Vísir - 10.06.1976, Blaðsíða 17
vism Fimmtudagur 10. júni 1976
Útvarp kl. 20.30:
LeikritiO, sem flutt er I kvöld fjallar um húsnæöisvandamál Lundúnarbúa skömmu eftir siöari heims-
styrjöldina.
A HRAKHÓLUM
eftir Charles Tomas
Meöal leikenda i kvöld er einn af yngri kynslóöinni,
en hann er sonur leikstjórans
,,A hrakhólum” heitir leik-
ritið, sem fiutt veröur i út-
varpinu i kvöld.
Leikritið fjallar um húsnæöis-
vandamál i London rétt eftir
síðari heimsstyrjöldina. Þar
segir frá ungum hjónum Ken og
Kötu Sanders, scm eru ,,á hrak-
hólum” í fyilstu merkingu
þeirra oröa.
Þau fá inni i loftvarnarskýli,
sem áfast er fjölskyldubúðum
fyrir húsnæðislaust fólk, en þau
hafa þó von um að komast i
betra húsnæði fyrir tilstilli vinar
þeirra, sem er þingmaður.
En áður en til þess kemur, fær
einn af leiðtogum róttækrá i
borginni „snjalla” hugmynd, að
þvi er honum finnst, til lausnar
vandanum.
Nokkrar fjölskyldur vilja
ganga til liðs við hann og þeirra
á meðal eru Ken og Kata.
Þessi ráðagerð er djörf, og við
framkvæmd hennar kynnumst
við ýmsum hliðum mannlegra
viðbragða og mismunandi af-
stöðu manna til samfélagsins.
Höfundur leikritsins Charles
Thomas skrifar leikrit fyrir
breska útvarpið og er mjög vin-
sæll i heimalandi sinu. Þetta er
fyrsta leikrit hans sem flutt er
hér á landi. — Þýðinguna gerði
Eiður Guðnason.
Með helstu hlutverk fara
Hákon Waage, Margrét
Guðmundsdóttir, Sólveig
Hauksdóttir, Gisli Alfreðsson,
Sigurður Skúlason, Sigurður
Karlsson, Valdemar Helgason
og Margrét Helga Jó-
hannsdóttir, leikstjóri er Helgi
Skúlason.
úli Helgason, Leikritið hefst klukkan hálf
niu og stendur til 21.50 —SE.
HEIMSÓKN Á
KISUDEILD
Finnbogi Scheving um-
sjónarmaður litla barna-
timans fer i heimsókn á
barnaheimilið Múlaborg i dag.
Ein deildin á Múlaborg
heitir „kisudeild” og
krakkarnir þar kunna heil-
mikið af skemmtilegum
lögum, sem þau ætla að
syngja fyrir okkur.
Einnig les ein fóstran á kisu-
deildinni sögu fyrir yngstu
hlustendurna.
Barnatiminn hefst klukkan
16.40 og lýkur klukkan fimm.
—SE.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
A frivaktinni. Margrét
Guðmundsdóttir kynnir
óskalög sjómanna.
14.30 Miödegissagan: „Mynd-
in af Dorian Grey” eftir
Oscar Wilde.Valdimar Lár-
ussson les þýðingu Sigurðar
Einarssonar (11).
15.00 Miödegistónleikar. Gér-
ard Souzay syngur gömul
frönsk lög. Jacqueline
Bonneau leikur á pianó.
Prag-kvartettinn leikur
Strengjakvartett I B-dúr op.
76 nr. 4 eftir Joseph Haydn.
Sinfóniuhljómsveitin i Bos-
ton leikur Sinfóniu nr. 2 i D-
dúr op. 36 eftir Ludwig van
Beethoven, Erich Leinsdorf
stjórnar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir). Tón-
leikar.
16.40 Litli barnatiminn. Finn-
borg Scheving hefur umájón
með höndum.
17.00 Tónleikar.
17.30 „Eitthvaö til aö lifa
fyrir” eftir Victor E.
Frankl. Hólmfrlður Gunn-
arsdóttir heldur áfram
lestri þýðingar sinnar á bók
eftir austurriskan geðlækni
(4).
18.00 Tónleikar. Tilkynning-
ar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Staidraö viö I Selvogi,
siöari þáttur: Strandar-
kirkja. Jónas Jónasson lit-
ast um og spjallar við fólk.
20.15 Pianóleikur i útvarps-
sal: Einar Markússon leik-
ur hugleiðingar sinar um
tónverkið „Sandy Bar” eftir
Hallgrim Helgason.
20.30 Leikrit: „A hrakhólum”
eftir Charles Thomas.Þýð-
andi: Eiður Guðnason.
Leikstjóri: Helgi Skúlason.
Persónur og leikendur:
Ken/ Hákon Waage, Kata/
Margrét Guömundsdóttir,
Lillý/ Sólveig Hauksdóttir,
Eddie/ Gisli Alfreðsson,
Steve/ Sigurður Skúlason,
Johnny/ Sigurður Karlsson,
Williams/ Valdimar Helga-
son, Magga/ Margrét Helga
Jóhannsdóttir. Aðrir leik-
endur: Karl Guðmundsson,
Nina Sveinsdóttir, Skúli
Helgason og Kristinn Karls-
son.
21.50 Poionaise brillante op.
21 nr. 2 eftir Henryk Wieni-
awski.Rudolf Werten leikur
á fiðlu og Eugene De Canck
á pianó.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Kvöldsag-
an: „Hækkandi stjarna”
eftir Jón Trausta. Sigriður
Schiöth les (3).
22.45 „Hæ, hó viö lifum”.
Kristján Árnason kynnir
visnasöng Giselu May.
23.35 Fréttir. Dagskrárlok.
Einstakt tœkrfœri
sem aðeins gefst ó 10 ára fresti
Niðursett verð á
erlendum bókum
Gamla verðið lœkkað
um allt að 75%
Gerið bestu bókakaupin
strax í dag
Bókaverslun Snœbjarnar
Hafnarstrœti 4 UPPI
Umsókn um húsnœði
fyrir íslenska námsmenn
í Noregi
Samkvæmt upplýsingum sendiróösins i Osló er þar starf-
andi stofnun á vegum óslóarháskóla, er hefur m.a. þaö
verkefni meö höndum aö útvega námsmönnum húsnæöi.
Hefur stofnun þessi látið i ljós áhuga á að greiða götu is-
lenskra námsmanna i Noregi við útvegun húsnæðis eftir
þvi sem tök eru á, hvort heldur þeir eru þar við háskóla-
nám eða annað nám. — Umsóknir um húsnæði þurfa að
hafa borist stofnuninni i siöasta lagi fyrir 15. júli ár hvert.
Heimilisfangið er: Studentsamskipnaden, Boligavdeling-
en, Sogn, Oslo 8. — Tilskilin umsóknareyöublöö fást hjá
Lánasjóöi islenskra námsmanna, Laugavegi 77, Reykja-
vik, skrifstofu SINE i Stúdentaheimilinu v. Hringbraut,
Reykjavik, svo og i menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu
6, Reykjavik.
Menntamálaráðuneytið, 3. júni 1976.