Alþýðublaðið - 30.12.1989, Síða 22
eatíi' .a-ab .08 Tjaebi&Qufj.
Laugardagur 30. des. 1989
Linda Steinunn
Pétursdóttir varö
Islandsmeistari
kvenna í fimleikum
1989. Hér er Linda
ásamt Fjólu Ólafs-
dóttur (til vinstri)
sem varö í 2. sœti
og Bryndísi
Guömundsdóttur
(til hægri) sem varð
í 3. sœti.
Knattspyrnan fjölmennust
KNATTSPYRNAN kemur fyrst
upp í hugann, því þar eru iðkend-
ur langflestir og áhorfendur vafa-
lífið einnig.
Knattspyrnusambandið og að-
ildarfélög þess störfuðu af miklum
þrótti á liðnu ári. I. deildarkeppnin
að þessu sinni var ótrúlega spenn-
andi og lauk með ánægjulegum
sigri KA og þetta er fyrsti sigur fé-
lags utan SV-hornsins í Islands-
mótinu. Valur varð Islandsmeist-
ari kvenna. Fram varð bikarmeist-
ari karla og Akranes í kvenna-
flokki.
Knattspyrnulandsliðin stóðu sig
með ágætum á árinu. A-liðið
komst aö vísu ekki til Italíu, en
árangur þess var eigi að síður
mjög góður. Jafntefli við Sovétrík-
in í Moskvu og Austurríkismenn
hér heima og sigur á Tyrkjum
heima er frábært. Naumur ósigur
gegn Austurríkismönnum á úti-
velli 1:2 og tap gegn A-Þjóðverjum
kostuðu sætið á Ítalíu. Annað sæt-
ið í Evrópukeppni landsliða 21 árs
og yngri á eftir V-Þjóðverjum var
mjög gott. M.a. jafntefli við sigur-
vegarana í riðlinum bæði heima
og heiman segir sitt Sigur á Hol-
lendingum á útivelli og jafntefli
heima var t.d. glæsilegt.
Næsta ár verður viðburðaríkt.
Fyrst skal nefna undankeppni A-
landsliðsins í Evrópukeppninni og
undankeppni Olympíuleikanna.
Ekki hefur enn verið dregið í riðla,
en rétt er að benda á, að uppistað-
an i Oiympíuliðinu verður vafa-
laust hið snjalla lið okkar sem
skipaði 21 ára liðið sl. sumar. Und-
ankeppni i Evrópukeppni ungl-
ingaliðanna, bæði 18 ára og 21 árs
fer fram næsta sumar. Dregið hef-
ur verið í riðla fyrrnefndu keppn-
innar, en þar eru í riðli með ís-
lensku drengjunum, Englending-
ar, Wales og Belgar.
Þó að allir sigrar séu vitaskuld
mikilvægir, er það hinn almenni
og mikli áhugi islendinga á knatt-
spyrnunni, ásamt vaxandi þátt-
töku unglinga á íþróttinni, sem
hlýtur að teljast ánægjulegast fyr-
ir Knattspyrnusambandið. Nýkjör-
inn formaður KSÍ er Eggert Magn-
ússon, en á siðasta þingi sam-
bandsins gaf Ellert Schram ekki
kost á sér til endurkjörs eftir 16 ára
farsælt starf sem formaður KSI.
Sigur í B-keppninni
ber hæst
HANDKNATTLEIKSÍÞRÓTTIN
var með miklum glæsibrag 1989
eins og mörg undanfarin ár. Eftir
8. sætið á Olympíuleikunum í
Seoul gætti nokkurrar óánægju
hjá almenningi, en hingað til hef-
ur þó 8. sæti á OL ekki þótt slæmt.
INNLEND
imm mm um áb
Úlfar Jónsson varö
íslandsmeistari í golfi.
mm em um Mnmmm
Alþýðublaðid ff jallar i
efftirffarandi grein um
það helsta sem gerst
heffur i einstökum
iþréttagreinum
innanlands á liðnu
ári og spáir i hvað
gerast muni á
komandi ári.
Örn Eiðsson sem ritað
heffur um iþróttir i
Alþýðublaðið ffyrr og
nú heffur annast eftir-
farandi samantekt.
Að hans dómi ber
sigur islenska lands-
liðsins i handknatt-
leik i B-keppninni i
Frakklandi hæst yffir
innlenda iþrótta-
viðburði ársins. Örn
f jallar ennfremur um
aðra atburði og
leggur mat á ein-
stakar greinar og
framtiðarþróun
þeirra.
Ragnheiöur
Runólfsdóttir hlaut
sex gullverötaun á
íþróttamóti
smáþjóöa sem
haldiö var á Kýpur
sl. sumar.
nm m um
íslenska landsliöiö í
handknattleik viö
verðlaunaafhendinguna
í B-heimsmeistara-
keppninni í París.
Einar Vilhjálmsson
spjótkastari hafnaöi 5.
sœti í heimsafreka-
skránni 1989. Einar
kastaöi lengst
84,66 metra.