Vísir - 20.12.1976, Side 9
VÍSIH
Mánudagur 20. desember 1976
Spegiun Eikar
og plata Axels
Einarssonar,
Acting Like a Fool,
komnar út
Hljómsveitin Eik hefur nú loks-
ins gefið út sina fyrstu breiðskifu
sen nefnist „Speglun”. Eik gefur
plötuna út undir eigin nafni, en
Eik skipa á þessari plötu Harald-
ur Þorsteinsson, Þorsteinn
Magnússon, Lárus Grfmsson,
Ólafur Kolbeins og Sigurður Sig-
urðsson.
Axel Einarsson, sem hefur ver-
ið nokkurs konar umboðsmaður
Eikarinnar gefur llka út breið-
sklfu nú fyrir jólin sem ber heitið
„Acting Like A Fool”. A plötunni
leika þeir Haraldur, Lárus og
Ólafur úr Eikinni auk Ólafs
Garðarssonar (trommur) en Lár-
us og Þorsteinn úr Eikinni syngja
bakraddir á plötunni ásamt Axel.
Betur verður fjallað um báðar
þessar plötur von bráðar ef aug-
lýsingar útrýma ekki Tónhorn-
inu.
HIA
Götuskór
Spil-
verksins
komnir
GÖTUSKÓR, langþráð þriðja
plata Spilverks þjóðanna, er nú
komin út hjá Steinum hf. Plata
þessi er samfellt tónverk, sem
samanstendur af alls 15 iögum.
Þau heita: Dögun I laufinu,
Fyrstur á fætur, Verkarinn, í
skóm af Wennerbóm, Skáldið,
Gömulkona i bakhúsinu, Veður-
glöggur. Við sendum heim
(cif), Styttur bæjarins, Orðin
tóm, t klikunni, Hún og verkar-
inn, Blóð af blóði, Hvað á barnið
að heita? (Boðberi lifsins) og Að
hjálpast að. Eins og ráða má af
heitum laganna og plötunnar er
á henni fylgst með bæjarllfinu
, ganga sinn gang. Orð og tónar
eru eftir Spilverkið, — Bjólu,
Valla, Diddú og Egil —, nema
hvað Ijóðið „Að hjálpast að” er
eftir Þorstein skáld Valdimars-
son.
Götuskór voru teknir upp i
Hljóðrita i Hafnarfirði. Upp-
tökumeistari var Tony Cook, en
aðstoðarmaður Garðar Hansen.
Nýstárlegt og skemmtilegt
umslag plötunnar er eftir Þor-
björgu Höskuldsdóttur, mynd-
listarmann. Aöstoðarfólk við
hljóðfæraleik voru Sigurður
Karlsson, Gunnar Egilsson,
Guðný Guðmundsdóttir, Nina
Flyer, Gunnar Ormslev, Lárus
Grimsson, Þórður Arnason,
Helgi Guðmundsson, og Tony
Cook (varablástur).
— AÞ
sinu,
oggeturfcert áganámum veglegan
liappdrcettmmnmg
_ Dregið 10 sinnum um 598 vinninga
að upphceð 20milljónirkróna, ífyrsta skipti 10. febrúar njc
Happdrcettisskuldabréfm em tií söíu nú. Þaufást í öllum
bönkum og sparisjóðum og kosta 2000 krónur.
\) SEÐLABANKI ISLANDS