Vísir - 20.01.1976, Síða 12

Vísir - 20.01.1976, Síða 12
12 Þriðjudagur 20. janúar 1976. vism Af ýmsu má hafa Framhald 10. 50% af fengnu meðlagi eöa barnalífeyri, sbr. á bls. 1. Hér skal færa helming fengins meðlags eða barnalifeyris á ár- inu 1975 með börnum til 17 ára aldurs, þó að hámarki 50% barnalífeyris skv. 14. gr. al- mannatrygginga laganna sem á árinu 1975 var 46.176 kr. Þessar meðlagsgreiðslur og barnalifeyrir teljast þó ekki til tekna hjá einstæðu foreldri. Ef foreldrar barns búa saman i óvigðri sambúð telst hvorugt þeirra einstætt foreldri þótt þau framfæri á heimilinu barn eða börn sem þau hafa ekki átt saman og skal meðlag eða barnalifeyrir með þvi eða þeim börnum að hálfu talið til tekna hjá sambýlismanninum, hvort Helmingínn af fengnu meðlagi skal reikna sér sem tekjur. greiddur er frá almanna- tryggingum vegna örorku eða elli foreldra (framfæranda) eða með barni manns sem sætir gæslu- eða refsivist. Hér skal enn fremur færa mæðralaun úr almanna- tryggingum, greidd ekkjum, ógiftum mæðrum og fráskildum konum sem haf börn, yngri en 16 ára, á framfæri sinu. Sama gildir um sambærileg laun sem greidd hafa verið einstæðum feðrum eða einstæðu fósturfor- eldri. A árinu 1975 voru mæðralaun sem hér segir: Fyrir 1 barn 15.865 kr., 2 börn 86.123 kr. og fyrir 3 börn eða 172.231 kr. Meðtaldar eru hækkanir i des. 1974 sem greiddar voru á árinu 1975. Hækkanirnar námu 34 kr. fyrir 1 barn, 185 kr. fyrir 2 börn og 370 kr. fyrir 3 börn eða fleiri. Ef barn bætist við á árinu eða börnum á framfærslualdri fækkar verður að reikna sjálf- stætt hvert timabil sem móðir nýtur bóta fyrir 1 barn, fyrir 2 börn o.s.frv. og leggja saman bætur hvers timabils og færa i einu lagi i kr. dálk. Mánaðargreiðslur á árinu 1975 voru sem hér segir: Fyrir 1 barn: Jan.—-mars 1.170 kr. á mánuði April—júni 1.275 kr. á mánuði Júli—des. 1.416 kr. á mánuði Fyrir 2 börn: Jan.—mars 6.352 kr. á mánuði April—júni 6.924 kr. á mánuði Júli—des. 7.685 kr. á mánuði Fyrir 3 börn og fleiri. Jan.—mars 12.703 kr.ámánuði April—júni 13.846 kr. á mánuði Júli—des. 15.369 kr. á mánuði sem hann er faðir barnsins (barnanna) eða ekki. 11. Tekjur barna. Hér skal færa i kr. dálk sam- tölu skattskyldra tekna barna yngri en 16 ára i E-lið- bls 4. i samræmi við leiðbeiningar um útfyllingu hans. 12. Laun eiginkonu Hér skal færa launatekjur eiginkonu. 1 lesmálsdálk skal rita nafn launagreiðanda og launaupphæð i kr. dálk. Athuga skal að þótt helmingur eða hluti af launatekjum giftrar konu sé frádráttarbær ber að telja allar tekjur hér. Aðrar tekjur. Hér skal færa til tekna hverjar þær skattskyldar tekjur sem áður eru ótaldar, svo sem: (1) Eftirlauna- eða lifeyris- greiðslur, þ.m.t. barnalifeyri- úr eftirlauna- eða lifeyris- sjóöum eða frá öðrum aðilum, þ.m.t. lifeyrisgreiðslur og greiðslur með börnum úr llf- eyrissjóöum á vegum Trygg- ingastofnunar rikisins, gefnar upp á bótamiðum frá henni. (2) Skattskyldar bætur frá al- mannatryggingum, aðrar en þær sem taldar eru i tölu- liðum 8, 9 og 10, III og skulu þær nafngreindar, svo sem ekkju- og ekklabætur, lifeyrir til ekkju eða ekkils, lifeyrir vegna maka og barna örorku- lifeyrisþega, makabætur og örorkustyrkur. Einnig skal færa he'r barnalifevri sem (3) Styrktarfé, þ.m.t. náms- styrki frá öðrum aðilum en rikissjóði eða öðrum opinber- um sjóðum, innlendum ellegar erlendum ellegar er- lendum, gjafir (aðrar en tækifærisgjafir), happdrættisvinninga (sem ekki eru skattfrjálsir) og aðra vinninga svipaðs eðlis. (4) Skattskyldan söluhagnað af eignum, afföll af keyptum verðbréfum og arð af hluta; bréfum vegna félagsslita eða skattskyIdrar útgáfu jöfnunarhlutabréfa. (5) Eigin vinnu við eigið hús eða ibúð að þvi leyti sem hún er skattskyld. (6) Flutningskostnað milli heimilis og vinnustaðar sem launþegi fær greiddan frá at- vinnuveitanda. (7) Bifreiðastyrki fyrir afnot bifreiðar framteljanda. Skiptir þar eigi máli i hvaða formi bifreiðastyrkur er greiddur, hvort heldur t.d. sem föst árleg eða timaviö- miðuð greiðsla, sem kiló- metragjald fyrir ekna km. eða sem greiðsla á eða endur- greiðsla fyrir rekstrarkostnaði bifreiðarinnar að fullu eða hluta. Enn fremur risnufé og endurgreiðslu ferðakostnaðar launþega, þar með talda dag- peninga þegar launþegi starf- ar utan venjulegs vinnustaðar á vegum atvinnuveitanda. Um rétt til breytinga til lækkunar vegna þessarar framtöldu tekna visast til leiðbeininga um útfyllingu töluliða 3, 4 og 5 i IV kafla. Ekki kemur sl Þetta getur lœkkað fram- taldor tekjur 1. SkyIdusparnaöur skv. lögum um Húsnæöis- málastofnun ríkisins Hér skal færa þá upphæð sem framteljanda á aldrinum 16—25 ára var skylt að spara og inn- færð er i sparimerkjabók árið 1975. Skyldusparnaður er 15% af launatekjum eða sambæri- legum atvinnutekjum sem unnið er fyrir á árinu. Sparimerkjakaup umfram skyldu eru ekki frádráttarbær. Skyldusparnað skv. lögum nr. 11/1975, sem innheimtur var meö sköttum gjaidárið 1975, má ekki færa i þennan reit enda ekki leyfður til frádráttar tekjum. 2. Frádráttur frá tekjum barna skv. F-liö á bls. 4. Hér skal færa i kr. dálk sam- tölu frádráttar i F-lið, bls. 4, i samræmi við leiðbeiningar um útfyllingu hans.. 3. Rekstrarkostnaður bif- reiðar, sbr. bifreiöastyrk. Hér skal færa sannanlegan kostnað vegna rekstrar bif- reiðar i þágu vinnuveitanda enda hafi bifreiðastyrkur verið talinn til tekna i tölulið 13, III. Útfylla skal þar til gert eyðu- blað „Bifreiðastyrkur og bif- reiðarekstur á árinu 1975” eins og form þess og skýringar segja til um. Enn fremur skal fylgja greinargerð frá vinnuveitanda um ástæður fyrir greiðslu bif- reiðastyrksins. Til frádráttar kemur sá hluti heildarrekstrar- kostnaðar bifreiðarinnar er svarar til afnota hennar i þágu Bilastyrkur reiknast sem tekj- ur. A þær tekjur kemur fullur skattur, en iækka má þær með þvl að telja fram kostnað við rekstur bílsins, t.d. bensinkaup. vinnuveitanda, þó eigi hærri upphæð en nemur bifreiðastyrk til tekna i tölulið 13, III. Frá kröfunni um útfyliingu og skil greinds eyðublaðs er þó fallið hafi framteljandi i tak- mörkuðum og tilfallandi tilvik- um notað bifreið sina i þágu vinnuveitanda sins að beiðni hans og fengið endurgreiðslu (sem talin er til tekna eins og hver annar bifreiðastyrkur) fyrir hverja einstaka ferö. I slikum tilvikum skal framtelj- andi leggja fram akstursdag- bókaryfirlit eða reikninga sem sýna tilgang aksturs, hvert ekið og vegalengd i km ásamt stað- festingu vinnuveitanda. Sé þessum skilyrðum fullnægt og talið aö hér sé um raunverulega endurgreiðslu afnota að ræða i þágu vinnuveitanda, enda fari þau ekki i heild sinni yf ir 1.500 km á ári, má leyfa til frádráttar fjárhæð^em svarar til km notk- unar margfaldaðrar með: 20,60 kr. fyrir timabilið 1/1 til 1/4 1975 22,00 kr. fyrir timabilið 1/4 til 15/9 1975 26,00 kr. fyrir timabilið 15/9 til 31/12 1975 Þó aldrei hærri fjárhæð en talin var til tekna. 4. Risnukostnaöur, sbr. risnufé. Hér skal færa sannanlegan risnukostnað, þó eigi hærri upp- hæð en nemur risnufé sem talið hefur verið til tekna i tekjulið 13, III. Greinargerð um risnukostn- að skal fylgja framtali ásamt skýringum vinnuveitanda á risnuþörf. 5. Kostnaður vegna feröa á vegum vinnuveitenda. Hér skal færa: a. Sömu upphæð oe talin hefur verið til tekna i tekjulið 13, III, sé um að ræða ferðakostnað og annan kostnað sem fram- teljandi hefur fengið endur- greiddan vegna fjarveru frá heimili sinu um stundarsakir vegna starfa i almennings- þarfir. b. Beinan kostnað framteljanda vegna fjarveru frá heimili sinu um stundarsakir vegna ferða á vegum vinnuveitanda hans, annarra en um ræðir i a- lið, þó eigi hærri upphæð en endurgreidd hefur verið af vinnuveitandanum og talin til tekna i tekjulið 13, III. 6. Laun undanþegin skv. 6. gr. og B-liö 10. gr. skattalaganna. Hér skal færa sömu upphæð launa og talin hefur verið til tekna i tekjulið 6, III, falli launin undir ákvæði 6. gr. skattalag- anna um undanþágu frá tekju- skatti eða undir ákvæði B-liðar 10. gr. skattalaganna. 7. 50% af greiddu meö- lagi, sbr. á bls. 1. Hér skal færa helming þess greidda meðlags með börnum, yngri en 17 ára, sem upplýsing- ar eru gefnar um á bls. 1, þó að hámarki sem svarar hálfum barnaliféyri úr almannatrygg- ingum á árinu 1975 eða mest 46.176 kr. fyrir hvert barn. Allt viðhald á bilnum, rekstur og varahlutakaup má telja fram til aö fá breytingu til lækkunar á framtöldum bifreiðastyrk. Það er gert á tiiheyrandi skýrslu um bifreiðarekstur á árinu.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.