Vísir - 10.06.1976, Side 7
TtKi
Á dagskrá: Mannréttindabrot
tö'-.wz i
&3flÉB
SKÖÐUN LURIES
mtm
Jimmy Carter lýsti
þviyfir i gær, þegar úr-
slit i forkosningum
Ohio, Kaliforniu og
New Jersey lágu fyrir,
að hann hefði nú nægan
stuðning kjörfulltrúa til
að tryggja sér útnefn-
ingu flokksþingsins i
í
Wallace lýsir
stuðningi við
Jimm y Carter
sumar.
Hinsvegar aftók hann með
öllu getgátur um, að hann væri
byrjaður að leita sér að með-
frambjóðanda i varaforseta-
embættið. — Kvað hann það vel
geta beðið, þar til útnefningin
lægi endanlega fyrir.
Hann sagði fréttamönnum, að
skömmu áður hefði George
Wallace, rikisstjóri i Alabama,
sem verið hefur meðal keppi-
nauta hans i' forkosningunum,
lýst yfir stuðningi sinum við
hann. — Staðfesti Wallace það
sjálfur siðar i gærkvöldi á
blaðamannafundi.
Carter sagðist ennfremur
eigavon á þvi, að Henry Jack-
son, annar keppinauta hans,
mundi sömuleiðis innan
skamms styðja útnefningu
hans.
f forkosningunum hefur Cart-
er tryggt sér stuðning 1,125
kjörfulltrúa, en þarf 1,505 til að
hljóta útnefoingu. Hann spáir
þvi sjálfur, að þegar forkosn-
ingum ljúki, verði hann kominn
með 1,260 kjörfulltrúa, sem
ásamt fulltrúum Wallace og
Jackson, ef þeir styðja hann á
flokksþinginu, mun fleyta hon-
um vel yfir markið.
Eins og allir höfðu séð fyrir,
fékk Reagan sigur i Kalifomiu,
enda lagði Ford forseti ekki til
atlögu við keppinaut sinn þar á
heimavelli. Hinsvegar hlaut
Ford sigur bæði i New Jersey og
Ohio.
Þrátt fyrir fleiri sigra Fords i
forkosningunum, hefur Reagan
tekist með sigrum sinum i fjöl-
mennum rikjum, þar sem fjöldi
kjörfulltrúa er mestur, að brúa
svo bilið milli þeirra, að Ford
hefur ekki nema 27 kjörfulltrú-
um meira en Reagan.
!-----------------------------------
Skvett
i París
Mick Jagger, söngvari hljóm-
sveitarinnar Rolling Stones,
skvettir hér úr fullri vatnsfötu yfir
áhorfendur á siðustu tónleikunum
sem hljómsveitin hélt i Paris á
sunnuda ginn.
Hin heimsfræga breska popp-
hljómsveit hefur verið á umfangs-
miklu ferðalagi um Evrópu, og hélt
fjóra tónleika i tiu þúsund manna
húsi i Paris.
Meðal áhorfenda á hljómleikun-
um i Paris voru um 30 islendingar,
en sögur fara ekki af hvort ein-
hverjir þeirra fengu gusu yfir sig.
Vantraust íhaldsins
fellt i breska þinginu
Ríkisstjórn breska
verkamannaf lokksins
Thathcher
hratt í gær í neðri mál-
stofunni árás stjórnar-
andstöðunnar og felldi
vantrauststillögu Marga-
ret Thatchers formanns
ihaldsflokksins með 309
atkvæðum gegn 290.
,,Að láta reka á reiðanum,
safna skuldum og blekkja kjós-
endur, það er öll stefna þessarar
rikisstjórnar,” sagði Margaret
Thatcher á fundi neðri málstof-
unnar, þegar vantrauststillaga
hennar var til umræðu.
Stjórnarsinnar lágu henni á
hálsi fyrir ótimabæran tillögu-
flutning, núna þegar breska
sterlingspundið hefur verið
styrkt með lánum frá Banda-
rikjunum og átta iðnaðarþjóð-
um öðrum.
James Calaghan forsætisráð-
herra sagði, að fyrir árslok 1977
mundi stjórn hans búir að
draga úr verðbólgunni i Bret-
landi til hálfs, <18,9% i dag) og
fyrir lok 1978 yrði búið að
minnka atvinnuleysi breta i dag
til hálfs.
Þessar yfirlýsingar ráð-
herrans fela i sér uppgjöf á fyrri
fyrirheitum stjórnar hans, sem
hafði heitið þvi að vera búin að
draga til hálfs úr verðbólgunni
fyrir næstu áramót, og útvega
helming þeirra 6%, sem ganga
um atvinnulaus i dag, vinnu
fyrir lok næsta árs.
Þrátt fyrir þetta bakslag var
ljóst, að stjórnarsinnar mundu
fella vantrauststillöguna, þegar
frjálslyndir, sem eiga 13 þing-
menn i neðri málstofunni, lýstu
þvi yfir, að þeir ætluðu að sitja
hjá við atkvæðagreiðsluna. —
Skoskir og velskir þjóðernis-
sinnar studdu hinsvegar ihalds-
menn við flutning tillögunnar og
greiddu henni atkvæði sin.
Callaghan
Arabar senda friðargœslu-
lið til LÍBANON
Fundi ut anr iki sr áðh err a
Arabalandanna lauk i Kairó i
morgun, eftir að fundarmenn
höfðu samþykkt að senda sam-
eiginlegt friðargæslulið til Liban-
on til að binda enda á borgara-
striðið.
Voru allir á einu máli um, að
vopnahlé yrði að ganga i gildi
þegar i stað.
1 tilkynningu frá fundinum var
ekki tilgreint hvaða lönd, mundu
senda herlið til friðargæslu i
Libanon, en kvisast hefur, að þar
á meðal verði Saudi Arabia,
Súdan, Libýa, Alsir, Sýrland
(sem þegar hefur haft herlið i
Libanon um hrið) og loks samtök
palestinuaraba.
Talsmaður ráðherranna sagði,
að „sjálfstæði Libanon yrði sýnt
fullkomin virðiiig”, þótt herlið
yrði sent inn i landið.
A fundinum i gærkvöldi gerði
utanrfkisráðherra Sýrlands,
Abdel Ahlim Khaddam, hinum
grein fyrir þvi, að Sýrland hefði
sent herlið til Libanon i þvi skyni
að koma þar á friði. — Yassir
Arafat leiðtogi palestinuaraba,
sem snúist hafa gegn herliði Sýr-
lands i Libanon, krafðist þess, að
sýrlendingar drægju úr herafla
sinum i Libanon fyrst tilgangur-
inn væri ekki annar en að ganga á
miUi hinna striðandi afla. Undir
það tóku utanrikisráðherrar
hinna.
Arababandalagið samþykkti að
veita eina. milljón dollara til
Þjóðfrelsisihreyfingar palestinu-
araba til að bæta þeim upp að
nokkru tjónið, sem palestínu-
arabar hafa beðið i Libanon. —
Um leið hefur frést, að Saudi
Arabia hafi látiðféaf hendi rakna
við Arafat á sérstökum fundi hans
og utanrikisráðherra Saudi
Arabiu.
vism
Fimmtudagur 10. júni 1976
Samtök Amerikurikja halda ársþing sitt um þessar
mundir i aðaistöðvum herforingjastjórnar Chile i Santi-
ago, og er þar fjaliað sérstaklega um brot á mannréttind-
um i Amerikulöndum.
„Við hörmum að geta ekki boðið upp á rýmra hús-
næði, en stóru klefarnir eru allir fullir.”
H
Ólafur Hauksson
6-9-76