Alþýðublaðið - 02.06.1990, Page 13
Laugardagur 2. júní 1990
GOÐA HELGI
13
Listmálarafélagið
opnar Listhús
í dag opnar Listmálarafélagiö Listhús að
Vesturgötu 17 í tilefni Listahátíðar. Níu úr-
vals listamenn munu sýna verk sín, þeir
Bragi. Ásgeirsson, Einar G. Baldvinsson,
Hafsteinn Austmann, Jóhannes Geir
Jónsson, Jóhannes Jóhannesson, Kjartan
Guðjónsson, Kristján Davíðsson og Valtýr
Pétursson. Með sýningunni vilja félagar í
Listmálarafélaginu heiðra minningu Val-
týs. Sýning er sérlega áhugaverð, hún
verðuropin kl. 14 til 18 alla daga fram til 20.
júní.
Magnús Tómasson — hann er á ferðinni í Ný-
höfn um helgina.
Magnús Tómasson i
Nýhöfn
Skúlptúrar Magnúsar Tómassonar verða
til sýnis í Nýhöfn, Hafnarstræti 18—20.
júni. Sýning hans opnar í dag kl. 14, opið til
16. Sýninguna kallar Magnús Land og
vætti, verkin mest unnin úr áli og járni.
Sýningin er framlag til Listahátíðar. Virka
daga er opið frá 10—18 nema mánudaga.
Um helgar 14—18.
Tryggvi í Slunkaríki
Tryggvi Ólafsson opnaði sýningu á dögun-
um í Slunkaríki á ísafirði og gefst Vestfirð-
ingum og gestum þar vestra tækifæri á að
skoða sýninguna um hátíðina. Tryggvi brá
sér heim frá Danmörku til að halda upp á
fimmtugsafmælið, m.a. með þessari sýn-
ingu í Slunkaríki, sem er metnaðarfullt
galleri þeirra ísfirðinga. Opið til 10. júní.
Eldgosa- og
flóttamyndir
í safni Ásgríms Jónssonar að Bergstaða-
stræti 74 stendur sýning á eldgosa- og
flóttamyndum eftir Ásgrím, 28 verk, þau
elstu frá því um aldamót.
Grafík í Ásmundarsal
Fjórar listakonur, þær Dagrún Magnús-
dóttir, Guðrún Nanna Guðmundsdóttir,
íris Ingvarsdóttirog Þórdís Elín Jóelsdóttir
sýna grafík í Asmundarsal. Opið daglega
frá 14—18
Galleri og bókasöfn
Edda Jónsdóttir sýnir verk sín um þessar
mundir hjá Sævari Karli í Bankastræti 9. í
Sparisjóði Reykjavíkur og nágrennis í Álfa-
bakka 14 má skoða myndir Katrínar Ág-
ústsdóttur. í Bókasafni Kópavogs sýnir
Matthea Jónsdóttir. Allar þessar sýningar
eru opnar á opnunartímum viðkomandi
fyrirtækja og stofnana.
Einfarar í Hafnarborg
Skemmtileg sýning er nú uppi í Hafnar-
borg, hinum glæsilega sýningarsal Hafn-
firðinga. Þar sýna eirifarar íslenskrar
myndlistar, naívistarnir svokölluðu.
Hressileg sýning sem enginn ætti að láta
framhjá sér fara. Sýningin er hið besta inn-
legg í Listahátíð 1990.
Grafik frá Frakklandi
í Listasafni ASÍ opnar í dag kl. 17 sýning á
grafíklist frá Frakklandi. Á sýningunni
kynnast menn ekki aðeins listinni sjálfri
heldur einnig listprentstofunum sem
prenta myndverkið. Opiðdaglega 16—19
en um helgar 14—19. Sýningin stendur til
1. júlí. Ókeypis aðgangur.
íslensk höggmyndalist
á Kjarvalsstöðum
Framlag Kjarvalsstaða til Listahátiöar er
yfirlitssýning á íslenskri höggmyndalist
fram til ársins 1950. Þar sjáum við verk
allra helstu myndhöggvara okkar. Opið frá
kl. 11 til 18.
Á Kjarvalsstöðumstanda yfirtværsýning-
ar til viðbótar, — Steinunn Þórarinsdóttir
sýnir höggmyndir unnar úr stáli og pott-
járni í vestursal. í austursal og báðum for-
sölum eru til sýnis útskriftarverk nemenda
Myndlista- og handíðaskóla íslands.
Raðhildur Ingadóttir á þetta verk, gert úr lakki og olíulit. Þaö er eitt verkanna á sýningunni í Þing-
holtunum.
Fyrir ofan garð og
neðan
Nýlistasafnið opnar óvenjulega sýningu í
Hallargarðinum í dag kl. 16, sýninguna Fyr-
ir ofan garö og neðan. Alls taka þátt í sýn-
ingunni 27 listamenn frá fjölmörgum lönd-
um og sýna þeir rýmisverk, myndbönd,
skúlptúra, hljóðverk og myndhreyfingar
fyrir garða og opin svæði í Þingholtunum.
Gestir nota sérstakt kort til að fylgjast meö
sýningunni og mun leikurinn berast víða
um nágrennið.
1||| : '"
iliif -V'
Guttormur Jónsson, — myndlist úr grjóti af Skipaskaga.
Skúlptúrar Guttorms
Guttormur Jónsson opnar sýningu á
skúlptúrum í Stöðlakoti, Bókhlöðustíg 6, i
dag kl. 14. Öll verkin eru unnin í grjót. Efnið
Með opna bibliu um
hvitasunnuna
Kristileg Dagskrá verður um hvítasunnuna
í Skálholti, messur, biblíulestur, og helgi-
stundir ýmsar. Dagskráin ásamt fæði og
húsnæði frá föstudegi til annars í hvíta-
sunnu kosta aðeins 5000 krónur. Hér gefst
gott tækifæri fyrir þá sem vilja hafa opna
biblíu um hátíðina.
Ferðalög um
hvitasunnu
Að venju verður mikið ferðast um hvíta-
sunnu, ekki síst þar sem veðurhorfur eru
bjartar. Útivist býður upp á göngutúr í
Kirkjuvogsbás-Blásíðubás kl. 13 á sunnu-
dag frá BSÍ. Þá er Bergtegundaferð á
mánudag, gengið frá Mógilsá að Esju-
bergi. Enn ein gönguferð er Hofsvík-Kjal-
arnestangar. Stuttar og spennandi ferðir.
Píanótónleikar
Francoise Choveaux
Hæfileikaríkur píanóleikari, Francoise Cho-
veaux,4eikurá sunnudaginn í Listasafni ís-
lands kl. 15. Aðgangur er ókeypis og allir
velkomnir. Hér er á ferðinni einn áhuga-
verðasti píanóleikari Frakka um langa hríð
og hefur hún ferðast víða um lönd og vak-
ið mikla athygli. Choveaux segir það
áhugaverðara að leika verk lítt þekktra
snillinga frekar en að leika það sem sama
og þúsundir annarra.
Sýning á verkum André
Masson
Á hádegi á hvítasunnudag verður opnuð í
Listasafni íslands sýning á verkum franska
listamannsins André Masson. Hér er um
að ræða einhvern fremsta myndlistar-
mann Frakka og frumherja í súrrealisman-
um. 52 myndverk eru synd. Opið í Lista-
safni íslands 12—22 á sunnudagog mánu-
dag, virka daga 12—18, um helgar 12—22.
Lokað mánudaga og á 17. júní.
Lilla Theatern
Lilla Theatern frá Helsinki er aö góðu
kunnugt á Listahátíð hér á landi. Einn leik-
aranna er Borgar Garðarsson, eins og
kunnugt er. LT sýnir hér „Leikhús Nikítas
gæslumanns", sem byggt er á sögu
Chekovs. Verkið hefur fengið mjög góða
dóma, m.a. í Svíþjóð. Finnar eru reyndar
taldir vera í fararbroddi í norrænni leiklist
nú, — og Lilla Theatern þar fremstir.
Áhugavert. Sýningar eru kl. 20.30 á sunnu-
dag og mánudag i íslensku óperunni.
Vínardrengjakórinn
Hinn heimsfrægi Vínardrengjakór sem allir
kannast við, syngur undir stjórn Peter Mar-
schik í Háskólabió kl. 17 á hvítasunnudag
og á annan í hvítasunnu. Kórinn syngur á
Akureyri ídag.
Abraham og ísak
John Speight hefur samið kirkjuóperu,
sem frumflutt verður í Háteigskirkju á ann-
an í hvítasunnu. Hún heitir Abraham og ís-
ak. íslenskir einsöngvarar fá þarna að
spreyta sig á athyglisverðu verki. Sýningar
hefjast kl. 21 á annan í hvítasunnu og á
þriðjudagskvöld.
í myndverkin eru sótt í nágrenni Akraness,
þar sem listamaðurinn býr, og öll bera
verkin nöfn kennileita þaðan. Sýningin
verður opin frá 13—18 daglega og lýkur 17.
júní.
Steingrimur Sigurösson að mála við Jórvík á
Skagaströnd.
Steingrimur í
Staðarskála
Steingrímur Sigurðsson, sá galvaskfípg
vinsæli listmálari sýnir i Staðarskála tím
þessar mundir. Vegfarendur sem leið éiga
um hina fjölförnu þjóðleið munu fagna því
að skoða verk Steingríms um leið og þeir
nærast hjá Staðarskálabræðrum. Sýning
Steingríms er hin 69. í röðinni, verkin fjöl-
breytt, m.a. frá Skagaströnd-þar sem
Steingrímur bjó um hríð í Jórvík.á Skaga-
strönd og á myndinni má sjá listamanni að
vinnu þar nyrðra.
Andrej Gavrilov — rússneskur píanóleikari i
heimsklassa leikur fmeð sinfóníuhljómsveit-
inni.
Sinfóníuhljómsveit
íslands
Tónleikar Sinfóníuhljómsveitarinnar verða
í dag kl. 17 í Háskólabíói kl. 17. Einleikari A.
Gavrilov, píanó. Stjórnandi J. Kaspszyk.
Fluttur verður 1812 forleikur Rachmanin-
offs, Varíasjónir Paganini og 3. sinfónía Be-
ethovens.