Vísir - 21.12.1976, Blaðsíða 3

Vísir - 21.12.1976, Blaðsíða 3
3 VISIR Þriðjudagur 21. desember 1976 HAGSMUNASAMTÖKIN UM SKATTALAGAFRUMVARPIÐ: Taka ekki afstöðu fyrr en í janóar Samtök vinnumarkaðarins munu ekki taka afstöðu til skattalagafrumvarps rikis- stjórnarinnar fyrr en eftir ára- mót. Rikisstjórnin lagði skattalaga- frumvarp sitt fram á Alþingi á laugardaginn, en afgreiðsla þess biður funda þingsins eftir jólaleyfi. Gert er ráð fyrir, aö ákvæði nýrra skattalaga komi I heild til framkvæmda árið 1978, en að vissar breytingar á skattalögunum verði þó látnar taka gildi fyrir árið 1977. Frumvarpið, sem fjallar bæði um tekjuskatt og eignaskatt, gerir ráð fyrir margvíslegum breytingum á því fyrirkomu- lagi, sem nú rikir. M.a. er gert ráð fyrir sérsköttun hjóna, og að afsláttarkerfi komi i stað þess frádráttarkerfis, sem nú gildir. Þá er einnig um aö ræða ýmsar breytingar á þeim ákvæöum skattalaga, sem snúa að atvinnurekendum og fyrirtækj- um, einkum reglum um fyrningar og söluhagnað. Jón H. Bergs, formaður Vinnuveitendasambands Islands, sagði i viötali við Visi, að hann hefði ekki enn haft tima til að kynna sér frumvarpiö. Hins vegar myndi nefnd á veg- um Vinnuveitendasambandsins fjalla um það, og mætti búast við aðafstaða sambandsins lægi fyrirþegar Alþingi kæmi samán að nýju eftir áramótin. Ólafur Hannibalsson, skrif- stofustjóri Alþýðusambands Islands, tjáði Visi, að þetta frumvarp yrði væntanlega ekki tekið til rækilegrar meðferðar innan Alþýðusambandsins fyrr en eftir áramót. —ESJ. Kaupfélag Vestmannaeyja hefur komið fyrir þessari ljósum prýddu jólabjöllu á miili verslana sinna við Bárugötu og hijóma trá 'nenni jóla- lög. t Barnaskóianum i Vestmannaeyjum hafa nemendur undanfarna daga unnið að þvi að koma fyrir alis kyns jólaskreytingum og eru þessar myndir meðal þess sem getur að lita á einni hlið skólahússins. Jólasvipur ó Eyjum Jólasvipurinn hefur verið að færast yfir Vestmannaeyjar siðustu dagana, eins og aðrar byggðir landsins. Þar hefur ve‘rið sett upp talsvert af skreytingum utan dyra og eyjaskeggjar eru sem óðast að 'komast i jólaskap. Guðmundur Sigfússon, ljósmynd- ari Visis i Vestmannaeyjum sendi okkur þessar myndir sem hann tók i Eyjum um helgina og sýna þær vel jólablæinn á bænum. Varavðllur yrði að miðast við risaþotur Varaflugvöllur fyrir stærstu gerðir af breiðþotum kæmi helst til greina á Egilsstöðum, Húsavik eða Sauðárkróki, segir I nýútkominni skýrslu flugvalla- nefndar. I skýrslunni segir að 95 pró- sent lendinga áætlunarflugvéla i millilandaflugi séu nú á Kefla- vfkurflugvelli, en 5 prósent á Reykjavikurflugvelli. Boeing 727 þotur Flugfélagsins geta notað Reykjavik og Akureyri, sem varavelli, en hins vegar er enginn fullnægjandi varavöllur fyrir DC-8 þotur Loftleiða, hér á landi. Flugvallanefnd telur að ef ráðist verði i byggingu vara- vallar fyrir millilandavélar, verði aö miða hönnun hans við stærstu gerðir af breiðþotum, svo sem Boeing 747. Auk þess sem flugbrautin yröi aö vera nógu löng, breið og burðarmikil, verði að hafa við hana fullkomin blindaðflugs- tæki, snjóruðningstæki, slökkvi- búnað og þar fram eftir götun- um. Auk þess yröi að miða elds- neytisbirgðir við þarfir risavél- anna. — ÓT ÞJÓÐARAUÐUR ÍSLENDINGA: 3,4 milljónir áhvern íbúo Þjóðarauður islendinga var á siðasta ári um 3,4 milljónir króna á hvern ibúa i landinu, eða 17-18 milljónir á hverja fimm manna fjölskyldu. 1 desemberhefti rits Seðla- banka tslands, Hagtalna mán- aðarins, er frá þvi skýrt, að þjóðarauður islendinga hafi á siðasta ári numið 738.573 millj- ónum króna. 1. desember það sama ár var mannfjöldi hér á landi samkvæmt þjóöskrá 219.033. Samkvæmt þessum tölum var þjóðarauöurinn um 3,37 milljón- ir á hvern ibúa, en um 17,85 milljónir á hverja fimm manna fjölskyldu. Mjög verulegur hluti þjóðar- auðs okkar, eða tæplega 216 þúsund er ibúðarhúsnæði. —ESJ GOTT HEILSUFAR REYKJAVIK Kvef hrjáði borgarbúa meö minna móti i lok siðasta mán- aðar. A hálfum mánuði fækk- aði skráðum kvefsóttartilfell- um úr 114 i 62. Jafnframt dró úr öðru kvefi, s.s. iörakvefi og lungnakvefi. Hins vegar fjölg- aði virustilfellum siðustu vik- una i nóvember úr 3 i 15. —SJ RÓLEGT VIÐ KÖTLU ,,Það er enn rólegt viö Kötlu og hefur verið siöan tiunda þessa mánaðar,” sagði Páll Einarsson, jarðeðlisfræð- ingur, við Vísi i gær. „En það er enn skjálftavirkni á svæð- inu.” „Það hafa nú verið þarna skjálftar siðan i. ágúst og i alvöru frá þvi i september. Þetta hefur gengið á meö hrin- um og sú siðasta kom að kvöldi niunda desember. Sið- an hefur verið hægt um.” —OT.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.