Vísir - 29.04.1976, Síða 9
VISIR Fimintudagui' 2!). aprfl 197fi
9
mundu öll
börn þiggja:
Eruð þið í vand-
ræðum með barnið
eða börnin innan um
fina vasa, viðkvæm
húsgögn og annað á
heimilinu? Verður að
læsa dyrum eða koma
upp varnarvegg með
stólum og borðum svo
að börnin komist ekki
i sum herbergin?
Þaðer ekki gaman aö þurfa
að vera meö stöðugar
áhyggjur vegna þessa og enn
óskemmtilegra er það fyrir
börnin að mega helst ekki
hreyfa sig. En hvernig væri að
innrétta með 'það i huga aö
börnin þurfa llka að hreyfa sig
og snerta hlutina og ekki siður
en við?
Væri ekki viðkunnanlegra
aö gera heimilið þannig úr
garði að það sé bæði ætlað
börnum og þeim fullorðnu að
öllu leyti?
Ætlið þeim lika stað
i eidhúsinu
Hér á meöfylgjandi
myndum eru skemmmtilegar
hugmyndir um þaö hvernig
gera má vistlegt i herbergi
jjarnanna og látum við það
nægja að sinni. En það má
ætla barninu staö i eldhúsinu
lika. Börnum finnst gaman að
dunda þar á meðan
foreldrarnir eru að laga mat-
inn eða sinna öðru, og þvi ekki
að innrétta einn skápinn fyrir
barnið?
Ef skápurinn er heppilega
stór má koma fyrir dýnu i
honum og t.d. púða og hafa svo
tjöld fyrir i stað hurðar og þá
er kominn staöur sem litið
barn, t.d. á öðru ári, kann svo
sannarlega að meta.
Undir borði, t.d. i barna-
herberginu, má lika gera
skemmtilegt eins og
myndirnar syna. Það er bara
um að gera að leyfa hug-
myndafluginu aö ráða. — EA
Plássið undir
stiganum er nýtt á
þennan skemmtilega
máta. Það mundu
flest börn kunna vel
að meta það að geta
skriðið inn i einskonar
leynibústað og ef stigi
er i húsinu, þvi þá
ekki að athuga
þennan möguleika?
Undir rúmi
Krakkana langaði i koju i barnaherbergið sitt, og þá
var þetta ráð tekið. Rúmið sem fyrir var i herberginu
var einfaldlega hækkað og þvi komið fyrir það ofarlega
að hægt var að koma fyrir svefn- eða leikplássi fyrir
neðan, og ekki er plássið það óskemmtilegt.
Komið var fyrir tveimur bukahi’ium undir rúminu.
önnur snýr inn að rúminu en hin út að herberginu. A
gólfinu er svo dýna og til þess að geta verið i friði má
draga tjaldið fyrir.
Þessi litla kann vel við sig i eldhússkápnum
sem innréttaður hefur verið sérstaklega fyrir
hana. Innréttingin kostaði litið. í skápnum er
dýna og kannski einn púði og i stað hurðar eru
tjöld. Þarna dundar sú litla sér á meðan pabbi og
mamma vinna i elhúsinu.
Eitt borð getur gert mikið gagn.
A myndunum virðist lika fara
ágætlega um krakkana.
Undir öðru borðinu er búið til
hús. Þarna hafa verið máluð tvö
lök sem eru fest með þvi að
smeygja hringjum á lökunum á
króka sem komið er fyrir á
borðinu. Lökin má þvi fjarlægja
án nokkurrar fyrirhafnar.
Tveir gluggar eru klipptir á
lökin og þar hefur meira að
segja verið komið fyrir bréfa-
lúgu. Að innanverðu er litill vasi
sem bréfin lenda i.
Lökin má svo skreyta á ýmsa
vegu.
Krakkarnir komu sér sjálfir
fyrir undir hinu borðinu. Þar
var komið fyrir púðum og siðan
lokað fyrir með stólum. Yfir
borðið má svo breiða teppi og þá
sér enginn inn.