Vísir - 16.09.1976, Qupperneq 17
VISIR Fimmtudagur 16. september 1976.
Útvarp klukkan 19,35:
Söngvarí, skóld og
leikritahöfundur
Birgir Sigurðsson rithöfundur
svarar i kvöld spurningum
þeirra Arna Þórarinssonar og
Björns Vignis Sigurpálssonar i
þættinum Nasasjón. Skyggnst
veröur i smiðju skáldsins og
rætt um hin ýmsu viðhorf hans
til leikritunar.
Birgir Sigurðsson hóf aö yrkja
ljóð á unglingsaldri eins og all-
flest stórskáld okkar hafa gert.
En honum er fleira til lista lagt.
Hann var og er söngvari góður
og fór til Amsterdam ungur að
árum og stundaöi söngnám.
Hann var búinn aö læra þar i
nokkur ár þegar hann kom heim
aftur, gerðist skólastjóri I
Gnúpverjahreppi I Arnessýslu
og fór aftur að yrkja. Þar fékk
hann áhuga á leikritun og þeim
möguleikum sem það form
skáldskapar býður upp á.
Tvö leikrit eftir Birgi hafa
verið sett á svið: Pétur og Rúna,
sem fékk fyrstu verðlaun I sam-
keppni sem Leikfélag Reykja-
vlkur gekkst fyrir á 75 ára af-
mæli sinu, og Selurinn hefur
mannsaugu, einnig flutt I Iðnó.
Unnið er að uppsetningu á þvi
þriðja af fullum krafti þessa
dagana.
Einnig er i þættinum rætt við
Ingimar Erlend Sigurösson
skáld, bróður Birgis um æsku
þeirra og hvaða sameiginlegum
áhrifum þeir hafi orðið fyrir, og
Eyvind Erlendsson sem leik-
stýrt hefur báöum sýningunum I
Iðnó.
—GA.
Aðeins þrír ieikarar leika i útvarpsleikritinu i kvöld, þau Ragnheiöur Steindórsdóttir, Þorsteinn ö.
Stephensen og Helga Bachmann. Leikritið er eftir Marguerite Duras og heitir „Aö loknum miödegis-
blundi”. Gisii Halldórsson stýrir flutningnum. A myndunum eru þau Ragnheiöur Þorsteinn og Helga.
FIMMTUDAGUR
16. september
12.25 Veöurfregnir og fréttir.
Tilkynningar. A frívaktinni.
Margrét Guðmundsdóttir
kynnir óskalög sjómanna.
14.30 Miðdegissagan: „Grænn
varstu dalur” eftir Richard
Llewellyn Ölafur Jóh.
Sigurðsson Islenskaði. Ósk-
ar Halldórsson les (5).
15.00 Miðdegistónleikar
RIAS-Sinfóniuhljómsveitin i
Berlin leikur „Serirami”,
forleik eftir Rossini,
Ference Fricsay stjórnar.
Ferenc Tarjáni og
Ferenc-kammersveitin
leika Hornkonsert I D-dúr
eftir Liszt: Frigyes stjórn-
ar. Filharm oniusvei t
Berlmar leikur Sinfómu i
Es-dúr (K543) eftir Mozart:
Wilhelm Furtwangler
stjórnar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar
(16.15 Veðurfregnir). Tón-
leikar.
16.40 Litli barnatfminn.
Finnborg Scheving hefur
umsjón með höndum.
17.00 Tónleikar.
17.30 Seyðfirskir hernáms-
þættir eftir Hjálmar
VilhjálmssonGeir Christen-
sen les (4).
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 NasasjónÁrni Þórarins-
son og Björn Vignir Sigur-
pálsson ræða við Birgi
Sigurðsson rithöfund.
20.10 Gestir i útvarpssal. Aage
Kvalbein og Harald Bratlie
leika saman á selló og pianó
a. Sellósónata i G-dúr eftir
Sammartini. b. Sellósónata
í d-moll eftir Debussy.
20.30 Leikrit: „Að loknum
miðdegisblundi” eftir
Marguerite Duras. Þýð-
andi: Asthildur Egilson.
Leikstjóri: Gisli Halldórs-
son. Persónur og leikendur:
Stúlkan ... Ragnheiður
Steindórsdóttir, Monsieur
Andesmas .... Þorsteinn ö.
Stephensen, Konan
Helga Bachmann.
21.35 „Úrklippur”, smásaga
eftir Björn Bjarman Höf-
undur les.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Kvöldsag-
an: Ævisaga Sigurðar Ing-
jaldssonar frá Balaskaröi.
Indriði G. Þorsteinsson
rithöfundur les (10).
22.40 Á sumarkvöldi
Guðmundur Jónsson kynnir
tónlist um regn og snjó.
23.35 Fréttir. Dagskrárlok.
Fœreyski rithöfundurinn HEÐIN BRÚ heldur
fyrirlestur:
Det nationale arbejde pd Fœröerne
í Norrœno húsinu í kvöld, 16. sept. kl. 20:30
Verið velkomin
HUSIÐ
Útvarp klukkan 22,
ÞRUMUR OG ELDINGAR!
Guðmundur Jónsson flettir hér einni af fjölmörgum skruddum
rikisútvarpsins. Hann er framkvæmdastjóri útvarpsins og hefur að
mörgu að hyggja i þvi starfi eins og við má búast.
„Það rignir mikið í
þættinum i kvöld”
sagði Guðmundur
Jónsson, sem sér um
tónlistarþáttinn: Á
sumarkvöldi klukkan
22.40 i kvöld. „...Og
snjóar lika. Sannkallað
stórviðri”.
Guðmundur kynnir tónlist um
regn og snjó og kemur viða viö.
Við heyrum lag við Bibliutexta
og gott lag um jafn-veraldlegan
hlut og regnhlif, eftir Guðmund
Guðmundsson. Tónlistin i
þættinum á i rauninni þaö eitt
sameiginlegt að öll er hún á ein-
hvern hátt tengd regni eða snjó-
komu. Fjölmargir höfundar
verða leiknir.
„Stórrigningar eru þó aö
minnsta kosti betri en stór-
þurrkar. Og i snjónum má sjá
demanta. I tunglskini og kyrru
veðri er mikið af demöntum og
gullkornum i snjónum” sagði
Guðmundur og var hinn hress-
asti.
Ef við opnum fyrir útvarpið
klukkan 22.40 i kvöld heyrum
við áreiðanlega nokkur gullkorn
h*ka.
HVEITI OC STRÁSYKUR 50 kg. sekkir r ■ ■ j
u iiugdiicuu verði
NÝMALBIKAÐUR VEGUR HEIM / \ HLAÐ
s f | /|l
Kaupgarðui Smiöjuvegi9 Kópavoc P