Tíminn - 30.03.1968, Qupperneq 14
14
K1RKJUTÓNLEIKAR I KÓPA
VOGSKIRKJU OG VÍÐAR
Aðalheiður Guðmimdsdóttir,
söngkona, mun halda kirkjutón-
leika í Kópavorgskirkju þriðju
dagskvöldið 2. apríl n. k. M. 21.
Fyrirhugað er að endurtaka tón
leika þes'sa í Hafnarfirði og á
fleiri stöðum út um land á næst
umni.
Á söngskrénni eru verk eftir
innlenda og erlenda höfunda, þar
á meðal sex andleg Ijóð eftir Beet
hoven við texta eftir GeUert.
Páll Kr. Pálsson organleikari
leikur með á orgel. Aðalheiður
hefur á undanförnum árum stund
að söngnám í Austurríki og.Þýzka
landi, síðast hjá þýzka söngvaran
um og söngkennaranum Josef
Metternich.
Hún hefur sungið fyrir þýzka
útvarpið í Miinchen og í kirkjum
þar í borg, og haldið tónleika á
vegum Bayr. Volksbildumgs Ver
band við lofsamlega dóma
! Þ R 0 T T I R
Framhald af bls. 12.
Sveinaflokik einliða vann Hörð
ur Jðhannesson frá Akranesi.
Keppinautur hans var Helgi Bene
diktsson frá Val. Hörður sigraði
með 12:10 og 11:8.
í Sveinaflokki, tviliðaleik sigr-
uðu Helgi Benediktsson. Val og
Þórhallur Björnsson einnig frá
Val, þá Örn Geirsson TBR og
Hörð Jóhannesson frá Akranesi,
með 15:6 og 15:2.
TÍMINN
Mót þetta sem stjórnað var aí
Garðari Alfonssyni, fór í alla
staði vel fram og var spennandi
á að horfa allt thl loka.
Hftirtektarvert var hve Sigl-
firðingar eiga efnilega pilta þeg-
ar tekið er tillit til þess skamma
tíma sem þeir hafa haft góða að-
stöðu til badmintoniðkana.
En mesta eftirtekt og aðdáun
áhorfenda vöktu þrir leikmenn í
Unglingaflokiki, þeir Jóhannes Guð
jónsson frá Akranesi og Harald-
ur Kornelíusson og Sveinn Kjart-
ansson frá TBR.
LÖND OG LEIÐIR
Framihaild af bls. 1.
ast með málinu. Var bæði rætt
um þetta við ráðuneytið og bréif
send og fundargerðir, þar sem
skýrt var frá því, er ráðið hafði
fengið að vita um skuldamál
ferðaskrifstofunnar.
Segir ráðið m. a. í bréfi, dags.
6. þ. m. til samgöngumálaráðu-
neytisins:
„Það er samdóma álit Ferða-
málaráðs að nota beri nú öll til-
tæk ráð t;l að koma í veg fyrir
frekari skaða en þegar er orðinn
vegna vanskila ferðaskrifstofunn-
ar Lönd og Leiðir h.f.“.
Að lokinni könnun á gögnum
þeim, er fyrir lágu, tók samgöngu-
málai-áðuneytið þá afst'öðu að
svipta ferðaskrifstofuna leyfi til
ferðaskrifstofureksturs".
26 dögum eft;r að bréf þetta
var sent, kom síðan tilkynningin
um ákvörðun ráðuneytisins.
! Þ R Ó T T I R
Framhald af bls. 12.
hófst í fyrra. Af þessu leiðir,
að grasvellir eru ónothæfir
fram í maílok. Auk þess hafa
sunnanfélögin oftast leikið 8
—10 keppnisleiki, þegar Akur
eyrarliðið hefur þátttöku í ífi-
landsmótinu, etfir að hafa leik
ið 1—2 æfingaleiki.
— Við höfum fullan bug
á að láta söguna ekki endur
taka sig í sambandi við fyrstu
leikina í vor. Við ætlum að
sigra í þeim en ekki tapa. Það
er æft af meira kappi en í
fyrra, áhuginn er mi'kill, og
við munum í vor leita eftir
æfingaleikjum og jafnvel reyna
að koma á móti, áður en 1.
deildar keppnin hefst.
— Við knattspyrnuimenn hér
erum mjög óánægðir með út-
drált í íslandsmótinu. Síðast-
liðinn þrjú ár höfum við ávallt
hafið mótið. Finnst okkur, að
vel mætti taka tillit til að-
stæðna hér fyrir norðan í þessu
tilviki. Einnig þykir okkur ákaf
lega slæmt, hve misjafnt um
ferðir i íslandsmótinu hafa leik
izt. Þannig léku t.d. ÍA og
Fram síðasta leik mótsins í
fyrra, eftir að vitað var, að
ÍA var fallið niður í 2. deild.
Hefði leikurinn farið fram
jafnt lei'k KR og ÍBA, hefðu
viðhorfin verið önnur. Það er
munur á.^hvort liðið við upp-
haf leiks á allt eða ekkert að
vinna. Og við gerum það að
skýlausri kröfu okkar, að regl
an verði sú, að ,sé leik frestað,
verði hann leikinn, áður en
næsta umferð mótsins fer
fram. Persónulega þykir mér
vel koma til greina, að leikið
sé á Akureyri á virkum dög-
um, en ekki aðeins um helgar,
eins og gert hefur verið. Þann
ig væri alltaf hægt að leika
þrjá leiki mótsins i einu. og
það vki spennuna að mun.
— Knattspyrnuáhugi er ákaf
lega mikill á Akureyri og finns't
mér sjálfsagt. að hann sé verð
launaður með þvi að beina hing
að landsleikjum öðru hverju.
Á Norðurlöndum er algengt að
landsleikjum sé þannig beint
út á landsbyggðina. Aðsókn að
sMkum leik hér, t.d. B-lands-
lei'k, yrði örugglegða engu síðri
en í Reykjavík. Á venjulegan
1. deildarleik hér koma frá
2000 upp í 3000 manns, og
fólk úr nágrannabyggðunum
myndi flykkjast til Akureyrar
á landsleik.
— í ráði er að ég fari á
vegum Knattspyrnuráðs Akur-
eyrar til hálsmánaðar kynning
ardvalar hjá dönsku meistur-
unum AB í Kaupmannahöfn
um miðjan apríl. Vænti ég mik
ils af þeirri för. Danir leika
góða knattspyrnu, þeir eru á-
hugamenn eins og við, og skipu
lagsmál eru á háu stigi hjá
þeim. Vona^ ég, að þessi för
mín komi ÍBA að einhverju
gagni í sumar.
— Við þurfum endilega að
vinna íslandsmót á næstunni.
Langþráður draumur mundi þá
rætast, það yrði knattspyrnu-
í'þróttinni í bænum lyftistöng
oig meir yrði gert til þess að
greiða fyrir álhugamálium okk-
ar.
E.K.H.
WILSON
Framhald af bls. 1.
og Ray Gumter, atvinnumálaráð-
herra, myndu halda þingsætum
sínum, sagði Quintin Hiogg.
Brezku dagblöðin ræddu mjög
kosningaúrslitin í dag, og þá eink
um framtíð Harolds Wilsons. „Sit
ur hann áfram, getur hann setið
'áfram?“ var forsíðufyr;rsögn Ev-
ening Standard. Blaðið segir Wil-
son hafa glatað vinsældum sínum,
og að margir kjósendur treystu
honum ekki lengur.
Heath, leiðtögi íhaldsmanm'a,
var allofsafenginn í árásum sfn-
um á stjórnina, sagði þjóðina
aldrei fyrr hafa verið svo ein-
huga- að krefjast stjórnarskipta.
Iiann krafði'st almennra kosninga
þegar í stað. Samkvæmt stjórnar
skránni getur stjórnin setið þrjú
ár enn. Ef hún gerir það, steyp-
ir hún þjóðinni í hættu, sagði
Heath.
Ef sú breyting, sem varð á at-
kvæðamagni flokkana, yrði hin
sama um allt landið í almennum
þingkosningum, þá myndi íhalds-
flokkurinn ná völdum og fá 420
þingmenn kjörna af 630 í neðri
málstofunini.
1 Þ R O T T I R
Framhald ai bls. 12.
Vilhjálmur Sigurgeirsso'n átti
maj-gar snjallar línusendingar.
Á eftir þessum leik léku Danir
og Finnar og unnu Danir 14:7.
Þennan leik dæmdi Valur Bene-
diktsson.
Leikurinn í Lögstör.
Jón Ásgeirsson var afar ánœgð-
ur með byrjunina hjá íslenzku
stúlkunum. „Þær voru ekki bara
ákveðnar, heldur grimmar og
gáfu ekkert eftir. Þannig tókst
þeim á fyrstu mínútunum að
skora 4:0 og tryggja sér það for-
skot, sem nægði til sigurs“, sagði
Jón. Staðan í hálfleik var 7:4.
Undir lokin var baráttan mjög
tvísýin, en íslenzku stúl'kurnar
unnu verðskuldað 11:10. Þess má
geta, að íslenzka liðið misnotaði
3 vítaköst. Mörkin skoruðu: Björg
5 (2 víti) Ragnheiður 3, Kolbrún
2 og Halldóra 1.
í dag, laugardag, verður keppn
inni haldið áfram á báðum stöð-
um. íslenzku piltarnir leika gegn
Svíum, en stúlkumar mæta Dön-
um. Verður fróðlegt að vita,
hvernig þeim leikjum lyktar.
GufiJíiiv Styrkírsson
HASTARÉTTARLÖCMAÐUR
AUSTURSTRÆTI 6 SÍHI 18354
LAUGARDAGUR 30. marz 1968.
LEYNIMELUR 13
Framhald af bls. 3.
verki Guðríðar Tómasdófctur
sambýliskonu Sveins Jóns Jóns
sonar að ógleymdri Valgerði
VaMimiarsdóttur, sem leikur
Jakoibínu Tryggvadóttur þá
fyrirferðarmiklu tengdiamóðir,
með miklum tiliþrifum. Önnur
hlutverk sem minna má á
eru á'gætlega leikin s. s. Þor
grímur Guðmundsson skáld
(Toggi frá Traðankofci) leikinn
af Hafisteini Hannessyni, Dísa
þerna á heimili Madsens leik
in af Helgu Hannesdóttur,
Ferdinant Hekkenfelit leikinn
af sjóni Ormari Ormssyni. Sól
rún Steindórsdóttir leikur
Dóru Madsen, Gunnar Guð-
jónsson, Jónas Glas heimdlis
lækni, Guðrún Vagnsdóttir frú
Magnhildi Skúliadóttur og Hólm
fríður Ragnarsdóttir leikur Ósk
dóttur Magnhildar. Gylfi Geir
aldsson fer með hlutverk
Máruisar Sigurj'ónssonar, Bragi
Haraldsson með hlutverk
Sfcefáns Pálssonar lögreglu-
þjóns.
ELDFLAUGAR
Framhald af bls. 16.
að týnda eldflaugin haf' fallið nið
ur um ís og Mggi í djúpu lóni.
Hefur mikið verið leitað að eld-
flauginni, en ekki er hægt að
leita í lóninu, þar sem á því er
iþykkur ís. Strax og lónið verður
autt mun froskmaður kafa í það
og leita eldflaugarinmiar.
Þegar eldflaugarnar voru
sprengdar í kvöld, voru nærstadd-
ir, auk varnarliðsmanna, fulltrúi
sýslumanns í Rangárvallasýslu,
yfirl'ögregluþjónniinn á Hvolsvelli
og yfirlögregluiþjónn Keflavíkur-
flugvallar.
Sórsfcök rannsóknairnefnd kom
hingað frá Bandaríkjunum til að
ramnsaka flugslysið. Voru nefnd-
armenn fyrdr austan í dag og
könnuðu staðhætti á slysstaðnum.
Stórir flutningabílar bornu aust
ur í dag og mun flak þotunnar
verða flutt á þeim til Keflavíkur-
flugvallar á morgun. Sprengja
varð annan vænginn til að hægt
væri að koma honum á bíl. Þeir,
sem viðstaddir voru, segja, að
það hafi verið mun meiri spreng-
ing en þegar eldflauganniar voru
eyðil'agðar.
Talsverðar skemmdir hafa orð-
ið á sverðinum á því svæði, sem
iþotan lenti, en það var inni í
sandgræðslug'rðingu. Mikill olíu-
bruni varð á stóru svæði og nær
bruininn djúpt niður í svörðinn.
Verður að bylta jarðveginum á
stóru svæði til að gróður fái þrif-
izt þar.
NITTO
JAPÖNSKU NITT0
HJÓLBARDARNIR
I floitum stærð.um fyrirliggjandi
I Tollvðrugeymslu.
FUÓT AFGREIÐSLA.
DRAN6AFELL H.F.
Skipholti 35-Sfmi 30 360
Royal
VÖRUGÆÐUNUM MÁ ÆTÍÐ TREYSTA
Leikhús á geimferdaöld
er nafnið á námskeiði, sem Norræna leikhússam-
bandið gengst fyrir í Háselbyhöll í Stokkhólmi
dagana 12.—13. maí næstkomandi.
Umræðuefni námskeiðsins verða um tæknileg
hjálpartæki leikhúsanna, svo sem hljómtæki,
skuggamyndir, filmur og elektronik.
Þátttakendur geta fengið herbergi og mat á
Háselby meðan námskeiðið stendur.
Félagar í Norræna leikhússambandinu eiga rétt
á þátttöfcu eftir því sem húsrúm leyfir.
ÞAKKARÁVÖRP
Öllum þeim er heimsóttu mig og glöddu með ástúð-
legum kveðjum og gjöfum á sjötugsafmæli mínu,
þann 24. þ.m., sendi ég hjartans kveðjur og hugheilar
þakkir. — Guð blessi yður öll.
Þorsfeinn Jóhannesson.
Útför
Helgu Valtýsdóttur
lelkkonu,
verSur gerS frá Dómkirkiunni í Reykjavík kl. 2 s. d. mánudaginn 1.
apríl. Blóm eru afbeSln, en vinum hinnar látnu, bent á Minningar.
sjóS Félags íslenzkra ieikara.
Hulda Vaifýsdóttir
og börn hinnar látnu.
Hjartkær maSurinn minn,
Sigurjón Jónsson
frá ÞorgeirsstöSu,m
lézt f Landsspífalanum, 29. þ. m.
Ólöf VernharSsdóttir.