Tíminn - 27.03.1968, Blaðsíða 1

Tíminn - 27.03.1968, Blaðsíða 1
Gerizt áskrifendur að Tímanum. Hringið í síma 12323 Auglýsing í Tímanum kemur daglega fyrir augu 80—100 þúsund lesenda. LEITAÐ ÁN ÁR- ANGURS Nýtt frumvarp um listamannalaun lagt fram á Alþingi: SÖLUSKATTUR AF BÚKA- OG TÍMfl- RITASÖLU RENNITIL SKflLOANNA Froskmenn hefja lelt þar sem stigvélln fundust. (Tímamynd—GE) EJ-Reykjavík, þriðjudag. Leitað var í allan tlag að Haraldi Bjarnasyni, þriggja ára drengnum, sem týndist í gær, en án árangurs. Leitað var einkum á Laugames- tanga og í sjónum út af hon um. Froskmenn köfuðu þar, og þyrla leitaði úr lofti, en allt án árangurs. Eins og frá segir i blað- inu í dag, þriðjudag, fund- ust stígvél Haralds um kl. 10,30 í gærkvöldi í fjörutnni á Laugarnestanga. Það var Gunnar Guðjónsson, Tungu- veg 17, og 10 ára sonur hans sem fundu annað stígvélið. Framtiaid á ols 14 I FÉLAGSBUNDNIR LISTAMENN 396 GÞE-Reykjavík, þriðjudag. f nýútkomnu félagatali Banda- lags ísl. listamanna teljast félagar alls 39G. Aðildarfélög eru 8, Arki- tektafélag íslands, Félag ísl. leik- ara, Félag ísl. listdansara, Félag ísL myndlistarmanna, Rithöfunda- félag fslands og Félag ísl. rithöf- unda, en þessi tvö félög eru bæði aðilar að Rithöfundasambandi fs- lands, Félag ísienzkra tónlistar- manna og Tónskáldafélag íslands. Fjölmennasta félagið er Félag ísl. leikara, en það hefur innan sinna snæra 87 leikara, og þar af eiga 80 búsetu í Reykjavík og nágrenmi. Rithöfundar eru raunar fjölmennari en leikarar, en þeir skiptast niður á 2 félög. Rithöf- undafélag íslands telur 71 félags- mann, þar af 3 heiðursfélaga, Hall dór Laxness, Sigurð Nordal og Þórberg Þórðarson, en Félag ísl. rithöfuinda telur 58 aðila. þar af einnig þrjá heiðursfélaga, en þeir eru Bjarni M. Gíslason, Jakobína Johnson og Viggo Zadig. Rithöf- undar eru miklu dreifðari .um land ið heldur en leikararnir, og nokkr ir þeirra hafa búsetu erlendis. Af 35 félagsmönnum Arkitekta- fél'ags íslands er aðeins einn, sem hefur búsetu utan þéttbýlisins hér fyrir sunnan og starfar hann á Akureyri. í Félagi ísl. myndlistar- manna eru 45 félagsmenn, þar af nokkrir búsettir erlendis en eng- Framhald á bls. 15. EJ-Reykjavík, þriðjudag. Samgöngumálaráðuneyt- ið sendi í dag út fréttatil- kynningu þess efnis, að það hefði svipt ferðaskrifstof- una Lönd og Leiðir h.f. leyfi til reksturs ferðaskrif- stofu. Engin skýring var á þessu gefin, og talsmaður samgöngumálaráðuneytis- ins vildi engar skýringar gefa á þessu máli í dag. Hefur það vakið furðu, að ráðuneyti skuli taka svona ákvörðun ,og senda út um það tilkynningu, án þess að gera grein fyrir því, hvaða ástæður liggja til grundvallar ákvörðuninni. Tilkynning rgðuneytisins var stutt og snubbótt, eða svofaljóð andi: „SamgöngumálaráðuneyL ið hefur í dag svipt Ferðaskrif- stofuna Lönd og Leiðir h.f. leyfi tii reksturs ferðaskrif- stofu. Samgöngumálaráðuneyt- ið 26. marz 1968“. Strax og blaðinu barst þessi tilkynning, hafði það samband við samgöngu.málaráðuneytið og óskaði frekari skýringa á þessari ákvörðun. Þar sem ráðuneytisstjórinn, Brynjólfur Lngólfsson, var erlendis, var deildarstjórinn, Ólafur Valdi- marsson. fyrir svörum. Kvaðst hann ekkert vilja um málið segja frekar; þessi tilkynning yrði að nægja! Þá hafði blaðið í_ kvöld sam- band við Ingólif Blöndal hjá Lönd og Leiðir h.f., en hann kvaðst ekki telja heppilegt að segja eitt eða neitt um þetta mál að sinni. Allt er því á huldu um, hvað hér liggur til grundvallar. Það liggur aftur á móti i augum uppi, að ráðuneyti getur ekki tekið svona ákvörðun, og til- Framliatd á bls. 15. IGÞ-Reykjavik, þriðjudag. Lagt hefur verið fram á Al- þingi frumvarp til laga um laun listamanna, skálda og rithöfunda. Helztu nýmælin í þessu frumvarpi eru þau, að skil eru gerð milli úthiutunar < til skálda og rithöf- unda annars vegar og annarra listamanna hins vegar. Er þeirri upphæð, sem nú er úthlutað ætl- að að remna í heild til listamanna en tfl launa skálda og rithöfunda skal renna söluskattur sá, sem greiddur er af sölu bóka og tíma- rita, innlendra og erlendra, til ríkis.sjóðs. Þá er og ákvæði um út- lilutun starfsstyrkja, og einnig að greidd skuli úr ríkissjóði heiðurs- laun tfl listamanna, skálda og rit- höfunda, en aldrei fleiri en tólf samtímis. Flutningsmaður er Þór- arinn Þórarinsson, ritstjórL Segir hann í lok greinargerðar, að ekki sé ætlazt til að frumvarp þetta nái afgreiðslu á þessu þingi, held- ur sé það lagt fram nú, tfl þess að það geti verið til umræðu og athugunar, þangað til þing kem- ur saman næsta haust í fyrstu grein frumvarpsins seg ir að árlega skuli veita fé á fjár- lögum til að launa listamenn, aðra en skáld og rithöfunda. Skal sú upphæð aldrei vera lægri en veitt var til listamanna á fjárl. 1968, en hækka hlutfallslega í sam ræmi við þá hækkun, sem kann að verða á heildarútgjöldum. fjár- laga, miðað við fjárlögin 11968. Til launa skálda og rithöfunda skal renna söluskatturinn af sölu bóka og tímarita erlendra og innlendra, svo og til starfsstyrkja samkvæmt 4. grein. Þá er ákvæði um að nefnd sjö manna skuli út- hluta launum og starfsstyrkjun- um, Kveðið er á um sérstök heið- urslaun, sem Alþingi veitir, greidd eru úr ríkissjóði, og eigi verða dregin frá úthlutunarfé. Um störf úthlutunarnefndar segir í 2. greiin: 1. Áður en til úthlutunar list- launa kemur, skal nefndin taka hluta af hvorri þeirri fjárhæð ó- skiptri, sem um getur í 1. grein, og ætla til starfsstyrkja skálda og Framhald á bls. 14. Þórarlnn Þórarlnsson

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.