Vísir - 10.02.1976, Blaðsíða 3
vism Þriðjudanur 1 <). fcbrúar 1976
3
Ef mjólkursala verður gefin frjáls:
Hvað verður um
afgreiðslustúlkur
í mjólkurbúðum?
„Það má búast við þvi að okk-
ur sem i mjólkurbúðum Mjólk-
ursamsölunnar vinnum verði
sagt upp, en enn hefur ekki
komið til þess,” sagði Hallveig
Einarsdóttir formaður Félags
afgreiðsiustúlkna i brauða- og
mjókurbúðum i samtaii við Visi.
Landbúnaðarráðherra hefur
lagt fram frumvarp á Alþingi
þar sem gert er ráö fyrir að allir
verslunaraðilar bæði kaupmenn
og kaupfélög sem uppfylla viss
skilyrði megi annast dreifingu
mjólkur og mjólkurvara.
En sú spurning vaknar, hvað
verður af starfsstúlkum þeim
sem vinna i mjólkurbúðum
Mjólkursamsölunnar. Kaup-
mannasamtökin hafa rætt við
Mjólkursamsöluna um kaup á
mjólkurbúðunum.
„1 félagi okkar hefur það enn
ekki verið rætt hver viðbrögð
okkar eigi að vera. Málið er ekki
komið á það stig enn, þar sem
eftir er að ræða málið á Alþingi
og þvi ekki útséð hverja af-
greiðslu það hlýtur.
Við vitum að okkur verður
sagt upp ef til þess kemur að
frumvarpið verður að lögum.”
Hallveig sagði að nú væru 164
stúlkur i félaginu. Sumar
væru komnar á fullorðinsár svo
búast mætti við þvi að ýmsum
gengi illa að finna sér störf ef
þeim verður sagt upp i mjólkur-
búðunum. —EKG
50% líkur ó gosi
á Kröflusvœðinu
— segir dr. Sigurður Þórarinsson
„Eg hef talið að það
væru um 50% líkur á að gos
brytist útá Kröf lusvæðinu.
Langar jarðskjálftahrinur
eins og hafa verið þarna
undanfarið benda til þess
að kvikan sé að reyna að
koma upp, en það er ekki
þar með sagt að hún kom-
ist upp."
A þessa leið fórust dr. Sigurði
Þórarinssyni orð er Visir hafði
samband við hann og spurði
hverjar likur hann teldi á að gos
brytist út á Kröflusvæðinu.
Sigurður sagði að meðan jarð-
skjálftahrinur sem þessar stæðu
yfir væru taldar meiri líkur á gosi
en annars. Hins vegar væri erfitt
að segja nokkuð örugglega um
það.
Hann sagði að menn vissu um
tvögosá Mývatnssvæðinu. Annaö
hefði verið stutt likt og siðasta
gos. Hitt heföi hins vegar tekið sig
upp aftur eftir langt hlé og staöiö
lengur.
—EKG
Keflavíkursjón-
varpið í lokað
kerfi ó þessu óri
Framkvæmdir hefjast liklega
á þessu ári við að koma Kefla-
víkursjónvarpinu „oni jörðina”.
Kaplar verða lagöir i öll hús á
Keflavikurflugvelli, og sjón-
varpssendingar leiddar um þá.
Þegar umræður voru sem
hatrammastar um Keflavikur-
sjónvarpið var minnst á þann
möguleika aö hafa sjónvarpið
lokað öllum utan vallar með þvi
að leiða kapla i þau hús sem
sjónvarpsins áttu að njóta.
Þetta þótti dýr lausn, og sein-
virk. Fljótlegra og hagkvæmara
var að minnka sendistyrkinn.
Þó sjást sjónvarpssendingar
enn á nokkrum stöðum á Suður-
nesjum.
En nú virðist sem sagt komin
fjárveiting fyrir þvi að leggja
lokað kerfi um völlinn. Til
greina kemur að framkvæmdir
hefjist i sumar. Ekkert hefur þó
verið ákveðið um það.
Útsendingar i lit eru ofarlega i
hugum varnarliðsmanna, og
auðveldar hið nýja dreifikerfi
við það . að koma þvi i fram-
kvæmd.
—ÓH
FJÁRSÖFNUN
vegna Guatamala
Vegna hins hroðalega ástands
sem skapast hefur af völdum
jarðskjálftans I Mið-Ameriku-
rikinu Guatemala hafa Rauöi
kross tslands og Hjálparstofnun
kirkjun nar ákveöið að hefja
fjársöfnun til styrktar hjálpar-
starfinu.
Á fundi sjóösstjórnar Rauða
krossins var ákveðiö að senda
strax 250 þúsund krónur. Hjálp-
arstofnun kirkjunnar hefur þeg-
ar sent 1500 dollara til aöstoðar
hinum hrjáðu á jarðskjálfta-
svæðunum.
Ennfremur hefur Alþjóða-
hjálparstofnun kirkjunnar sent
200 þúsund dollara. Rauði
krossinn viða um lönd hefur
hafið hjálparstörf auk þess sem
10 nágrannalönd Guatemala
hafa sent hjálpargögn og
sjúkralið.
Tekiö verður á móti framlög-
um til Guatemalasöfnunarinnar
i giróreikning 20000 hjá Hjálpar-
stofnun kirkjunnar. Giróreikn-
ingur Rauöa krossins er númer
90000. Ennfremur er hægt aö
koma framlögum á skrifstofu
Rauða krossins i Nóatúni 21 og
skrifstofu Reykjavikurdeildar-
innar að öldugötu 4.
—EKG/JS
X j £ ' Guðjón Ólafsson flugstjóri hjá
wlQTSSOn en Fiugfélagi tslands var sagöur
- _ # f vera Jónsson i frétt i Visi á
ekki Jonsson k?;8- 'el“r“'“'
„Möguleiki að CIA hafi
teygt arma sína hingað"
— segir formaður Alþýðubandalagsins
Ragnar Arnalds. Ég vil ekki
nefna nein dæmi
„Ég átti við það að þar sem CIA
hefði teygtarma sina viðast hvar
um heiminn, væri ekki óeðlilegt
að draga þá ályktun að CIA hefði
einnig teygt arma sina hingað til
lands” sagði Ragnar Arnalds,
formaður Alþýðubandalagsins, i
samtali við Visi.
Þau orð Ragnars sem hann lét
falla i Beinni linu i fyrrakvöld að
það væri liklegt að CIA, banda-
riska leyniþjónustan, ætti itök hér
á landi hafa vakið verulega at-
hygli.
Ragnar var spurður hvort hann
gæti nefnt einhver dæmi um itök
CIA hér á landi. Hvort hann ætti
til dæmis við undirskriftasöfnun-
ina „Varið land” eins og haldið
hefur verið fram i Þjóðviljanum.
,,Ég hef engar ákveðnar sann-
anir um að CIA hafi teygt arma
sina hingað og dettur þvi ekki i
hug að nefna nein dæmi.”
—EKG
Frönsk orðobók komin út
Það verður visast mörgum
kærkomið að fá i hendur vasa-
orðabók til aðstoðar við frönsku-
nám.
Nú er búið að gefa út fransk-is-
lenska og islensk-franska orða-
bók sem þau Elinborg Stefáns-
dóttir og Gérard Chinotti hafa
tekið saman.
I fyrri hluta bókarinnar er að
finna 5000 algengustu orð i
frönsku þýdd yfir á islensku en i
seinni hlutanum 5000 islensk orð
þýdd yfir á frönsku. Þá eru i bók-
inni leiðbeiningar um framburð,
listi yfir beygingar óreglulegra
franskra sagna og listi yfir nokkr-
ar algengar óreglulegar og reglu-
legar sagnir islenskar.
Það voru þeir Kristján Páls-
son, l'igfús Kristinsson og
Björgvin Hólm sem seldu
allra stráka mest i sölukeppni
Visis. En þó þeir væru seigir —
eru það þó Auðunn og Óli
blaðasalisem selja mestallra.
Það fylgir þvi mikil ánægja að
selja Visi eins og sjá má á
þessum rösku strákum. Að
minnsta kosti eru þeir ólikt
bjartsýnni að sjá en sanin-
ingamenn þeir sein rætt er við
á baksiðu þess Visis sem þeir
ætla að fara að selja.
l.jósmynd Loftur
—EKG