Alþýðublaðið - 08.11.1996, Blaðsíða 11
FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 1996
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
11
Friðrik með fínan hatt
Hvafl hefur verið ánœgjulegast á
undanfömum sex árum sem formaður
framkvœmdastjómar?
„Það er margt, enda langt í frá að
þetta hafi verið drepleiðinglegt.
Flokkurinn var í rikisstjóm frá 1987 til
1995 og hafði mikil áhrif. Uppspretta
hugmyndanna er og hefur verið í Al-
þýðuflokknum. Nú bíður enginn
spenntur eftir því hvað komi frá ríkis-
stjóminni, enda kemur ekkert nýtt frá
henni. Á sínum tíma vom allir hinir
flokkamir á móti EES- samningnum,
en hafa síðan snúist eins og snældur.
Það er eins með veiðileyfagjaldið. Það
á eftir að verða að veruleika, en Al-
þýðuflokkurinn er alltaf langt á undan
í hugsun og dregur þessa lest sem hin-
ir flokkamir em. En þetta á kannski
sinn þátt í að Alþýðuflokkurinn hefúr
aldrei orðið sú fjöldahreyfing sem
hann á skilið og Jón Baldvin ætlaði
honum. Þjóðin er á eftir flokknum. Ég
er ekki að segja að ný forysta þurfi að
hægja á sér, en hún þarf að skoða
hvað það er í ferlinu sem hefur mis-
tekist. Sjálfstæðisflokkurinn siglir allt-
af lygnan sjó og hefur lag á því að
vera ekki þar sem átök em. Flokkur-
inn þvær hendur sínar af því sem ger-
ist í heilbrigðismálum. Friðrik Sop-
husson er snillingur í því að vera und-
irrótin að öllu sem fjármálaráðherra,
en þykjast hvergi koma nærri. Hann
gengur um með sinn fína hatt og bros-
ir. En það er fjármálaráðherra sem set-
ur leikreglumar og sfðan er það aum-
ingja Ingibjörg Pálmadóttir sem verð-
ur að framfylgja boðum og bönnum
Friðriks. í þessu lentu lrka Sighvatur
og Guðmundur Árni. En Alþýðu-
flokkurinn hafði gífurleg áhrif í síð-
ustu ríkisstjóm og kom fram mörgum
góðum málum.“
Breyta ímynd flokksins
Nú er mikið rœtt um sameiningu
eða samvinnu svokallaðra fe'lags-
hyggju í einn stóran jafnaðarmanna-
flokk. Hefur þú trú á að það verði að
veruleika ínáinniframtíð?
„Ég hef svona hæfilega mikla trú á
því. Eg held að Jtað eigi að þróa þetta
sem samstarf. Eg held að breyting á
forystu Alþýðuflokksins núna muni
auðvelda það samstarf, alveg sama
hver verður formaður. Jón Baldvin
hefur setið svo lengi að hann er orðið
ákveðið tákn fyrir stöðuna eins og hún
er. Nú er Margrét tekin við Alþýðu-
bandalaginu, en Kvennalistinn hefur
engan formann og er stjómlaus flokk-
ur. Við fáum nýjan formann og það
hlýtur að vera kappsmál fyrir hann að
sýna ákveðna breytingu. Ég treysti
Sighvati Björgvinssyni fullkomlega til
að breyta Alþýðuflokknum. Hann er
ekki síður vel til þess fallinn en Guð-
mundur Ámi eða einhver annar. Ég tel
að nýr formaður eigi allt undir því að
breyta ímynd flokksins. Annars situr
hann ekki lengi. Reykjavfkurlistiiui er
ákveðinn tilraun sem tókst á sínum
tíma. Ef listinn lifrr næstu kosningar
tel ég góðar líkur á að um einhverja
sameiningu geti orðið að ræða. Það
eru miklir möguleikar til að búa til
einn stóran flokk, en ég held að fýrsta
skrefið eigi að vera samvinna flokka.
í þessu sambandi vil ég geta þess að
ég vil leggja niður nafn Alþýðuflokks-
ins og kalla flokkinn bara Jafnaðar-
mannaflokk íslands. Þetta er 80 ára
gamall flokkur og hefur lokið því hlut-
verki að vera aðeins hreyfing alþýð-
unnar eins og áður var. Það em allir
jafhaðarmenn í dag. Alla vega viður-
kennir enginn að hann sé ójafnaðar-
maður. Því tel ég nafnabreytingu auð-
velda fólki mjög að koma til liðs við
flokkinn og þetta er miklu stærra atriði
en menn vilja viðurkenna. Ég blæs á
að það snerti einhvetjar taugar eða til-
finningar að leggja niður nafn Al-
þýðuflokksins. Stjómmál em ekki trú-
arbrögð og ef við emm ekki menn til
að nefna flokkinn nútímalegu nafni er
ekki von til mikilla afreka. Stefna
flokksins er alveg skýr í öllum málum.
Hins vegar verðum við að hefja öfluga
umræðu um það hvemig eigi að jafna
lífskjörin í landinu. Flokkurinn verður
að leggja mun meiri áherslu á að hann
er að beijast fyrir bættum hag almenn-
ings.“
Styðurþú Sighvat til formennsku?
„Ég vil að þessi flokkur sé í hönd-
um góðs formanns og fer ekki dult
með að hendur Sighvats em þar mjög
góðar. Ég sé góðan formann í honum.
En því fer fjarri að ég hafi áhyggjur af
kosningu um formann og er ánægður
með að það skuli kosið um menn. Það
er ekkert eðlilegt að í það embætti sé
einhver sjálfskipaður og ég mun una
úrslitum kosninganna, hver sem þau
verða. En það er svo merkilegt með
Guðmund Áma Stefánsson, að það er
eins og hann eigi alltaf að vera sjálf-
skipaður mótaðili við einhvem annan,
sama hver það er. Mér finnst það lýsa
nokkrum hroka þegar Guðmundur
Ámi og Gunnlaugur bróðir hans lýsa
því yfir í Ijölmiðlum, að Jón Baldvin
sé bara eitt atkvæði á flokksþingi Al-
þýðuflokksins. Ég skil það hreinlega
ekki þegar menn segja að Jón Baldvin
hafi ekki meiri áhrif í Alþýðuflokkn-
um en hver annar. En hver sem úrslit í
formannskjöri verða, þá fær flokkur-
inn bara þann formann sem hann á
skilið," sagði Guðmundur Oddsson. ■
Guðmundur Oddsson:
Fjármálaleg staða
Alþýðuflokksins hefur
sjaldan eða aldrei
verið betri. Ljósm. E. Ól.