Vísir - 08.05.1976, Blaðsíða 1

Vísir - 08.05.1976, Blaðsíða 1
Þessi mynd er tekin i einni verksmiöja Elkem Spiegerverket i Noregi, þar sem járnblendiframleiösia fer fram meö svipuöum hætti og ráögert er I verksmiöju Járnblendifélagsins á Grundartanga viö Hval- fjörö. Fremst á myndinni sjást tilbúnar járnblendiflögur, sem siöan eru malaöar þegar þær eru notaöar viö vinnslu á öörum málmverksmiöjum. NORÐMENN ERU JÁ- KVÆÐIR GAGNVART JÁRNBLENDIVERINU r segir Asgeir Magnússon fram- kvœmdastjóri Jórnblendifélagsins ,,Norðmennirnir eru mjög jákvæðir og mér finnst þeir ekki vera jafn svartsýnir á ástand markaðsins eins og fulltrú- ar Union Carbide hafa ver- ið," sagði Ásgeir Magnús- son, framkvæmdastjóri Jánblendifélagsins h.f., er Vísir ræddi við hann í gær- kveldi. Ásgeir sagði, að nokkrir fulltrú- ar norska fyrirtækisins Elkem Spiegerverket kæmu hingað til lands til viðræðna á mánudaginn og myndu þeir ræða um hugsan- legt samstarf varðandi byggingu og rekstur járnblendiverksmiðj- unnar á Grundartanga við full- trúa iðnaðarráðuneytisins. ,,En það er enn ekki búið að taka neinar ákvarðanir,” sagöi Asgeir, ,,og ég býst ekki við að það verði fyrr en eftir aðalfund Járnblendifélagsins, sem haldinn verður 20. mai næstkomandi. Þá verður væntanlega ljóst, hvort Union Carbide mun eiga hluta að félaginu eða ekki.” Asgeir Magnússon sagði enn- fremur, að Elkem-fyrirtækið yrði aðalkeppinautur Járnblendi- félagsins, ef félagið reisti verk- smiðjuna i samvinnu við Union Carbide enda væri fyrirtækið ein- hver stærsti framleiðandi á járn- blendi á Evrópumarkaði. ,,En við höfum haft talsvert samband við norðmennina og fengið hjá þeim upplýsingar um markaðsnál og annað”, sagði Ás- geir Magnússon. Verð á járnblendi féll mjög mikið siðastliðið haust og var þá framleiðsla stöðvuð i verksmiðj- um all viða, en Elkem-Spieger- verkethéltþóáfram framleiðslu i verksmiðjum sinum. Nú hefur verðið á heimsmarkarði stigið nokkuð, en ekki er ljóst, hvort Union Carbide telur æskilegt að standa að byggingu verksmiðj- unnar við Hvalfjörð. Vegna þessarar óvissu hafa framkvæmdir legið niðri á at- hafnasvæðinu á Grundartanga frá þvi um miðjan desembermán- uð og öll verkfræðivinna var stöðvuð um miðjan janúar. — ÖR SMÁAUGLÝSINGAR SÍMI «6611 _____________ ■ Umferðorslys 2026/69 Vantar þig bíl? — Þarftu að selja bíl? Grein um rann sókn slyssins við Leirvogsó eftir Halldór Halldórsson Sjó blaðsíðu 10 og 11 Þegar dauðlegir menn spila 3 grönd — þó spilar Garozzo 2 hjörtu redobluð og vinnur... Stefón Guðjohnsen skrifar fréttir fró Monaco — Sjó blaðsíðu 3 og 14 Daglega eru auglýstir ó bíla- markaðssíðum Vísis bls. 16 og 17 allt að 200 bílar að öllum gerðum, stœrðum og verðum

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.