Vísir


Vísir - 28.09.1976, Qupperneq 23

Vísir - 28.09.1976, Qupperneq 23
23 D DAGVINNUI4UN EIGA AÐ DUGA TIL LIFSVIDURVÆRIS Kristján Guðmundsson skrifar: • ..Þegar siónvarpsmenn lögðu niður vinnu fyrir rúmri viku upphófust almennt umræður um kaup og kjör manna og raddir hinna láglaunuðu urðu hærri en oft áður. Flestir rikisstarfsmenn eru hundóánægðir með launin og benda á að þau nægi ekkr til aö framfleyta visitölufamiliunni, hvað þá stærri familium. tslendingar hafa gjarnan miðað laun sin við það hversu mikla yfirvinnu þeir geta fengiö og oft gapa menn þegar þeir frétta að náunginn sé með tvær eða þrjár milljónir i árstekjur. Þeir sem eru mest undrandi á þessu gleyma þeim þætti sem skapar allar þessar tekjur (sem i raun eru hreint ekki svo háar). Það er vegna aukavinnunnar, sem menn hafa svona há laun. Þeir vinna myrkranna á milli, 12-16 tima á dag, auk þess sem sumir standa jafnframti þeim vafasömu fram- kvæmdum að koma upp yfir sig ibúð, sem kallar á enn meiri vinnu. Ungt fólk, sem nýlega hef- ur stofnað heimili neyðist hrein- lega til þess að kaupa sér eða byggja húsnæði, þvi mórallinn i þessu geðsjúka þjóðfélagi er á þá lund, að enginn sé maður með mönnum nema hann eigi hús. Og það eru einungis kjánarnir, sem kaupa sér bil, eöa leyfa sér nokk- urn skapaðan hlut, áður en þeir eignast húsnæði. Það aö byggja sér húsnæði er ' allt annað en gamanmál, þvi ótrúlega miklum peningum þarf að hrófla saman á skömmum tima. Til þess að sanka að sér þessum peningum þurfa bæði hjónin að vinna eins og þrælar og allt.heimilislif situr á hakanum. Börnin alast upp hjá ömmum og öfum, sem raunverulega hafa fyrir löngu fengið nóg af þvi að ala upp börn. Löngu seinna rennur sá dagur upp að tekist hefur að lifa af versta timabiliö. En þá veröur til nýtt timabil, sem er engu betra, þ.e. að borga skattana af öllum tekjum fyrri ára, og venja sig við að eiga einhverja stund fyrir sjálfan sig. Að eiga stund fyrir sjálfan sig, er erfiö list fyrir þann, sem unniö hefur mikið. Raunverulega er ekkert við að vera, þvi öll tómstundaiöja er gleymd og mönnum finnst þeir vera að svikjast um, af þvi að þeir ráöa þvi sjálfir, hvað þeir gera, en þurfa ekki aö hlaupa á eftir duttlungum einhvers yfirmanns, eða hafa áhyggjur af hinum aðskiljanlegu málum. Megin mistök allrar launabar- áttu á Islandi er sú að verkalýðs- félögin heimta það að menn geti fengið að vinna svo og svo mikla aukavinnu, fengið einhverja til- tekna hækkun á aukavinnulaun, orlof af yfirvinnu og þess háttar. En það er eins og það gleymist, að laun fyrir dagvinnu eiga aö duga til lifsframfæris og einnig einhverjum lystisemdum. Annars er tómt mál að tala um 40 stunda vinnuviku, velferðarþjóðfélag og þess háttar bull. Island er hreint ekkert velferðarþjóðfélag, þvi til þess að geta lifað i þvi, án þess að þurfa að velta hverjum, nær verðlaus- um eyri fyrir sér, verður hver Svar til Einars einhleypa frá einni kuivisri.... Mig langar til að svara þér, Einar, vegna greinar þinnar um að ekki séu birtar nægilega oft myndir af léttklæddu kvenfólki i Visi. Ég vil benda þér á að við verðum að reyna að vera við sjálf. Viö erum islendingar og komumst ekki langt með þvi aö vera að hugsa um hvað aðrir eru að gera hálfberir þar sem heitt er, en hér er kalt. Auk þess hlýnar manni ekki mest á þvi að horfa á bert hold. Astin kemur innan úr innstu leynum hjartans, og skin ekki sist þegar kaldast er. Þá skin hún i gegnum myrkrið og kuld- ann. Sumar mannlegar verur elska svo heitt, aö þær geta bók- staflega lýst upp með návist sinni þótt þær séu dúöaöar og þeim Iskalt. Ef manneskjan verkar ekki þannig á þig þá er hún ekki þess virði að þú sért að horfa á myndina af henni hálfnaktri. Loks ætla ég að segja þetta viö þig. Ég er lika einhleyp og finnst lika oft kalt og dimmt eins og þér. En ég sit ekki og horfi á myndir af hinum og þessum' hálfberum karlmönnum. Ég trúi ekki að ef viö myndum hitt- ast að okkur myndi ekki hlýna um hjartarætur jafnvel þótt i ut- anyfirfötunum værum. einstaklingur aö vinna og vinna. einstaklingurinn er saddur lif- unnið þrjú ævistörf i raunveru- Og hvers virði er lifið ef daga á miðjum aldri og hefur þá legum velferöarþjóðfélögum?. ÁFRAM HAUKUR OG KRISTJÁN! Látið enga stórkarla í landi stöðva ykkur á miðri leið Guðmundur G. Guðmundsson hringdi: Ég vil gjarnan koma á fram- færi þakklæti minu til þeirra Kristjáns Péturssonar og Hauks Guömundssonar, og óska þeim og yfirmönnum þeirra — a.m.k. þeim sem meö þeim standa I bar- áttunni — alls hins besta i viður- eign þeirra viö smyglara og ann- að áþekkt fólk. Það er vitað mál, og þaö þekki ég vel til sjálfur, aö þaö er búið að stunda það i mörg ár að smygla vini, vindlingum og ööru i gámum til landsins. Gámur þessi hefur oftast veriö leigður af einhverjum aðila á skipinu, sem flytur varninginn, og jafnan nefndur tólfti gámur- inn. Er það venjulega siðasti gámurinn sem kemur um borö og fer i land. Það eru ekki alltaf menn á skip- inu sem þarna eiga hlut að máli. Oft er þetta fyrirtæki fjármagnað af mönnum i landi, og sjá þeir sið- an um aö greiöa þaö sem með þarf og sjá um að réttir aðilar komi nálægt þessum gámi. Ég mæli meö þvi að þið haldiö áfram að rannsaka þessi mál, og látið ekki einhverja stórkarla stöðva ykkur og koma i veg fyrir rannsókn. Ekki væri heldur úr vegi, að þið rannsökuöuö frekar töskur þær sem flestir sjómenn i millilandasiglingum þekkja undir nafninu brytatöskur. Ég veit aö ég mæli fyrir munn margra þegar ég segi: — Afram með rannsóknina, Kristján og Haukur og látið enga stöðva ykk- ur á miðri leið.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.