAK (Samstarfsskrif- stofa jafnaðarmannaflokka og verkalýðshreyfingar á Norður- löndum) stóru hlutverki að gegna. Við viljum mjög gjarnan að Al- þýðuflokkurinn og íslensk verka- lýðshreyfing taki sem mestan þátt í því samstarfi. Við sænskir sósí- aldemókratar höfum mikið gagn af slíku samstarfi." FLOKKSFORYSTA MÁ EKKI STJÓRNA EIN OG SÉR — Hvaða augum lítur þú á flokksstarf? Eru völdin í höndum of fárra? Eru flokkar valdavélar sem stjórnað er af hinum inn- vígðu? „Ég er ekki þeirrar skoðunar. Flokksforysta sósíaldemókrata „Okkur hefur tekist að framkvæma pólitískar hugmyndir okkar í daglegu lífi og þœr hafa verið samhljóða vitund, vilja og tilfinningu þjóðarinnar. “ „Þrjú stœrstu mál sænskra sósíal- demókrata eru baráttan fyrir kosninga- réttinum, baráttan gegn atvinnuleysi kreppuáranna og uppbygging velferðar- ríkisins. Fjórða stórmálið verður um- hverfismálin. “ „Grunnhugmyndir okkar um frelsi, jöfnuð og samstöðu verða jafn lifandi á næstu öld. “

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.