Vísir - 29.04.1976, Side 24
Fiinmtudagur 29. a
VfSIR
ISAL HYGGST LOKA
BRÆÐSLUKERJUNUM
íslenska Alfélagiö hefur sett
tvær geröir tilraunaþekja á
bræösluker i álverinu. Þetta er
liöur i svari fyrirtækisins við til-
mælum heilbrigöiseftiriitsins um
að dregið veröi úr mengun.
Þekjurnar veröa hafðar til
reynslu þar til i júni n.k. og þá
athugaö hvor gcrðin henti betur,
miðaö við aöstæður hér.
Að sögn Pálma Stefánssonar,
nýbyggingastjóra hjá Isal, bæta
þekjurnar mjög hollustuhætti hjá
álverinu og draga úr mengun.
Þær koma i veg fyrir að kergufan
fari út i loftið i skálanum. Gufan
verður siðan soguð undan
þekjunum til hreinsitækja. Sagði
Pálmi að loftið i kerskálanum
yrði um 90% Betra þegar
þekjurnar væru komnar á öll
kerin.
Kostnaður við smiði og upp-
setningu þekja og hreinsitækja
fyrir öll ker álversins, sem eru
280 talsins, mun verða rúmlega
tveir milljarðar króna. —SJ
Þeir hafa oft ræöst viö um dómsmál Kristján Pétursson, deildar-
stjóri f tollgæslunni á Keflavikurflugvelli, og Þóröur Björnsson,
rikissaksóknari. A þessari mynd eru þeir aö ræöa málin I sjón-
varpssal, en þá haföi engin kæra borist á Kristján fyrir meint brot
i starfi.
Kœran er ekki
á rökum reist
,,Ég skil ekki hvuöa hlutverki
þessi kæra á aö gegna, nema þá
helst aö hún sé framsett tii aö
fresta þvi aö bandarikjamenn-
irnir fari úr iandi.
Hún er ekki á rökum reist og
einna helst hægt aö segja aö hér
sé um varhugaveröan verknað
að ræöa” sagði Kristján Péturs-
son, deildarstjóri I viðtali viö
VIsi I morgun.
Svo sem greint var frá I Visi i
gær hefur Orn Clausen sent frá
sér kæru á hendur Kristjáni
fyrir ólögmætar aðgerðir gegn
tveim bandarikjamönnum.
,,Mér skilst að kæran f jalli um
að ég hafi við rannsókn þessa
máls farið út fyrir mitt verk-
svið, en vitneskja min um þessa
kæru er eingöngu úr dagblöð-
um. Þetta mál kom upp s.l.
sumar og varðaði meint tollaaf-
brot. Hér var um að ræða tvo
bandarikjamenn sem vinna við
fjarstöðina, en voru búsettir i
Keflavik og Reykjavik.
Rannsóknin var unnin i sam-
vinnu við rannsóknarlögregluna
i Keflavik og lögregluna i
Reykjavik, svo sem venja er
þegar málin ná til fleiri en eins
lögsagnarumdæmis. Aður en
hún hófst var gefin skýrsla til
lögreglustjórans á Keflavikur-
flugvelli — svo að rannsóknin
fór fram með vitund og sam-
þykki hans.
Þarna var um að ræða nokkur
hundruð flöskur af áfengi ásamt
fleiri varningi, mennirnir voru
dæmdir i f jögur hundruð þúsund
króna sekt og hafa greitt þá
fjárhæð. Mönnunum hefur verið
fyrirskipað að fara úr landi, og
þetta mál er löngu afgreitt”
sagði Kristján Pétursson.
— EB.
Fyrirhuguð 40%
hœkkun á raf-
orku á Siglufirði
Rafveita Siglufjarðar
hefur ákveðið að hækka
gjaldskrá sína frá 1. maí
næst komandi ef leyfi
fæst til þess.
Bæjarst jórnin hefur
samþykkt fyrirhugaða
gjaldskrárhækkun, sem
verður40%, nema á húsa-
hitunartaxta.
Rafveitunefndin telur að þessi
hækkun nægi þó ekki til að mæta
áætluðum útgjöldum
samkvæmt f járhagsáætlun
fyrirtækisins fyrir yfir-
standandi ár.
Telur nefndin að endurskoða
þurfi áætlun þessa, þegar fyrir
liggur nánari greinagerð um
ráðstöfunarfé og kostnað við
verklegarframkvæmdir og við-
haldskostnað sem óhjákvæmi-
lega þarf að ráðast á I á þessu
ári.
RJ/EB
Rhondda Gillespie litur yfir Reykjavik af svölum Hótel Sögu. Visis-
mynd: Loftur.
Frá íran til íslands
)
fyrir eina tónleika
„Hingaðkem ég frá Teheran i
iran, spila meö Sinfóniuhljóm-
sveitinni I kvöld og fer aftur ut-
an til I.ondon á föstudagskvöld”
sagöi Rhondda Gillespie þegar
hlaöamaður VIsis heimsótti
hana á Hótel Sögu.
,,Ég er frá Ástraliu en bý i
London nú orðið. Það er meira
miðsvæðis.fyrir mig, þar sem ég
ferðast mikiðum og spila heldur
en Astralia”.
Rhondda Gillespie leikur ein-
leik með Sinfóniuhljómsveitinni
á fimmtándu fjölskylduhljóm-
leikunum i Háskólabiói i kvöld.
Leikur hún pianókonsert
eftir Edward McDowell. Hún
hefur haldið tónleika i öllum
heimsálfum, og árið 1957 hlaut
hún ABC-tónlistarverðlaunin
fyrir leik sinn á pianókonsert
McDowells.
Tónleikarnir hefjast á hljóm-
sveitarforleiknum Vilhjálmur
Tell eftir Rossini. Þá verður
flutt Rapsody in Blue eftir Ge-
orge Gerswin, pianókonsert Mc-
Dowells, og Young Persons Gu
de to the Orchestra eftir Benja-
min Britten.
Hljómsveitarstjóri verður
Páll P. Pálsson i forföllum aðal-
hljómsveitarstjórans, Carstens
Andersen.
-VS
Tveggja ára gamlar^^
rœkjur á boðstólum að dœma
Tveggja ára gamlar rækjur
eru heldur ólystugar kræsingar
aö bjóöa upp á I fermingar-
veislu. Móöir eins fermingar-
barns keypti s.l. föstudag I
Hagkaup frystar rækjur til að
nota I veisluna, en á
umbúöunum stóö aö slöasti
söludagur væri i mars 1974.
Konan hætti þvi viö aö nota
rækjurnar en sneri sér til
Neyte ndasam takanna meö
þetta mál.
Hér var um aö ræöa 500
gramma pakkningusem kostaði
565 krónur. A umbúöunum eru
upplýsingar á sænsku m.a. um
siöasta söludag.
Visir haföi samband við
deildarstjórann I Hagkaup og
fékk þær upplýsingar aö hér
væri um að ræða nýjar Islenskar
rækjur i gömlum umbúðum.
I viðtali við Ingimund
Konráðsson, sem hefur séð um
sölu á þessum rækjum hér i
Reykjavik, kom i ljós að rækjur
þessar eru frá Bildudal og
pakkaðar þar. Þaðan hafa veriö
fluttar út rækjur og eru þessar
umbúðir leyfar frá þeim tímum
og var til þeirra gripiö vegna
skorts á umbúöum, taldi
Ingimundur að hér heföi verið
um að ræða 50 til 100 poka.
Þessar umbúöir gefa þvi
allverulega rangar upplýsingar
um innihald, svo ekki sé meira
sagt. Mál þetta er til athugunar
hjá Neytendasamtökunum.
Maðkar i súkkulaði
og haframjöli
I yfirliti sem gert hefur verið
um kvartanir sem bárust til
Neytendasamtakanna á s.l. ári,
kemur I ljós að alls bárust 283
kvartanir um vöru eöa
þjónustu, eða fleiri en ein
kvörtun á vinnudag að meðal-
tali.
Flestar voru þær vegna
rafmagnsheimilistækja, eða
sjötiu og tvær. Margar voru
varöandi skó eöa fatnað, fatnaö-
ur væri ónýtur, eða þyldi ekki
hreinsun samkvæmt
leiöbeiningarreglum sem
merktar voru á hann. Skórnir
þoldu ekki notkun og gæði
þeirra voru greinilega ekki i
samræmi við söluverð.
Kvartanir vegna hreinsunar-
þjónustu voru allmargar, og
einnig vegna teppa, og lagninga
á þeim.
Tólf kvartanir bárust um
matvæli og haframjöl. í
nokkrum tilfellum voru
kvartanir það alvarlegar að
hugsanlegt er að um saknæma
framkomu seljanda sé aö ræða
og eru þau tilfelli til áthugunar
hjá lögfræöingi.
— EB
Varð 40
þúsund kr.
fátœkari
Fékk 28 þúsund aftur
Ritstjóri Þjóðviljans i Itcykja-
vík varð40 þúsund krónum fátæk-
ari i gærdag. Hluta af peningun-
um fékk hann þó aftur, eða 28
þúsund krónur.
Maður hafði sést inni á rit-
stjórnarskrifstofum blaðsins rétt
áður en þetta skeði, er grunaður
var um verknaðinn. Fannst hann
nokkru siðar og hafði þá ferðast
um i leigubilum og komið nokkuð
viða við, enda eytt talsverðum
hluta peninganna.
1 skjalatöskunni voru einnig
ýmis skjöl og voru þau enn i henni
þegar ritstjórinn fékk hana aftur.
— EA