Vísir - 20.01.1976, Síða 2
Hefurðu fengið skatt-
framtalseyðublaðið i
hendur? /
Gar&ar örn, bilstjóri: — Já og
mér listhreint ekki illa a& fá það.
Þetta er einu sinni það sem maö-
ur má búast við hvert ár.
Eyþór Árnason, vélavirki: — Já
ég er búinn að fá það. Mér list
alltaf illa á það. En illu er vist
best aflokiö, svo það er ekkert
verra að fá það núna en einhvern
tima seinna.
Sólrún Kagnarsdóttir, af-
greiftsiustúlka: — Já, ég er búin
aftfá þaft i hendur. Mér list ágæt-
lega á þaft. Þetta er bara það sem
maftur fær á hverju ári.
Gunnar Gu&brandsson, vinnur
vift tæknistörf: — Vissulega er ég
búinn a& fá það. Mér list aldrei
vei á þaft blað. Þó kviöi ég ekk-
ert fyrir sköttunum, býst viö að
þeir verfti svipaðir og fyrri ár.
Magnús Sveinsson, kennari: —
Já, ég hef fengiö það i hendur og
er ekkert sérstaklega hrifinn.
Mér finnst þaö afturför frá þvi i
fyrra hve litill frádráttur er
vegna viöhalds á húsum. Að þvi
leyti horfir verr núna.
Paul Heide, úrssmiöur:— Nei, ég
er ekki búinn að fá það, en á von á
þvi fljótlega. Mér list vel á að fá
skattseðilinn i hendur. Það ber
öilum að borga sinn hlut til skatts.
Enskt drasl í útvarpinu
Jóhann Þórólfsson skrifar:
„Þannig er mál með vexti
að útvarpið flytur þátt á
hverjum fimmtudegi er heitir
sjómannaþáttur. Sá hængur er
á þessum þætti að það er engu
likara en að hann sé eingöngu
fyrir þulinn.
Ég skal skýra þetta sjónar-
mið mitt nánar. Siðast 8. þessa
mánaðar er ég hlustaði — sem
ég geri yfirleitt alltaf — og i
fleiri þáttum sagði þulurinn
yfirleitt alltaf við skulum
hlusta á þetta lag, en hún
getur þess mjög sjaldan hvaða
lög þeir sem senda þættinum
óskir — hvort sem það eru sjó-
mennirnir, eða konur þeirra
og fjölskyldur i landi — vilja
hlusta á.
Þess í stað setur þulurinn
plötur á fóninn svo aö segja
alltaf með ensku drasli, annað
hvort djass eða sinfóniur.
Kannski er þessi stúlka mikill
bretavinur, en mér finnst það
vægast sagt, eins og nú er
ástatt, mjög ósmekklegt að
spila nokkuð sem enskt er, að
ekki sé meira sagt.
Það er eitthvað annað að
hlusta á óskalög sjúklinga.
Þareru svo að segja allar ósk-
ir um islensk kvæði, islenskan
söng og islensk lög, enda lika
af nógu að taka i þeim efnum,
bæði harmonikulög og söng.
Ég vil nota þetta tækifæri til
þess að færa okkar framúr-
skarandi góöu og dugmiklu
varðskipsmönnum sem vinna
við erfiö og hættuleg störf,
mlnar bestu kveðjur með ósk
um aö þeir megi ávallt sigla
knerri sinum heilum i höfn.
Mættu bæði lögregla og þá
ekki siður dómsmálaráðherra
hafa þessa menn til fyrir-
myndar i sambandi við lög-
brjóta f landi og taka miklu
fastari tökum á þeim en nú er
gert.”
Ef bíll skrikar í hólku
Pétur Guðjónsson á Akranesi
hringdi:
„Töluvert hefur verið um
það að undanförnu að fluttir
væru umferðarþættir i sjón-
vari og útvarpi þar sem
leiðbeint er um akstur I hálku.
Að minu mati og annarra,
sem mikla reynslu hafa
i akstri við ýmis skilyrði, er
þarna farið með rangt mál og
villandi.
t umferðarþáttunum er sagt
að ef bill skriki i lausamöl eða
hálku eigi að kúpla sundur,
eðaaftengja vélina eins og þar
er vist sagt.
Að okkar dómi er þettta al-
rangt, það má einmitt ekki
kúpla sundur. t stað þess er
vænlegra að gefa upp bensin-
gjöfina, varlega, og nota svo
stýrið til þess að ná valdi yfir
bilnum. — -
Ég hef rætt þetta meðal
annars við reyndan oliubil-
stjóra og hann er mér sam-
mála að þessar upplýsingar i
umferðaþáttunum séu villandi
og jafnvel stórhættulegar fyrir
óvana bilstjóra.”
Draga andann á annara kostnað
S. og A. skrifa:
„Kæru lesendur.
Við erum hér tvær stúlkur á
tvitugsaldri er höfum verið at-
vinnulausar f u.þ.b. hálft ár.
Við höfum sótt um vinnu lát-
laust en án árangurs. Er at-
vinnulíf á íslandi svo lélegt að
fólk þurfi t.d. að leita út fyrir
sitt eigið land, eða er ástandið
svo svart, (ef svo má að orði
komast), að fólk þurfi að vera
i einhverjum klikum og þess
háttar samböndum til að fá at-
vinnu?
Við höfum þurft að draga
andann á annarra kostnað en
eins og allir vita er ekki hægt
að bjóða neinum upp á slikt
endalaust.
Auðvitað þurfum við eins og
aðrir okkar skammt til lifs-
viðurværis, þess vegna væri
álit ykkar kæru lesendur vel
þegið.”
Svona er lífið
Theodór Einarsson, sendi þennan brag til að lifga upp
húmorinn:
Lag, Gæti ég krækt I danskan dáta, sem dálitift borftaiagður er.
W
Lifið er skjálfandi litið gras,
lemjandi rigning og dægurþras,
Vormaður Islands hann Vilmundur
vekur hjá kerfinu stórundur.
Þeir ætluðu að gera Guðna blankan
en gátu það ekki ha ha ha ha (hlátur)
Sunna mátaöi Seðlabankann
Já, svona er lifið hæ trall la la.
Hann fór inn i banka og fékk sér lán
það fannst þeim i kerfinu algjör smán,
Alþýöubankinn varð alveg þúrr
átti ekki sent fyrir hálfum spur.
Þeir ætluðu að gera Guðna blankan
en gátu það ekki há ha ha ha,
Sunna mátaði Seðlabankann
Já, svona er llfið, hæ trall la la.
Og Guðni i pilagrimsferðir fór
fann að nú var hann orðinn stór.
Frá Jerúsalem til Jerikó,
frá Jórdaniu til Mekkanó.
Þeir ætluðu að gera Guðna blankan
en gátu það ekki ha ha ha ha.
Sunna mátaði Seðlabankann.
Já, svona er lifið, hæ trall la la.