Tíminn - 27.03.1968, Qupperneq 3
MIÐVIKITOAGUR 27. marz 1968.
TÍMINN
Tvö ný kaupmannafélög
Nýlega hafa verið stofnuð
tvö ný kaupmannafélög, er
gerzt hafa aðilar að Kaup-
mannasamtökum íslands, og
eru þá félög innan samtakanna
alls 21. Þetta eru Félag Sport-
vörukaupmanna, formaður Jón
Aðalsteinn Jónasson og með
stjórnnedur Gunnar H. Sigur-
geirsson og Axel Aspelund.
Varamaður í stjórn er Svavar
Gests.
Fulltrúi í fulltrúaráð Kaup
mannasamtakanna var kjörinn
Konráð Gíslason, og Félag ljós
myndavöruverzlana, formaður
Gunnar Kjartansson og með-
stjórnendur Júlíus P. Guðjóns
son og Jóhann Sigurjónsson.
Varamenn í stjórn eru Trausti
Thorberg og Gunnar Magnús
son.
Fulltrúi í fulltrúaráð Kaup-
mannasamtakanna var kjörinn
Trausti Thorberg.
Meðal félagsmanna kom
fram mikill áhugi á að auka
samstarf bæði á félagslegum
og viðiskiptalegum vettvangi.
Félagsmenn eru starfandi
bæði innan og utan Reykjavík
nr.
ísinn á svipuðum slóSum
Hatfísinn hefur heldur mjak-
azt friá landi síðasta sólartiring.
Þó er hann á svipuðum slóðum
umhverfis Grímsey og landfast-
ur ís er frá Hombjargi að Geir
ólfsnúp.
ísröndiin er heldur fjær land
inu en áður var en íshröngl er
viða milli hennar og lands og
getur verið hættulegt skipum í
myrkri. Allur ísinn er á hreyf-
ingu vestur á bóginn. Með vax
andi suðaustainiátt miá búast við
að hann fari heldur friá land-
inu að austanverðu en vera má
að meginísinn verði landfastur
á Ströndum og loki siglingaleið
inmi fyrir Horn.
UtanríkisráSherra Búlgaríu
kemur í heimsókn
Utanríkisráðherra Búlgaríu,
fvan Bashev, og konn hans
koma í opinbera heimsókn
til íslands sunnudaginn 7.
apríl n.k. og dvelja hér í 3
daga í boði ríkisstjómarinnar.
í fylgd með þeim verða m.a.
ambassador Búlgaríu á íslandi
Laliou Gantchev, og frú — og
Argir Alexiev, forstöðumað-
ur pólitísku deildar búlgarska
utanríkisráðuneytisins.
Hlaut þýzk bókmennta-
verðlaun
SJ-Reykjavík, þriðjudag.
Nýlega voru Heigu M. No-
vak veitt þýzk bókmenntaverð
laun fyrir ljóðabok með kvæfi
um og balíöðum. Verðlaunin
voru peningaupphæð (10.000
þýzk mörk). Þetta eru svo-
nefmd Bremen-bókmennta-
verðlaun, sem vgitt eru af
„Rudolf-Alexander-Sehröder-
stofnuninni þar í borg. Verð-
launin voru afhent við hátíð-
lega athöfn í samkomusal nýs
ráðhúss í Bremen.
Helga Novak er þýzk en hef
ur átt heima á íslamdi síðan
1061 og ber nú nafnið Maria
Karlsdóttir sem íslenzkur rík-
isborgari.
Leikhúsdagur í dag
Sjöundi heknsleikihúsdag-
urinn er í dag. Þessi dagur er
hafður til þess að kynna leik-
listiina og er um leið baráttu-
dagur hennar. Á hverju ári ^r
fenginn heimaþekktur maður
til þess að flytja ávarp í til-
efni dagsins, og að þessu sinni
hefur orðið fyrir valinu Nó-
belsverðlaunahafinn frá áriinu
1067, Miguel Angel Asturias.
Sæmdur riddarakrossi
Dannebrogsorðu
Frederik IX Danakonungur
hefur sæmt danska vararæðis-
manninn á Akureyri, hr. hér-
aðsliækni Jóhanin Þorkelsson,
riddarakrossi Dannebrogs-
orðunnar. Sendiherra Dana
hefur afhent honum heiðurs-
' merkið.
Loftnetið slitnaði
EJ-Reykjavík, þriðjudag. — í
nótt slitnaði loftnet útvarps-
stöðvarinmar á Vatnsendahæð,
og lauk viðgerð ekki fyrr en
kl. 16.13 í dag. Var því ekki
hægt að hefja útvarpið á lang
bylgju fyrr en eftir þann
tíma í dag.
Ræða um gullforða og
gjaldeyrissjóði
Gullforði og gjaldeyrissjóðir
á alþjóðavettvahgi hafa verið
mjög á dagskrá að undan-
förnu í sambandi við hin
miklu gullkaup á markaðnum
í Londoin, er leiddu til lokun-
ar þess markaðar og til náð-
stafana af hálfu helztu pen-
ingayfirvalda heimsins til þess
að varðveita skipulag peninga
miála í heiminum.
Af þessu tilefni efnir Hag-‘
fræðafélag íslands til fundar
um þetta má, miðvikudaginn
27. marz, kl. 8.30 í Tjarinar-
búð. Framsöguerindi flytur
Valgarð J. Ólafsson, hagfræð-
ingur. Siðan fara fram panel-
umræður og eru þátttakendur
í þeim: Dr. Jóhannes Nordal,
seðlabankastjóri, Jónas H. Har
alz, forstjóri Efnahagsstofnun-
ariinnar og , Þórhallur Ásgeirs
son, ráðuneytisstjóri viðskipta
málaráðuneytisins. Utaníé-
lagsmenn eru velkomnir á
fundinn.
Erlingur Vigfússon óperu-
söngvari heldur tónleika
í Gamla bíó 30. og 31. marz
Erlingur Vigtfússon, sem
dvalizt hefur : Köln í Þýzka-
landi umdanfarin rúm tvö ár,
fyrst við nám eingöngu en nú
í vetur einnig verið ráðinn við
óperuna í Köln, kemur til
landsiins i stutta heimsókn nú
fvrir mánaðamótin og heldur
tvenna tónleika i Gamla biói.
Píanóleikari meft honum á
þessum tónleikum verður F.
Palmer hljómsveitarstjóri frá
Köln, sem rnikið hefur unnið
með Erlingi.
Tónleikarnir á laugardag-
inn hefjast kl. 3, en tónieik-
arnir á sunnudaginn kl. 7.16,
og verð’a aðgöngumiðar seldir
í bókaverzlunum Eymundsson
ar Austurstræti og Lárusar
Blöndals Skólavörðustíg.
Áætlað er að Erlingur haidi
eina tónleika i Keflavík í þess
ari stuttu heimsókn sinnL
NY S0KN VIET
C0NG ER HAFIN
NTiB-Saigoin, þriðjudag.
Skæruliðar hafa liafið mikla
sóloi á miðhálendi Suður Vietnam
þá mestu sem þeir hafa gert síð-
an í janúarlok, en þá hófst Tet-
sókn-nýjárssdkn þeirra. Sóknar-
lota þeirra nú beinist að herbæki
stöðvum Bandarfkjahers skammt
frá borginni Kontum, en þar hafa
Bandaríkjamenn búið vel um sig,
og komið upp öflugu stórskota-
liði.
í árásarliði skæruliðanna voru
um 1.000 manns. Þeir brutust
gegn um ytri varnárlínur virkis-
ins í skjóli myrkursins í nótt, og
beittu óspart vélbyssum og eld-
vörpum. Þeir urðu þó að höría
uindan eftir harðan bardaga sem
stóð í þrjár stundir, sagði tals-
maður þandarísku herstjórnarinn
ar í dag.
Bandaríkjahermennirnir sem
til varnar voru, kvöddu flugher-
inn til hjálpar og hófu stórskota-
hríð, með 165 millimetra fall'byss
um, á andstæðingana. Talsmaður
Bandaríkjahers segir 135 skæru-
liða hafa fallið, en að aðeins 19
Bandaríkjamenn hatfi týnt llfi og
51 særzt.
Síðustu fregnir hermdu, að
bandarísku hermönnunum hefði
borizt aðstoð riddar'aliðs og fót-
gönguliðssveita flughersins, og nú
væri unnið að því að uppræta
stoæruliðana á svæðinu umhverfis
herstöðina. Herstöðin er þrjátíu
kílómetra véstur af Kontum og
aðeins 40 kílómetra frá landamær
um Kamþodsja.
Sóknarlota hermanna Saigon-
stjórnar og Bandaríkjamanna í
héruðunum umhvertfis Saigon
stendur enn. Sagt er að á mánu-
daginn hafi 400 skæruliðar verið
felldir, þar af 284 i bardaga við
Trang Bang, 45 kílómetra norð-
vestur af Saigon. Einmig urðu á-
tök nokkra kílómetra frá aðalflug
Framhald á bls. 14.
HÚNAVAKAN
HEFST ANN-
AN PÁSKADAG
Húnavakan hefst á Blönduósi
annan páskadag. Að vanda verða
vönduð og fjölbreytt skemmtiat-
riði á Húnavökunni og verður síð
ar sagt nánar frá tilhögun henn-
ar.
Þetta eru m. a. ný og breytt umferðamerki, sem tekin veröa í notkun.
NÝ UMFÍRDARMERKI TEK-
IN í N0TKUN Á H-DAC
Á H-daginn 26. maí í vor, verða
tekin í notkun niu breytt og ný
umferðannerki, og hefur Dóms
og kirkjumálaráðuneytið nú ný-
lega gefið út reglugerð þar að lút
andi, eftir að umferðarlaganefnd
hafði gert tillögur um hin nýju
og breyttu merki. Eitt nýtt merki
verður tekið upp, og gefur ’það
til kynna hvenær banni við fram-
úrakstri er lokið. Þá verður gerð
tveggja merkja breytt, en breyt-
ingarnar á hinum merkjunum eru
aðallega fógnar í bví að örvam-
Hafnarf jörfhir,
Garða- og Bessa
sfaðahreppur
Framsóknarfé-
lögin í Hafnar-
firði, Garða- og
Bessastaða-
hreppi halda ann
að spilakvöldið f
þriggja kvölda
keppninni f sam-
komuhúsinu á
Garðaholti, föstu
daginn 29. marz,
kl. 8.30. Munið hinn stórkostlega
heildarvinning, — ferð til Mall-
orca með hálfs mánaðar dvöl á
fyrsta flokks hóteli. Auk þess
eru mjög góðir kvöldvinningar.
Að keppninni lokinni verða ltaffi
veilingar. Stcingrímur Hermanns
son framkvstj. flytur ávarp, en
að síðustu mun hin vinsæla hljóm
sveit Kátir félagar leika fyrir
dansi tll kl. 1 eftir miðuætti.
ar á þeim breytast til samræmis
við hægri umferð.
Bannmerkið „Banni við framúr
akstri lokið“ (B4a) er algjörl. nýtt
-hór á landi. Þetta er hringlaga
merki, gulur flötur þar sem á eru
tveir samhliða bílar, í ljósgráum
lit, en fjórar s-vartar samhiiða lín
ur eru dregnar á ská yfir bílana.
Merkið „Hringakstur“ breytist
lítið. Örvunum þrem er aðeins
bre-ytt til samræmi-s við hægri um
tferð. Merkið „Bann við framúr-
akstri“ breytist þannig, að ská-
strikinu sem var áður, er sleppt,
en í staðinn kemur rauður Mll
vinstra megin við hlið þess svarta
og táknar sá rauði að bannað sé
að aka fram úr. Þá verður vega-
lengdin sem bannið ,nær, yfir, ekki
letiruð á sérstakt spj-ald, heldur
kemur nýj-a merkið „Banni viðf
framúrakstri lokið“ 1 þess stað. j
Merkið sem ber heitið „Sérstakrij
takmörkun hámarkshraða lokið" i
breytis-t. Verður það þannig, aö j
þau hraðatakmörk sem iokið er, i
verða letruð með ljósgráum stöf-
um á gulan flöt merkisins, og
strikað yfir töluna með fjórum
mjóum svör-tum strikum eins og
Framhald á bls. 15.
Framsóknatyist
apríl
4.
Næsta spilakeppni Framsóknar
félags Reykjavíkur verður að
Hótel Sögu fimmtudaginn 4. aprfl
næst komandi.
Framsóknarmenn
4 rnessýslu
Aðalfundur Framsóknarfélags
Árnessýslu verður í samkomusal
KÁ á Selfossi n. k. fimmtudags-
kvöld og hefst kl. 21.30. Auk
venjulegra aðalfundarstarfa ræða
þingmenn Suðurlandskjördæmis
um stjórnmálaviðhorfið.
Steingrímur
Ræðir þróunina í
A-Evrópu-ríkjunum
Framsóknarfélag Reykjavíkur heldur kaffi-
fund næstkomandi laugardag kl. 3 síðdegis.
I>r. Kristinn Guðmundsson fyrrv. sendi-
herra i Sovétrfkjunum ræðir um þróunina
í Austur-Evrópuríkjunum og svarar fyrir-
spunum. Öllum er heimill aðgangur á með
an húsrúm lcyfir. Fundurinn verður liald
inn í Þjóðleikhúskjallaranum.
Dr. Kristinn
I