Alþýðublaðið - 20.05.1989, Blaðsíða 10
10
Laugardagur 20. maí 1989
HIN SAMEIGINLEGA
BARÁTTA MANNKYNS
getur ekki setið og stjórnað ein og
sér. Þá verður hún einangruð. Við
verðum að festa allar ákvarðanir
okkar og stefnumál í vilja flokks-
manna og þjóðarinnar. Annars
missum við tiltrú og töpum kosn-
ingum. Það er mikilvægt að lýð-
ræðislegt eftirlit sé til staðar.
Hins vegar getur það gerst að
flokkur og flokksforysta verði að
koma með hugmyndir að nýrri
stefnumörkun og vera málsvari
fyrir nýrri hugsun. Það er ekki
alltaf hægt að aðlaga sig að ráð-
andi skoðunum, stundum verður
forystan að mynda skoðanir. Það
er hluti af ábyrgð flokksforyst-
unnar.
Hvað Sósíaldemókrataflokkn-
um viðvíkur, þá ákveða l'lokks-
þingin öll meiriháttar stefnumál
og eftir þeim ákvörðunum vinnur
flokksforystan. Einhver hópur
innan flokksins getur ekki tekið
upp á því að vinna gegn flokksfor-
ystunni og hunsað ákvarðanir
flokksþingsins milli þinga. Það
gengur ekki.“
STÓR HLUTI HEIMS HORFIR
TIL HORÐURLANDA_____________
— Mig langar til að leiða talið
„Kommúnista-
löndin hafa gífur-
legan áhuga á
hugmyndum sós-
íaldemókrata. “
lítilsháttar að alþjóðamálum.
Miklar umbœtur eiga sér nú stað
í þjóðfélögum margra ríkja, ekki
síst í kommúnistalöndunum; Sov-
étríkjunum, Austur-Evrópu,
Kína. Þar miða allar breytingar í
lýðrceðisátt, frá einrœði til virkari
þáttöku fjöldans. Telur þú að Sví-
þjóð og hugsjónir og hugmyndir
norrœnna sósíaldemókrata geti
orðið þessum þjóðum fyrirmynd?
„Orðið fyrirmynd er hættulegt.
En það leikur enginn vafi á því, að
hjá þessum þjóðum er gífurlegur
áhugi á hugmyndum sósíaldemó-
krata. Það er að segja að sameina
öflugt atvinnulíf og lýðræðislegar
ákvarðanir þannig að markaður-
inn vinni með sameiginlegum
þörfum þjóðfélagsins og stuðli að
auknu öryggi þegnanna. Þar sam-
einast félagslegt tryggingakerfi og
öflugt markaðskerfi sem tryggir
fólki atvinnu og öryggi í þjóðfé-
lagi. Okkar kerfi stendur fyrir
rétti borgaranna, ekki aðeins til
að kjósa flokka á þing, heldur rétt
til menntunar, rétt til að sjúkir og
veikir fái rétta læknishjálp og að-
hlynningu, að eldra fólkið fái að-
stoð og umönnun í ellinni, svo
nokkur grundvallaratriði séu
nefnd.
Það er þessi sameining frjálsra
markaðsafla og pólitískrar
stjórnunar sem er einkar mikil-
væg: Okkur stjórnmálamönnum
sem með völdin fara er treyst til að
stjórna þannig að velferð borg
aranna og þjóðarinnar sé sem
mest og gæðunum skipt réttlát-
lega án þess að við í ríkisstjórn-
inni séum að skipuleggja fram-
leiðslu og vöruþjónustu út í ystu
æsar.
Þessi vinnuskipting eða sam-
komulag markaðs og pólitískrar
stjórnunar sem Norðurlönd hafa
uppgötvað og framkvæmt, er góð
lausn og sem stór hluti heimsins
horfir til.“
BREYTINGAR Á
STEFNUSKRÁ__________________
— En samtímis vinna sænskir
kratar nú að endurbótum á
stefnuskrá sinni. Þýðir það að þið
séuð að fjarlægast hið sögulega
samkomulag markaðs og pólit-
ískrar stjórnunar? Verður mark-
aðsöflunum sleppt lausar í fram-
tíðinni?
„Það er rétt, í júlímánuði í ár
verða lagðar fram tillögur að nýrri
stefnuskrá flokksins. En þær tii-
lögur fela ekki í sér að við séum á
hlaupum frá grundvallahug-
myndum okkar eins og stundum
hefur verið haldið fram. Stærsta
breytingin er sú, að við leggjum
mun meiri áherslu á umhverfis-
málin en áður og viðhorf til al-
þjóðamála. Breytingarnar fela
einnig í sér að fjarlægt verður úr-
elt orðalag og hugtök sem við höf-
um í reynd aldrei lifað eða unnið
eftir en gætu, bókstaflega túlkuð,
bent til miðstýringar.“
AUKIN AFVOPNUN
STYRKIR
UMHVERFISMÁLIN_____________
— Aftur til alþjóðamála:
Hverjar eru að þínu áliti, slœrstu
hœtturnar sem mannkyninu staf-
ar af í dag?
„I fyrsta lagi hættan á kjarn-
orkustyrjöld. í öðru lagi um-
hverfisstórslys eins og gætu gerst í
sambandi við þynningu ósons-
lagsins. í þriðja lagi hungrið i
heiminum og atvinnuleysi stórs
hluta mannkyns. Þetta þrennt
ógnar mannkyninu og við verðum
að bægja þeim frá sameiginlega. “
— Hvað getum við gert?
„Það hefur þegar verið tekið
afar mikilvægt skref með samn-
ingum um eyðileggingu skamm-
drægra eldflauga (INF) í Evrópu.
Það er í fyrsta skipti sem ákveðið
hefur verið að henda áhrifamestu
eyðileggingarvopnunum á rusla-
hauginn. En það er mikilvægt að
halda áfram og vinna að banni og
eyðileggingu langdrægra kjarna-
flauga. Og halda síðan áfram og
minnka hefðbundinn herafla í
heiminum. Það er nú alþjóðleg
þróun í gangi — sú fyrsta sem
miðar að afvopnun heimsins.
Við vitum nú hvað við erum að
gera, hvernig á að framkvæma af-
vopnunina og hvers vegna.
Ef við leggjum vopnafram-
leiðsluna á hilluna, fáum við fjár-
magn og bolmagn til að berjast
við önnur vandamál heimsins eins
og umhverfismengun. Þetta er
einfaldlega spurning um að fjár-
festa i nýrri tækni sem er hættu-
laus umhverfinu.
Ef við tökum Austur-Evrópu
sem dæmi, þá vitum við nákvæm-
lega hvað gera skal. Svíþjóð hefur
framleitt hreinsunartæki sem
nota má til forða mengun frá
kolaverksmiðjum A- Þýskalands
„Mestu hœttur
mannkyns eru
kjarnorkustyrjöld,
umhverfisstórslys,
hungrið og at-
vinnuleysið í
heiminum. “