Alþýðublaðið - 30.12.1989, Blaðsíða 7
eecr
1S ) ) > I
Laugardagur 30. des. 1989 7
FRÉTTAANNÁLL ALPÝÐUBLAÐSINS 1989
Halldór Ásgrímjson, vinsalasti stjómmálamsi-
urínn á íslandi í lok ársins. Hann stói fástur
fyrir í hvalamáiinu 09 sést hér taka á móti þýsk-
um blaiamönnum. Halldór bertti sér á margvís-
legan hátt í hvalamálinu, fór mjt. tii Vestur-
Þýskalands til ai raeia vii kaupendur rslensks
sjávarfangs. Hann hafði sigur á endanum, vii-
skiptin eru aftur komin í eililegt horf, vísinda-
áastlun Islendinga var viiurkennd á fundi Al-
þjóia hvalveiðiráðsins.
__________JANÚAR_________________
Á RAUÐU UÓSI. Nafnið á fund-
arherferð þeirra Jóns Baldvins
Hannibalssonar formanns Alþýðu-
flokksins og Ólafs Ragnars Gríms-
sonar formanns Alþýðubandlags-
ins, sem stóð frá 14.—28. janúar.
Herferðin leið nokkuð fyrir óhag-
stætt veður og andstöðu innan
flokkana en víðast þar sem þeir fé-
lagar komu var fullt hús.
INGÓLFUR GUÐBRANDSSON.
Forstjóri Utsýnar og fyrrum eigandi
ferðaskrifstofunnar var rekinn úr
starfi af nýjum eigendum. Um leið
sagði sonur Ingólfs — Andri M. Ing-
ólfsson upp starfi sínu sem fram-
kvæmdastjóri. Þar með lauk ára-
tugaafskiptum Ingólfs, sem kalla má
ferðaskrifstofukóng íslands, af
ferðamálum.
STÓRBRUNI. Húsnæði Gúmmí-
vinnustofunar að Réttarhálsi í
Reykjavík brann til kaldra kola.
Tjónið varð gífurlegt. Við skoðun á
húsinu kom í ljós að fjöldi atriða
varðandi eldvarnir voru ófrágengin
og síðar að eldvarnareftirlit á land-
inu virtist reyndar allt í molum.
ARNARFLUG. Enn hafði engin
botn fengist í mál Arnarflugs, málið
var komið inn á borð hjá ríkisstjórn
vegna skulda félagsins. Skiptar
skoðanir voru um málið í ríkis-
stjórninni. Eina marktæka niður-
staðan var sú að Arnarflug yrði ekki
gert gjaldþrota.
BORGARAFLOKKUR í STJÓRN.
Viðræður við Borgaraflokkinn um
aöild að stjórnarsamstarfinu héldu
áfram. Feðgarnir Albert Guðmunds-
son og Ingi Björn Albertsson voru
tregir í taumi sem fyrr. Þreifingar
héldu áfram út mánuðinn.
SAMBANDIÐ. Aðra viku í janúar
voru tilkynntar niðurstöður nefndar
innan vébanda SÍS, sem gerðu ráð
fyrir að Sambandið yrði bútað nið-
ur. Valur Arnþórsson, fráfarandi
stjórnarformaður, var einn höfunda
skýrslunnar. Guðjón B. Ólafsson var
henni algjörlega andvígur. í skýrsl-
unni var ekki orð um verksvið for-
stjóra SÍS. Fram kom að Sambandið
Valur uiudi skýrslu þar stm haiw lagði til ai
Sambandið yrii bútai niiur tg flest fyrirtaski
t>ess geri ai hlutafélögum. GuSjón métmtehi
krefhiglega, enda var ekkert minnst á starf fbr-
stjóra í skýrslunni. Svo for Valur í Landsbankann
en Guijón hélt ófram ai berjast vii gríÍaHegan
taprekstur SÍS.
hafði tapað 800 milljónum árið
1988.
KJARASAMNINGAR Verka-
lýðsfélögin leituðu eftir fundum
með ráðherrum vegna komandi
kjarasamninga. Verðstöðvun rann
út 1. mars en reyndin varð sú að fyr-
ir þann tíma hafði ekkert gerst.
GALLI í TRYGGINGARFORRITI.
Galli í tryggingarforriti hjá Trygg-
ingarstofnun ríkisins olli því að 677
bótaþegar fengu bakreikning vegna
vangoldinna skatta sem þeir áttu
ekki að greiða.
SKULDABREF ATVINNUTRYGG-
ingarsjóðs. Ríkisstjórnin neyddist til
með breytingu á bráðabirgðalögun-
um um sjóðinn, að ábyrgjast bréfin
svo þau væru gjaldgeng á markaði.
SVERRIR ÓG BIÐLAUNIN. Eftir
að uppvíst varð um að Sverrir Her-
mannsson haföi þegið biðlaun frá
Alþingi, þrátt fyrir að fá laun sem
bankastjóri á sama tíma. Fékk ríkis-
endurskoðun málið til skoðunar.
„Vií srtjum bars eg bíðum." Benedikt 6riindel
hélt að tími sinn í utenríkisþjónustunni veri lið-
inn þegar henn fregnaíi ef því eð utenríkisráð-
herra hefði ákveðið eí leggje niiur embaetti
heimasendiherra. Svo fár ()ó ekki. Benedikt hélt
glaiur og rerfur til New Vork og settist sem
fastafulltrúi íslands hjá Sameinuiu ýjóiunum.
Seinna í mánuðinum kom í Ijós að
Sverrir átti hlut i fyrirtæki sem hon-
um var óheimilt.
NÝ LÁNSKJARAVÍSITALA.
Kynntur var grunnur að nýrri láns-
kjaravísitölu þar sem launavísitala
skyldi vega einn þriðja hluta á móti
framfærslu- og bygginarvísitölu.
Launþegahreyfingin mótmælti.
Óvissa ríkti um kaup lífeyrissjóða á
Jóhenne étti í vandratium mei elþingismenn út
ef húsbréfekerfinu. Hún hótaii ai segje ef sér
ef málii kemist ekki í gegnúm þingii. Og henni
tókst þeð, mei seiglunni hafði hún málii í gegn.
skuldabréfum Húsnæðisstofnunar
vegna þessa.^
HVALAMÁLIÐ. Aldi suður-fyrir-
tækið í V-Þýskalandi rifti samningi
um kaup á islensku lagmeti í kjölfar
hvaladeilunnar. Sumir héldu fram
að samningnum hefði verið rift
vegna galla í íslensku vörunum.
Seljendur þvertóku fyrir að svo gæti
verið.
FEBRÚAR
STJÓRNARMYNDUN. Enn
héldu áfram þreifingar um inn-
göngu Borgaraflokks í ríkisstjórn.
Akveðnir þingmenn Borgaraflokks-
ins héldu áfram að styðja ríkis-
stjórnina í mikilvægum málum með
hjásetu.
HVALAMÁLIÐ. Aldi norður-fyr-
irtækið kemur í kjölfar Aldi suöur
og riftir samningum um kaup á ís-
lensku lagmeti. Ástæðan; hvalveið-
ar íslendinga og þrýstingur á fyrir-
tækið þessvegna.
KJARASAMNINGAR. BSRB
lýsti yfir vilja sínum 14. febrúar til
að öll stéttarfélögin hefðu samflot í
samningunum. Sumir verkalýðsfor-
ingjar boðuðu skammtímasamn-
inga, aðrir vildu ekki sjá bráða-
birgðalausnir.
VARAFLUGVÖLLUR. í kjölfar
fundar með Wörner, framkvæmda-
stjóra Atlanshafsbandalagsins, lýsti
Jón Baldvin Hannibalsson því yfir
að mannvirkjasjóður bandalagsins
vildi eyða 11 milljörðum í varaflug-
völl á íslandi. Alþýðubandalags-
menn mótmæltu og töldu slíkan völl
hernaðarmannvirki og þar meö
brot á stjórnarsáttmáianum. Jón
Baldvin mótmælti. Hann taldi þaö
sitt mál aö ákveöa forkönnun slíks
vallar, ekki ákvörðun ríkisstjórnar.
HÚSBRÉFAKERFIÐ. Deilur
voru um frumvarpið um nýja hús-
bréfakerfið á Alþingi. Framsóknar-
flokkur með Alexander Stefánsson
setti sig upp á móti félagsmálaráð-
herra. Jóhanna lýsti því yfir 24.
febrúar að hún myndi leggja frum-
varpið fram þrátt fyrir hugsanlega
andstööu innan Framsóknarflokks-
ins.
HANDBOLTASIGUR ÍSLANDS.
íslenska handboltalandsliðið sigraöi
glæsilega á B-heimsmeistaramótinu
í Frakklandi. ísland sigraöi Pólland
29—26 í úrslitaleik.
___________MARS______________
VERÐSTÖÐVUN LÝKUR. 1.
mars lauk verðstöðvunartímabili
sem staðið hafði yfir frá seinni hluta
árs 1988. Um leiö fékk almenningur
á sig holskeflu verðhækkana, bæði
í opinbera- og einkageiranum. Ýtar-
leg verðkönnun Alþýðublaðsins síð-
ari hluta apríl staðfesti að verðbólg-
an fór á fullt um leið og verðstöðv-
uninni sleppti.
BJÓRINN KOM. 1. mars var sala
áfengs öls leyfð á Islandi eftir ára-
tuga hlé. Erlendir fjölmiðlar flykkt-
ust til landsins og allir skemmtistað-
ir voru löngu upppantaðir.
KJARASAMNINGAR. Eftir langt
þref hófust kjarasamningar. Ríkið
vildi leggja áherslu á félagslegar
umbætur. Launþegar vildu kaup-
hækkanir og ljóst var strax að mikil
harka myndi verða í samningavið-
ræðum BHMR og ríkisins. Sum félög
innan BHMR efndu þegar til at-
kvæðagreiðslu um verkfallsboöun.
Siðla mánaðarins bauð ríkið upp á
skammtímasamning eftir að félög
innan BHMR höfðu boðað verkfall.
I lok mars ákvað ríkisstjórnin að
greiða opinberum starfsmönnum í
verkfalli ekki laun. Þar með var
sprengju kastað inn á samninga-
borðið.
BORGARSTJÓRNARMINNI-
hlutinn. Viðræður voru í gangi um
sameiginlegt framboð og í öndverð-
um mars virtust á því góðar líkur.
Helst var talin andstaða hjá Kvenna-
lista.
SAMEINING TRYGGINGARFÉ-
laga. Formlega var tilkynnt að Al-
mennar tryggingar og Sjóvá yrðu
framvegis eitt félag. Sömuleiðis
Samvinnutryggingar og Brunabóta-
félag íslands.
JOHANNA STENDUR Á SÍNU. í
viðtali við Alþýðublaðið 11. mars
sagðist félagsmálaráðherra myndi
leggja fram húsbréfafrumvarpiö
hvort sem það nyti stuðnings ríkis-
stjórnar eða ekki. 14. mars sam-
þykkti Framsóknarflokkurinn frunt-
varpið eftir samningá um einstök at-
riði. Alþýðubandalagið samþykkti
daginn eftir.
STJÓRNARMAÐUR BEGGJA
vegna borðs. Árni Grétar Finnsson
lögmaður Hagvirkis sat stjórnar-
fund Landsvirkjunar þegar tekin
var afstaða til tilboða í Blönduvirkj-
un. Hagvirki átti þar tilboð og fékk
annan verkhlutann af tveimur. 1
samtali við Alþýöublaðiö sagði Árni
að hér væri ekki um hagsmuna-
árekstur að ræða þar sem ekki kom
til atkvæöagreiöslu um máliö á
fundinum.
LÍFSBJÖRG í NORÐURHÖFUM.
Þegar taka átti til sýningar myndina
Lífsbjörg í Norðurhöfum eftir Magn-
ús Guömundsson.reyndu Grænfrið-
ungar að fá sett lögbann á sýningu
hennar. Því var hafnað fyrir borgar-
dómi. Myndin vakti gríðarlega at-
hygli og var fátt meira rætt hér á
landi næstu daga eftir.
FRÍVERSLUN MEÐ FISK. Á ráö-
herrafundi EFTA-ríkjanna í Osló var
m.a. tekin ákvörðun um aö sam-
þykkja fríverslun með fisk innan frí-
verslunarsvæðisins. Afar mikilvægt
fyrir íslendinga. Að auki samþykkti
EFTA sameiginlega stefnuyfirlýs-
ingu í komandi könnunarviðræðum
við EB um hiö evrópska efnahags-
svæði.
ARNARFLUG. Ríkisstjórnin
ákvað að veita Arnarflugi 150 millj-
óna króna víkjandi lán til að halda
fyrirtækinu á floti. Ríkið sem var
orðið eigandi að flugvél félagsins
Ólafur Ragnar Gríwsson «g Ögwunúur Jérws-
son. Mennimir sew mest wwddi á í kjaresðwn-
ingum BSRB eg ríkisins. Þeir félagar leiddu )>á
deilu til lykta en spumingin er hwrt loforft Ólafs
hofi haldið megilega vel.
ákvað að selja hana og nota and-
virðið sem skuldagreiðslu af hálfu
Arnarflugs.
HERÆFINGAR. í lok mars bár-
ust fregnir um fyrirhugaöar æfingar
bandaríska hersins á Miðnesheiði,
hugsanlega þann 17da júni. Fréttin
sló óhug á Islendinga. í apríl varð
ljóst að umfangið var minna en fyrst
var haldið og tímasetningin ekki
rétt.
ÓLAFUR BISKUP. Séra Ólafur
Skúlason var kosinn biskup íslands
í fyrstu umferð biskupskosninga.
Hann fékk 56% atkvæða, aörir í
framboði voru sr, Heimir Steinsson,
sr. Sigurður Sigurðsson og sr. Jón
Bjarman.
________APRÍL__________
SJAFNARMÁLIÐ. Miklar deilur
uröu meðal Alþýöuflokks og Al-
þýöubandalags þegar Svavar Gests-
son menntmálaráðherra ákvað að
auglýsa lausa til umsóknar stöðu
skólastjóra í Ölduselsskóla. Sjöfn
Sigurbjörnsdóttir gegndi stöðunni.
BURT MEÐ HÁGSTOFUSTJÓR-
ann. Steingrímur Hermannsson
vildi au Hallgrímur Snorrason hag-
stofustjóri sæti ekki áfram sem for-
maður i bankaráði Útvegsbankans.
Steingrímur sagði að þaö væri óeöli-
legt að hann sæti þar en sætti sig við
það tímabundið.
KJARASAMNINGAR. Miklar
deilur spunnust vegna ákvörðunar
fjármálaráðherra að greiða ekki op-
inberum starfsmönnum í verkfalli
laun. Sáttasemjari gekk í deilu
BHMR og ríkisins, lítið miðaöi hjá
ASÍ og VSÍ en ríkinu og BSRB virtist
hinsvegar verða nokkuð ágengt. 6.
apríl féllst ríkisstjórnin á að samfara
samningum viö BSRB myndu niður-
greiðslur verða auknar og strangt
verðlagseftirlit haft á samningstím-
anum. Morguninn eftir skrifuðu rík-
ið og BSRB undir samninga. Þá fékk
ASÍ fordæmissamning. BHMR stóð
eitt til hliöar. VSÍ neitaði að semja
við ASÍ fyrr en ríkisstjórnin hafði til-
kynnt um varanlegar efnahagsað-
gerðir. Skólamálin komust í ólestur
vegna verkfalls kennara í HIK. Verk-
falli var afstýrt í Háskóla íslands
þann 27. apríl meb undirskrift
samnings Félags háskólakennara
við ríkið.
NÝJA LÁNSKJARAVÍSITALAN
Lífeyrissjóðirnir og ríkið stóðu i
samningum varðandi skuldabréfa-
kaup þeirra fyrrnefndu. Á endanum
Fundaharferð (orwanm A-flokkanra í bytjun ársins gekk erfiðlaga. Veðríð wr vont og wargir (oiystu-
manra flokbnm litu þetta uppáteki óhýra ougo. Það breytti þó okki því að mikið (jör wr á fundunum
og góð marting þar ssm formennimir fylltu niður feti.
t. mars wr dagurinn sow bjérinn bm til landsins. folk flykktist á sbmmfistaðim til að gera sér
glaðan dag, erlendir fjölmiðlar bmu til landsins til að verSa vitni að þessum mannlegu nóttúraham-
faram. Bindindismenn vöraðu við bjómum en landsmenn flestir bettust.