Vísir - 16.09.1976, Qupperneq 10
íslenska skipa-
félagið tilkynnir
Stofnfundur islenska skipafélagsins
verður haldinn i átthagasal Hótel Sögu
föstudaginn 17. spptember kl. 19-20.
Safnað verður hlutafjár loforðum að
upphæð 500 milljónir og greiðir hver
aðili að minnsta kosti 30 þús. kr. inn á
væntanlegt hlutafé innan 5 mán. 700
millj. kr. eru nú þegar fyrir hendi.
Allir sem áhuga hafa eru hvattir til að
mæta á þessum fundi.
Skipið sem væntanlega verður keypt
verður rekið á likum grundvelli og M.S.
Gullfoss og einnig fragtskip þar sem
loforð eru fyrir hendi um nóga flutn-
inga.
íslenska skipafélagið
PASSAMY WDIR
feknar í lifum
tilbúiiar sfrax I
barna ml f lölskyldu
LJ O SMYNDIR
AUSTURSTRÆTI 6 S..
Almennur umræðufundur um
upplýsingaskyldu stjórnvalda
verður haldinn á Hótel Esju laugardaginn
18. september, klukkan 2 eftir hádegi.
Auk frummælandans, Baldurs Möller,
ráðuneytisstjóra, munu ritstjórar dag-
blaðanna og fulltrúi frá Rikisútvarpinu
flytja stuttar ræður.
Frjálsar umræður á eftir.
Allir velkomnir. íslensk Réttarvernd
„KREBS"
Máiningarsprautur eru jafn handhægar og
máhingarpenslar/ en margfalt hraðvirkari og
gefa slétta áferð og möguleika að þekja fleti
sem ekki er hægt að snerta á annan hátt.
Fljótlegt að skipta um iiti.
Fimmtudagur lö. september 1976. VISIR
Við viljum að fólk geti litið inn og rætt málin við okkur yfir kaffibolla, segja þeir Páll og Knútur sem
sjást þarna fjær á myndinni. Ljósmynd VIsis: Loftur
Fólk komi og rœði
málin yfir kaffi"
„Við viljum að fólk komi
hingað og ræði málin við okkur
yfir kaffibolla”, sögðu þeir Páll
Guðjónsson og Knútur Sigmars-
son viðskiptafræðingar sem ný-
lega opnuðu fasteignasöluna
Lækjartorg i Reykjavik. Þeir
sögðust hafa valið hinu nýja
fyrirtæki stað við Lækjartorg,
það er i Hafnarstræti 22, til að
vera miðsvæðis.
„Fólk hefur tekið þvi mjög vel
að geta fengið sér kaffisopa og
ræða við okkur. Sérstaklega á
þetta við um yngra fólk. Enda
höfum við haft mikið að gera.”
Þeir Knútur og Páll sögðust
hafa orðið varir við það að fólk
segði að margir fasteignasalar
væru ekki ábyggilegir. Þeir
væru margir hverjir réttinda-
lausir og hefðu aðeins viöskipa-
og lögfræðinga á bak við sig.
„Við höfum kunnáttu, mennt-
un og getu til að aðstoða fólk við
skattskýrslur og fjármál al-
mennt”, sögðu þeir. „Okkur
virðist að þeirri reynslu sem við
höfum fengið af fasteignasöl-
unni að fólk treysti okkur. Það
er markmiðið og við vonumst til
að sem flestir leggi leið slna til
okkar.” —EKG
Starfsemi norrœnu félaganna
mjög gróskumikil undanfarið
Veruleg gróska hefúr verið i
starfsemi Norræna félagsins á
þessu sumri. Tvær nýja félags-
deildir hafa verið stofnaðar önnur
á Fáskrúðsfirði með Birgi
Stefánsson skólastjóra sem for-
mann en hin á Patreksfirði meö
Sigurð G. Jónsson lyfsala sem
formann. Þá var blásið nýju llfi i
félagsdeildina á Seyðisstfirði og
tók Bjarni Þorsteinsson útsölu-
stjóri þar við formennsku. Þaö
einsdæmi gerðist á Patreksfirði
að næstum 10% ibúa staðarins
sátu stofnfundinn og gerðust fé-
lagar i deildinni en þaö mun
algert Norðurlandamet.
Þá undirbjó skrifstofa félagsins
dvöl 14 islendingar sem dvöldust
sem gestir Norræna félagsins i
Norrbotten i Sviþjoð við sænsku-
nám I Framnaslýðháskóla og við
kynnis ferðir um norður Sviþjóð
og vlðar. Einnig sá skrifstofan
um undirbúning fyrir ferð 17 is-
lenskra kennara er boðnir voru
til náms- og kynnisdvalar i Dan-
mörku I þrjár vikur.
Auk þessa hafa 5 islendingar
sótt námskeið og ráðsteftiur i' Svi-
þjóð á vegum félagsins með styrk
frá framlagi sænska rikisins til Is-
lensk-sænskrar menningarstarf-
semi, en sænska og islenska
norræna félagið sjá um úthlutun
þessa framlags.
A næstunni sækja svo 3 Islend-
ingar ráðstefnur i Finnlandi og
flytja þar erindi um islensk mál-
efni.
Framkvæmdastjórafundur
norrænu félaganna var hér i
Reykjavik i mai ogformanna- og
framkvæmdastjórafundur i' Fær-
eyjum i júli. Það var mikil og
ánægjuleg reynsla að heim-
sækja færeyinga eins og fjöl-
margir Islendingar þekkja. Þó
hafa Færeyjaferðir Norræna
félagsins ekki verið eins vel
sóttar og vonir stóðu til, en þeir
sem fóru eru mjög ánægðir með
dvölina á eyjunum og alla fyrir-
greiðslu þar, og þeir sem tóku á
móti Islensku gestunum eru
einnig mjög ánægðir með þá
sem komu.
Samskipti islendinga og færey-
inga aukast stöðugt. I sumar
komst á vinabæjasamband milli
Siglufjarðar og Eiði á Austurey. í
þvi tilefni heimsóttu 24 ibúar á
Eiði Siglufjörð og voru gestir
Norræna félagsins og fulltrúum
frá stjórn Norræna félagsins á
Ólafsfirði.
40 vatta 4 mm. stimpill, afköst 9 Itr. klst.
60 vatta 5 mm. stimpill, afköst 12 Itr. kls.
80 vatta 5 mm. stimpill, afköst 18 Itr. kls.
Þrýstingur við spiss 70 kg. sm
Sveinn Egilsson h/f,
Skeifan 17, Iðngörðum
Fyrsta banka-
stofnun Garða-
bœjar tekur
til starfa
Fyrsta bankastofnun i
Garðabæ tók til starfa fyrir
nokkrum dögum með opnun úti-
bús Búnaðarbankans þar i bæ.
Þrátt fyrir að Garðabær sé einn
af stærri kaupstöðum landsins
hefur þar ekki verið starfrækt
nein bankaþjónusta fram að
þessu en útibúið á einnig að
þjóna Bessastaðahreppi, sem
einnig hefur verið bankalaus.
Útibúið i Garðabæ 17. : :utibú
Búnaöarbanka Islands en auk
þess eru reknar nokkrar af-
greiðslur á fámennum stöðum
landsins.
Ctibústjóri hins nýja útibús er
Svavar Jóhannsson en hann
hefur verið starfsmaður
Búnaðarbankans i 36 ár.
JOH