Vísir - 20.01.1976, Qupperneq 24
VÍSIR
Þriðjudagur 20. janúar 1976.
Fundu tals-
vert magn af
lyf jum og dóti
úr sjúkra-
kðssum
2 piltar handfeknir
Talsvert mikið magn af lyfj-
um og alls kyns smádóti úr
sjúkrakössum fannst i gær i
framhaldi af þvi að tveir piltar
voru teknir, grunaðir um
þjófnað i heimahúsi.
Piltarnir gistu geymslur
lögreglunnar i nótt, en mál
þeirra verður tekið fyrir i dag.
Annar pilturinn reyndist hafa
yfir herbergi að ráða á gisti-
stað i borginni, en er samt
sem áður búsettur i Reykja-
vik.
t þessu herbergi fannst
magnið, en ekki er fyllilega
ljóst, hvaðan það er tekið.
Gísli Guðmundsson
rannsóknarlögreglumaður
kvaðst litið geta sagt annað
um málið að svo stöddu en það
væri nú i rannsókn.
— EA.
VEÐUR
HAMLAR
SAM-
GÖNGUM
Mikil ófærð er nú viðast
hvará landinu og margir fjaii-
vegir lokaðir. A Suð-vestur-
landi var mikill skafrenningur
i morgun, en færð frá Reykja-
vik til Suðurnesja nokkuð góð.
Umferð gekk þó nokkuð
hægt á þessari leið. Snemma i
morgun urðu umferðartafir á
Hafnarf jarðarvegi vegna
hálku og skafrennings og
áreksturs sem þar varð, en
snjóþyngsli töfðu ekki. Færð i
Reykjavik er viðast góð, en
þungfært er i Breiðholtshverfi
og Árbæjarhverfi.
Vonskuveður var i morgun á
Hellisheiði, og er þar ótryggt
færi nema fyrir stóra bila. 1
uppsveitum Árnessýslu og
Rangárvallasýslu var mikill
skafrenningur. Þar var fyrir-
hugað að ryðja vegi, en það
verður að biða, þar til veðrið
gengur niður. Þegar komið er
austur i Mýrdal er veður orðið
nokkuð gott og eins þar fyrir
austan. Þar er unnið að snjó-
ruðningi og vegir að verða
færir.
Á Snæfellsnesi og öllu
N'orðurlandi er veður það
slæmt, að beðið er með fyrir-
hugaðan snjóruðning. Nú er
þvi ekki fært lengra norður en
upp i Borgarfjörð.
— SJ.
Bresku sjónvarpsfréttamennirnir kvöddu i gær eftir viðburðarika samveru um borði Þór.i Frá vinstri: Tony Walsh hljóðupptökumaður, Helgi
Hallvarðsson skipherra, Erla Erlingsdóttir kona hans, Norman Rees fréttamaður, Edna Falkvard, kona Friðgeirs Olgeirssonar 1. stýri-
manns á Þór.sem stendur viðhliðhennar, og Tom Phillips kvikmyndatökumaður. Ljósm.: Jim
Bretarnir
þorskinn og
þoldu ekki
kartöflurnar
,,Það eina sem við sættum fengum þorsk og kartöflur að
okkur illa við i Þór var að við borða i annarri hverri máltið”.
Fara heim með vorinu
Þótt menn bölvi snjó og ófærð,
gerist óneitanlega ýmislegt
spaugilegt á þessum erfiðu tfm-
um bifreiðanna. — Efri myndin
er af Trabant-bifreið, sem lik-
lega hefur verið dregin úr
ófærðinni og á hæsta stað, þar
sem hún yrði ekki fyrir. —
Þegar svo snjórinn fauk frá
bílnum, kom i Ijós, að hann
hafði verið dreginn upp á
malarhól, þar sem hann stendur
ósjálfbjarga.
Neðri myndin sýnir bifreið
gesta, sem liklega eru ekki
farnir heim ennþá og fara vart
fyrr en með vorinu. — Ljósm:
Loftur og Jim.
Þetta sögðu bresku ITN frétta-
mennirnir sem hafa verið um
borð I Þór að undanförnu, þegar
þeir litu við á heimili Helga Hall-
varðssonar skipherra i gær-
kvöldi, til að kveðja.
Sjónvarpsfréttamennirnir þrir
voru svo heppnir þegar Leander
sigldi á Þór að ná öllum atburð-
inum á filmu. Kvikmynd þeirra
hefur vakið mikla athygli og
vakið efasemdir margra breta og
um áreiðanleika frásagna her-
skipaforingjanna af atburðunum.
Norman Rees, sem stjórnaði
þessu þriggja manna liði, sagðist
ekki vilja tjá sig um skoðun sina á
atburðunum á miðunum. „Skoðið
kvikmyndina sem við tókum”
sagði hann.
Hin velheppnaða kvikmynd
ITN mannanna var sýnd i aðal-
fréttatima sjónvarpsstöðvarinn-
ar á laugardagskvöldi. Frétta-
timinn er 15 minútna langur.
Þykir það stór og mikil frétt sem
fær tvær minútur til umráða.
Myndin af miðunum, og frásögn
Rees fékk hvorki meira né minna
en 4 minútur og 15 sekúndur, eða
nær þvi þriðjung timans.
1 kveðjuhófinu sagðist Helgi
vera búinn að ala þá félaga nógu
lengi á þorski og kartöflúm, svo
hann gaf þeim til hátfðabrigða
uppáhaldsmatinn þeirra — ristað
brauð með bökuðum baunum.
— ÓH/JHP
„Svarta
skýrslan okkar
síðasta orð"
— segir Jakob Jakobsson
„Þessu er auðsvarað. Við höf-
um sett fram í svörtu skýrslunni
hvað má veiða á Islandsmiðum
að okkar mati. Þau tvö hundruð
og þrjátiu þúsund tonn eru
okkar siðustu orð. Siðan er það
annarra en okkar að segja til
um hvort, eða hvað við höfum
efni á að láta breta hafa mikið
af þeim afla,” svaraði Jakob
Jakobsson, fiskifræðingur.
Vfsir lagði fyrir hann þá
spurningu i morgun, hvort við
gætum boðið bretum að veiða
hér t.d. sextiu og fimm þúsund
tonn til takmarkaðs tima.
Um það hvort hagstæðara
væri fyrir okkur að semja við
bretana miðað við það afla-
magn sem þeir nú reyttu upp i
sinu taugastriði, sagði Jakob:
„Ég hef ekki fengið nógu
haldgóðar tölur um afla þeirra
nú til þess að ég geti lagt dóm á
það, og auk þess er ekki gott að
meta hvað þeir gætu haldið
lengi áfram þessari vitleysu.”
— EB.
Missti af einni milljón
Happdrætti SÍBS lét nú fyrir
áramót gera auglýsingu fyrir
sjónvarpið, þar sem fólk var
minnt á að endurnýja miða sina.
Þar var tilbúin saga af konu,
sem gleyndi að endurnýja og
missti af einnar milljón króna
vinning fyrir vikið. Við fréttum
af því hér á Visi að nú hefði
þetta einmitt gerst I raun og
veru, þegar dregið var i desem-
ber. Hringdum við þvi i Ólaf
Jóhannesson, framkvæmda-
stjóra happdrættisins og inntum
hann eftir sannleiksgildi þess-
arar fréttar.
„Þetta er rétt, það vildi svo
undarlega til, að nú i desember
kom milljón króna vinningur á
miða ungrar stúlku eða konu,
sem hún hafði hætt við á
árinu,” sagði Ólafur. „Ég held
að hún hafi hætt við hann þegar
hún flutti úr bænum”.
Ólafur tók það fram að
auglýsingin hafi verið gerð áður
en dráttur fór fram, en ekki
vegna þessa atviks.
„Þetta kemur nú nokkuð oft
fyrir að fólk missi. af álitlegum
vinningum vegna þess að það
gleymir að endurnýja eða hættir
við miða sina. Ég man lika eftir
þvi, að fyrir nokkrum árum
missti kona af stóra vinningn-
um, og frá þvi var þá skýrt i
blöðum,” bætti hann svo við.
Hann sagði annars að rekst-
urinn gengi ágætlega, aukningin
hefði verið eitthvað minni nú en
i fyrra, en þá hefði hún verið ein
sú mesta sem orðið hefur. Vildi
hann kenna veðráttunni og
ófærðinni um minni aukningu
nú. Annars sagði hann út-
komuna góða þegar á heildina
væri litið og sagði þá mjög
ánægða, þar sem nýtingin væri
nær 90% af útgefnum miðum.
-VS.
Gaf Helga
sólarferð
Nokkrir skipsmanna á Þór,
þeirra á meðál Helgi Hallvarðss.,
skipherra litu við á Útsýnar-
kvöldi á Hótel Sög'u á sunnudags-
kvöld. Þegar Helgi gekk i salinn
stóðu allir upp fyrir honum og
'fögnuðu sem þjóðhetju.
Ingólfur Guðbrandsson for-
stjóri Útsýnar tilkynnti svo
nokkru siðar um kvöldið við mikil
fagnaðarlæti að hann hefði
ákveðið að gefa Helga og konu
hans ferð með Útsýn til sólar-
landa i tilefni af frábærri
frammistöðu i þorskastriðinu-:ÓH