Tíminn - 30.03.1968, Page 3
LAtTGARDAGUR 30. marz 1968.
Gjöf til Blönduóssspítala Sumarnámskeið í
Nýlega afhenti Samiband hún
vetnzkra kvenna Héraðsspítal
anum á Blöndmósi að gjöf
pianó til minningar um frú
Þuríði Sæmundsen og Dóim-
hildi Jóhannsdóttur, báðar á
Blönduósi, en þær dóu báðar
síðast liðið vor. Báðar þessar
konur voru framarlega í sam
tökum Austur-húnvetnskra
kvenna og á sínum tíma studdu
þær að byggingu héraðsspítal
ans, en samtök kvenna í sýsl
umni tóku þá virkan þátt í
fjánsöfnun til spítalabyggingar
innar og hafa ætíð síðan sýnt
spítalanum mikinn velvilja og
gefið bæði peninga og muni
til hans.
Minningargjafir til Hall-
grímskirkju í Saurbæ
Orgelsjóði Hallgrímskirkju í
Saurbæ hafa borizt krónur 60.
595,00 til minningar um Arn
finn Guðmundsson á Hi ('na
björgum, sem lézt af slysför
um við vinnu sína í Hvalfirði
hinn 29. janúar.
Samkvæmt ósk aðsta t nda
hins tótna, voru þeir, sem
vildu minnast hans, beðnir að
láta Orgelsjóð Hallgrímskirkju
í Saurbæ njóta þess. Fyrir
hönd kirkjumnar þakka ég hin
um fjölmörgu, sem minntust
hins látna með gjöfum í orgel
sjóðinn og bið þeim og ástvin
um hans blessunar Guðs.
Saurbæ á Hvalfjarðarströnd
lfl. febrúar 1968
Jón Einarsson, sóknarprestur
Bandarík junum
Eins og undanfarin sumur
verður haldið némskeið fyrir
kennara frá Norðurlöndum í
Luther College, Decor
ah, Iowia í Bandaríikjunum.
Námskeiðið, sem stendur yfir
frá 28. júní til 26. júlí, er
ætlað frambaldisskc’.akennurum
og er nokkur enskukunnátta
nauðsynleg.
fslenzk-ameríska félagið og
American Scandinavian Found
ation munu veita nokkra styrki
úr Thor Thorf sjóðnum til
þátttöku í námskeiðinu. Um
söknareyðublöð og nánari upp
lýsingar fást hjá íslenzka-
ameríska félaginu, Austur-
stræti 17, þriðjudaga og
fimmtudaga kl. 5,30 — 7 e. h.
Umsóknarfrestur er til 25.
apríl.
Framihaldsskólakennarar í
raunvísindagreinum og stærð
fræði eiga kost á námskeiðum
víðsvegar í Bandaríkjunum á
þessu sumri á vegum NSF
(National Science Foundation).
Námskeiðin eru mismunandi
löng, frá 3—4 vikum í heilt
ár. Markmiðið er að gefa kenn
urum kost á að bæta sig í
sinni grein með upprifjun og
til að kynnast nýjungum, sem
orðið hafa í greinum þeirra.
Háskólar, sem halda nám-
skeiðin, velja þátttakendur eft
ir umsóknum, sem berast NSF.
Völ er á styrkjum frá NSF til
námsdvalarinnar vestra.
Iðnskóli á Suðurnesjum
Iðnaðarmannafélag Suður-
nesja, Iðnsveinafélag Suður-
nesja ög Iðnaðarmannafélag
Suðurnesja gengust fyrir fjöl
mennum fundi í Aðalveri fyrir
nokkru til að ræða iðnfræðslu
mál á Suðurnesjum og bygg
ingu iðnskóla fyrir Suðurnes.
Á fundinum kom fram, að
Keflavíkurbær hefur veitt til
byggingu nýs iðnskóla 150 þús.
kr. árið 1967 og árið 1968 150
þús. kr. og Njarðvíkurhreppur
100 þús. kr. Önnur byggðarlög
á Suðurnesjum munu einnig
hafa í huga að veita málinu
stuðning.
Nú eru 103 nemendur í Iðn
skóla Suðurnesja og býr hann
við algerlega óviðunandi starfs
skilyrði. Var að lokum einróma
samþykkt eftirfarandi ályktun:
„Sameiginlegur fundur iðn-
nemafélags, iðnsveinafélags og
iðnaðarmannafélags á Suður
nesjum haldinn í Aðalveri
sunnudaginn 3. marz 1968 skor
ar eindregið á alla hlutaðeig
andi aðila að komandi iðnskóla
að nú þegar verði hafizt handa
um að láta gera allítarlega
athuguin á aðstæðum og fram
gangi iðnskólahúsnæðis í um-
dæminu samkvæmt núgildandi
lögum um iðnfræðslu og iðn
skóla. í fyrsta lagi með því, að
skipuð verði nefnd, sem sé
einn maður frá hverju sveitar
félagi, einn frá iðnnemafélag
inu, einn frá iðnsveinafélaginu
og einn frá iðnaðarmannafélag
inu. Nefndin vinni síðan að þvi
að koma málinu áfram á sem
hagkvæmastan hátt. Nefndin
skili áliti eigi síðar en 15. maí
1968.“
Umsóknareyðublöð, bækling
ar og upplýsingar fást hjá
Íslenzk-ameríska félaginu, Aust
urstræti 17 sími 13536 og hjá
Runólfi Þórarinssyni, Fræðslu-
málaskrifstofunni.
Fengu danskar bækur
Nýlega afhenti Martin Tóm
asson vararæðismaður Bóka
safni Vestmannaeyja danska
bókagjöf fyrir mdlligöngu sendi !
ráðsins dansk^. Bækurnar ;
fjalla m. a. um byggingarlist,
sögu, tækni, heimspeki, auk
skáldrita danskra höfunda í
fremstu röð.
Bókasafnið í Vestmannaeyj
um var stofnað árið 1862. Um
miðja nítjándu öld voru Vest
mannaeyjar hálfdanskt kaup-
tún. f fynstu bókasikrá félags
ins 1869 eru 8 bókaflokkar,
þar af eru í fjórum þeirra
miklu fleiri rit á dönsku en |
íslenzku. Þá er nær dró alda j
mótum breyttist þetta. En ;
það hefur haldizt við, að !
danskar bækur eru mikið lesn !
ar í Eyjum Húsnæðisskortur !
háir mjög starfseminni og I
safninu nauðsyn að fá eigið \
hús sem fyrst.
Minningarsjóður Þórarins
Björnssonar skólameistara
Framlögum frá stofnendum
að Minningarsjóði Þórarins
Bjöivssonar skólameistara er
veitt viðtaka fram til 1. júní
n. k. á Akureyri í Bókaverzlun
inni Bókavali í Hafnarstræti og
í Reykjavík hjá Bókaverzlun
Sigfúsar Eymundssonar í Aust
urstræti.
TfMINN
Leynimelur 13 skemmt-
ir nú Skagfiríingum
saminn og sýndur í Reytojavík
GÓ-Sauðárkróki.
Leikfélag Sauðárkróks hefur
nú sýnt gamanleikinn Leyni-
mel 13 á hverju kveldi alla
sæluvikuna fyrir fullu húsi og
ágætar undirtektir áhorfenda.
Leikstjóri er Bjarni Steingríms
son frá Reykjavík, en leikmynd
gerði Jónas Þór Pálsson.
Þessi ágæti gamanleikur var
1943. Vegna mikiilla húsnæðis-
vandræða, sem þá voru, höfðu
verið löggilt ný húsaleigulög,
sem gáfu húsaleigunefnd nokk
uð frjálsar hendur með ráð-
stöfun húsnæðis. Við þessar
aðstæður er leikurinn saminn.
En þótt liðin séu séu 25 ár
síðan leikurinn var saminn, nýt
ur hið næma skopskyn verksins
sín jafnvel í dag eins og þá.
Enda hægur vandi að stað-
setj^ ýmis atriði hér eða þar,
og heimfæra hnyttin tilsvör
sérkennilegra persóna sem
setja svo mjög svip á verkið
inn á daginn í dag. Hefur leik
stjórinn notað þetta nokkuð
og fer það vel.
Það er ljóst að sviðsetning
Bjarna Steingrímssonar á
Leynimel 13 ber vott um kunn
. áttu og hæfni, og það sýnir
jafnframt að það er nauðsyn-
legt. fyrir áhugamannaleikhús
að fá lærða leikshúsmenn til
leiðbeindngar og þjálfuinar. í
samstarfi við sllka menn kynn
ast áhugaleikararnir nýjum við
horfum og nýjum kröfum, svo
leikstarfsemin staðni ekki, held
ur þróist með og breyttum
tímum.
Flest aðalhlutverkin eru leik
in af fólki, sem hefur leikið
hjá Leikfélagi Sauðárkróks
meir eða minna og oft gert vel
á leiksviðinu, en nú má segja
að um leiksigur sé að ræða
hjá sumum þeirra, og má þar
fyrst nefna Hauk Þorsteins-
son, sem fer með hlutverk
Madsens klæðskera. Kristján
Skarphéðinsson sem leikur
Svein Jón Jónsson skósmið,
Stefaníu Frímannsdóttir í hlut
^’ramhaia a tn.- 14
Kristján Skarphéðinsson, sem
Sveinn Jón Jónsson skósmiður
Stefanía Frímannsdóttir, sem
Guðríður Tómasdóttir.
------■
Fyrsta sýning Barna-
leikhússins á sunnudag
GÞE-Reykjavík,
Á sunnudag kl. 5 s. d. verður
sýnt í Tjarnarbæ nýtt barnaleikrit
sem nefnist Pétur prakkari. Fyrir
þessari sýningu stendur ungt fólk
sem mun innan tíðar stofna með
sér félag, eða öllu heldur barna
leikhús til að flytja stutt leikhús
verk við barna hæfi. Aðalhvata-
maðurinn að þessu er Einar Logi
Einarsson og sagði hann á fundi
með fréttamönnum í gær, að
þetta væri orðin nokkuð gömul
hugmynd, sem hann væri nú
að hrinda í framkvæmd. Þátttak
cndur væru ekki atvinnulistamenn
heldur áhugasamt fólk, sem vildi
auka fjölbreytni í leikritaflutn-
ingi fyrir börn.
Leifcritið Pétur prakkari gerist
í friðsælu þorpi úti á landi. Þar
fara snögglega að verða tíðir og
undarlegir þjófnaðir, sem lögregl
an getur ekki upplýst. Aðalsögu-
hetjan Pétur prakkari og tvö
leiksystkini hans komast á snoð
ir um það sanna í málinu, og mála
lokin verða dálítið óvenjuleg. Ein
ar Logi hefur samið leikritið og
söngtexta, og lögin segist hann
hafa soðið saman og notfært sér
ýmis gamalkunn stef. Leikendur
eru sjö talsins, þar af þrjú börn,
öl úr 10 ára bekk Miðbæjarsfcól
anis, þrír eru í Leiklistaskóla
Ævars Kvaran. Leifcstjóri er Inga
Laxness.
Barnaleikhúsið hyggst í fram
tíðinni flytja eitt leikrit á ári fyrir
börn.
60 taka þátt I kant
ötuflutningi í Há-
teigskirkju
GI-Reykjavík, föstudag.
Við guðsþjónustuna í Háteigs |
kirkju á sunnudaginn, verður mik'
ið tónverk eftir Johann Sebastian
Bach flutt. Verk þetta er kantata
tónskáldsins nr. 140 og heitir
„Vakna, Zions verðir kalla“. Alls
taika um sextíu manns þátt í flutn
ingi kantötunnar, og það er hinn
j ungi og dugmikli organleikari
! Langholtssafnaðar, Jón Stefánsson
I sem stjórnar kórnum, en hann er
| eini lærði kantorinn hér á landi,
| og hefur auk þess numið við tón
listarháskólann í Miinchen. Jón
er aðeins tuttugu og eins árs að
aldri.
Þeir sem flytjá kantötunia eru
Kirkjukór Langholtssafnaðar,
telpnakór úr Vogaskóla og hljóð
færaleikarar úr Synfóníuhljóm-
sveit íslands og Tónlistarskólanum
í Reykjavík. Einleikarar eru fimm
og einsöngvarar þrír, þau Ingveld
ur Hjaltested, Kristinn Hallsson
og Friðbjörn Jónsson.
FRAMSÓKNARVISTIN
Þriðja kvöldið í fjögurra kvölda spilakcppni Framsóknarfélags
Reykjavíkur verður að Hótel Sögu fimmtudaginn 4. apríl n. k.
og hefst kl. 8,30 síðdegis. Að spilunum loknum flytur Eysteinn
Jónsson ávarp, en vistinni stjórnar Markús Stefánsson. Afhend
ing verðlauna fer fram. Aðgöngumiða þarf að panta í síma
2 44 80.