Alþýðublaðið - 08.11.1996, Síða 8
I
8
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 1996
flokkurinn
Hvað seaia binafulltrúarnir L
Árni Gunnarsson
Látum drauminn
rætast
„Flokksþingið verður fyrst og
ffemst að leggja áherslu á einhug og
samstöðu um lokaátak allra jafnaðar-
og félagshyggjuafla við undirbúning
að því volduga pólitíska afli, sem nú
er orðin þjóðamauðsyn að móta. I
búðum flokksins hefur alltof oft verið
efnt til óvinafagnaðar og persónuleg
átök hafa smækkað hann í tvennum
skilningi og komið í veg fyrir eðlilega
stærð jafnaðarmannaflokks á íslandi,"
sagði Ámi Gunnarsson í Hveragerði.
„Þingið verður í störfum sínum að
hafa hugfast að flokkurinn er og verð-
ur tæki þeirra sem hafha misrétti á öll-
um sviðum og vilja auka jafhrétti,
hvort sem er til lands eða launa, auð-
linda eða menntunar. Jafnaðarmenn
eiga nú meiri möguleika en um langt
árabil að láta gamla drauminn um
stóran jafnaðarmannaflokk rætast.
Skref hafa verið stigin í þá átt og eng-
inn má leggja stein í götu þeirra sem
vilja komast að langþráðu marki. Þetta
verður gott þing ef menn hemja til-
finningar sínar og hugsa meira um
flokk og stefhu en einstaklinga."
Eiríkur Stefánsson
Sameining efst
á baugi
„Það er löngu ljóst að félagshyggju-
öflin ná engum árangri meðan þau eru
jafn tvístruð og raun ber vitni. Það er
stærsta hagsmunamál Alþýðuflokks-
ins og annarra félagshyggjuafla að
þessi öfl nái saman. Það ber ekki neitt
á milli nema í einstaka málum og það
réttlætir ekki þessa sundrungu," sagði
Eiríkur Stefánsson á Fáskrúðsfirði.
Eiríkur sagði að illa gengi að sam-
eina sveitarfélög vegna þess að for-
svarsmenn þeirra væru á undan íbúun-
um sem væru ekki viðbúnir samein-
ingu. Þessu væri öfugt farið í pólitfk-
inni. Þar væru forystumenn félags-
hyggjuflokkanna á eftir kjósendum
sem vildu öflugan sameinaðan flokk
til að beijast fyrir hagsmunum þess.
,.Arrnars er það mikið áhyggjuefni að
nú þykir nauðsynlegt að til setu á Al-
þingis veljist eingöngu sprenglært fólk
sem hefur eytt hálfri ævinni á skóla-
bekk. Þar á verkafólk ekki lengur full-
trúar og því gengur hvorki né rekur að
rétta hlut þess,“ sagði Eiríkur.
Hann kvaðst ekkert vilja tjá sig um
formannskjör Alþýðuflokksins. Þar
yrði kosið milli hæfra manna, en
margir teldu tímabært að yngja upp í
forystunni.
Hervar Gunnarsson
Átök um menn en
ekki málefni
„Það verða eflaust átök um menn á
flokksþingingu og það er mjög áríð-
andi að menn komi niður standandi að
þeim loknum. Hins vegar ætla ég ekki
að tjá mig neitt um formannskjörið.
En ég á ekki von á að um málefnaleg-
Vib gerum tilbob,
þér að kostnaðarlausu,
í málnfngu og gólfefni á
stigahúsib. Þú getur valib úr þúsundum
lita í öilum málningartegundum á gólf eða
veggi og fjölbreyttu úrvali gólfefna.
Sérhönnuð gólfteppi, dúkar og flísar í miklu
úrvali. Fagmenn okkar vinna svo verkib bæbi
fljótt og vel.
Þú sparar tíma, fyrirhöfn og fé meb því ab láta
okkur sjá um málib frá upphafi til enda.
Klæbift stigahúsib tímanlega fyrir jól.
QUATTRO
- sérhönnud sfigateppi
• auðþrifin
• bælast ekki
• slitsterk
• margir hentugir litir
• hlýleg
Tilboðin giida
til áramóta!
VISA
Góbir greibsluskilmálar.
Rabgreibslur
Vantar þig flísar. dúk,
teppi eða málningu á
stigahúsiö?
Vantar þig góðan
fagmann til að annast
verkið?
Stígðu
skre
- láttu
o
q\]ATT^q
a gollið
''Vj'i/muð siig»"'vV
Suðurlandsbfaut 26 s: 568 1950
an ágreining verði að ræða á þinginu,“
sagði Hervar Gunnarsson á Akranesi.
Hervar sagði, að á fundi flokk-
stjómar fyrir nokkru hefði verið sam-
þykkt að á þinginu yrði höfuðáhersla
lögð á fjöiskyldumái og kjaramál. Það
mætti því búast við miklum umræðum
um þau mál og ýmis önnur. „Samein-
ingarmál eru ofarlega á baugi í þjóðfé-
laginu og hljóta að koma til umræðu á
flokksþinginu. Ég tel að þau mál haldi
sínu skriði eftir þingið, hver sem úrslit
verða í formannskjörinu, „ sagði Her-
var Gunnarsson.
Petrína Baldursdóttir
Þáttaskil í
forystunni
„Þetta flokksþing mun óneitanlega
markast af þessum þáttaskilum sem
verða í forystu flokksins. Jón Baldvin
er að hætta sem formaður og það mun
setja sinn svip á þingið. Hann hefúr
verið mjög afgerandi sem formaður
undanfarin 12 ár,“ sagði Petrína Bald-
ursdóttir í Grindavík.
, Eyrir utan formannskosningamar
þá verða sameiningarmálin sennilega
aðalmálið. Flokkurinn stendur á
ákveðnun tímamótum og í framhaldi
af sameiningu þingflokka Alþýðu-
flokks og Þjóðvaka verða þessi mál
fyrirferðarmikil. En ég held að menn
skiptist nokkuð í tvo hópa. Annars
vegar þeir sem vilja samvinnu við
aðra flokka og svo hinir sem vilja
ganga lengra. Ég held að þeir séu fleiri
sem vilja ffemur samvinnu en samein-
ingu. Formannsskipti og breytt forysta
kallar einnig á umræður um breyttar
áherslur í flokksstarfi. Þar fyrir utan
verða hefðbundin mál til umræðu á
þinginu, svo sem Evrópumál, sjávar-
útvegsmál, kjara- og fjölskyldumál,“
sagði Petrína Baldursdóttir. Hún
kvaðst ekki tilbúin til að lýsa því yfir
hvem hún styddi við formannskjör.