Vísir - 21.12.1976, Blaðsíða 9
Dómur í skattamálinu:
Ef bílinn er auglýstur
fœst hann hjá okkur
SIARUT5.....
A horni Borgartúns og
Néatúns - Sími 28255-2 línur
vtsm
Þriöjudagur 21. desember 1976
Fegrunarfrœðingur
Vel menntaður fegrunarsérfræðingur ósk-
ar eftir vel launuðu starfi, sem fyrst.
Uppl. i sima 40769.
LOKAÐ
vegna vaxtareiknings gamlársdag
og 3. janúar 1977.
Sparisjóður Reykjavíkur
og nágrennis
Kveikt í áramótabrennu
1 nógu var aö snúast hjá
slökkviliðinu i Reykjavik um
siöustu helgi, þó að ekki væri
um neitt alvarlegt aö ræöa.
í morgun voru tvö útköll, ann-
að klukkan 6 en hitt rétt fyrir
klukkan átta. I fyrra tilvikinu
var um aö ræöa reyk frá tau-
þurrkara i húsi viö Þverbrekku.
1 því siðara var reykur i skrif-
stofuhúsnæöi við Sundaborg.
Hann var frá rafmagni.
Á laugardag rétt eftir klukkan
hálf tvö fór slökkviliöiö aö húsi
viö Hávallagötu þar sem var
reykur frá rafmagnsvirum.
Aöfaranóttsunnudags kveiktu
einhverjir i efni til áramóta-
brennu sem krakkar höföu safn-
að viö Kóngsbrekku. Fór
slökkviliöiö á staöinn til þess aö
kæfa eldinn, þar sem mikiö
neistaflug var frá honum.
—EA
Skartgripa-
skrín
Gott úrval.
Póstsendi
Magnús E. Baldvinsson,
Laugavegi 8< simi 22804.
Sex milljónir í sekt og
4 mánaða varðhald
„Refsing ákæröa Sigurbjörns
var ákveðin varöhald f 4 mánuöi
og sekt i rfkissjóð, kr.
6.000.000.00, og komi varöhald i
10 mánuöi i staö sektarinnar
veröi hún eigi greidd innan f jög-
urra vikna.
Refsing ákærða Magnúsar
var ákveðin varöhald i 40 daga,
skilorösbundið, og sekt i rikis-
sjóö kr. 90.000.00, og komi varö-
hald i 25 daga i hennar stað
verði hún eigi greidd innan fjög-
urra vikna”.
Svo segir meðal annars i dómi
sakadóms Reykjavikur sem
kveðinn var upp i gærdag yfir
þeim Sigurbirni Eirikssyni og
Magnúsi Leopoldssyni.
Frétt sakadóms varöandi
þetta mál fer hér á eftir i heild.
Það skal tekið fram, að frestur
til að taka ákvörðun um áfrýjun
til Hæstaréttar er hálfur mán-
uður.
Kveöinn hefur verið upp i
sakadómi Reykjavikur dómur i
máli þvi, er ákæruvaldið höfö-
aði hinn 27. febrúar s.l. á hendur
Sigurbirni Eirikssyni, veitinga-
manna, Stóra-Hofi, Rangárvöll-
um og Magnúsi Leopoldssyni,
framkvæmdastjóra, Lundar-
brekku 10, Kópavogi, vegna
ætlaðra skattsvika og bókhalds-
brota við rekstur veitingahúss-
ins Glaumbæjar og veitinga-
hússins að Lækjarteigi 2.
I ákæru var hinum ákæröu
báðum gefið að sök að hafa á
timabilinu 1. janúar 1970 til 1.
október 1972 dregið undan sölu-
skatt samtals að fjárhæð kr.
3.484.694.
Þá var ákærða Sigurbirni gef-
iðað sök að hafa vanrækt skil til
skattstjóra á lögboðnum skýrsl-
um (launaframtölum) um
starfslaun i veitingahúsunum
árin 1970 og 1971 þar með talin
laun framreiðslumanna og
námu þessi laun samtals kr.
29.598.605 skv. ákærunni.
Ennfremur var ákærða Sigur-
birni gefið að sök að hafa van-
rækt að telja fram til tekju-
skatts og eignarskatts fyrir
skattárin 1970 og 1971 og með
þvi komist hjá greiðslu tekju-
skatts og útsvars samtals að
fjárhæð kr. 4.745.499.
Að lokum var Sigurbjörn
ákærður fyrir brot á ýmsum
ákvæðum bókhaldslaga þar sem
hann m.a. hafði ekki gert upp
efnahag sinn og rekstur á
lögboðnum ársreikningum fyrir
árin 1970 og 1971.
Af hálfu ákæruvaldsins var
þess krafist að ákærðu yrðu
dæmdir til refsingar og til
greiðslu sakarkostnaðar og auk
þess yrðu þeir sviptir leyfum til
vinveitinga og veitingasölu.
I niðurstöðum sinum fjallar
dómurinn fyrst um refsiábyrgð
hinna ákærðu á rekstri framan-
greindra veitingahúsa, en aðild
að rekstrinum var sögð meö
ýmsum hætti á umræddu tima-
bili. A árinu 1970 var rekstur
Glaumbæjar á nafni fyrrver-
andi sambýliskonu ákærða
Sigurbjörns. en á árinu 1971 á
hans nafni.en húsið brann i des-
ember það ár. A árinu 1970 var
veitingahúsið að Lækjarteigi 2
rekið af hlutafélaginu Bæ, svo
og árið 1972. Árið 1971 var það
hins vegar rekiö á nafni ákærða
Sigurbjörns.
Dómurinn taldi að aðild og
þátttaka ákærða Sigurbjörns i
rekstrinum hafi allan umrædd-
an tima verið með þeim hætti aö
full refsiábyrgð yrði á hann
lögð. Breytingar á rekstraraðild
beri keim af þvi að þær hafi ver-
ið til málamynda og verði bein-
linis að lita svo á um timabil þaö
er sambýliskona hans rak
Glaumbæ.Að þvi er varðaði
timabil þau er Bær h.f. var
rekstraraðili var það talið skera
ótvirætt úr um refsiábyrgö
ákærða Sigurbjörns að hann
var formaður stjórnar og fram-
kvæmdastjóri þess félags.
Varðandi ákærða Magnús
Leopoldsson taldi dómurinn
ekki unnt að leggja á hann refsi-
ábyrgð á þeim tima er rekstur-
inn var á nafni ákærða Sigur-
björns eða sambýliskonu hans.
Hins vegar var hann talinn
ábyrgur vegna söluskattsskila á
þeim tima er Bær h.f. var aðili
að rekstrinum þar sem hann
var i varastj. félagsins og
prókúruhafi auk þess sem hann
var virkur þátttakandi i daglegu
starfi og sá að verulegu leyti um
gerð söluskattsskýrslna á þess-
um tima.
Niðurstöður dómsins um
einstaka liði ákærunnar urðu
þessar:
Talið var sannað aö undan-
skot söluskatts á öllu timabilinu
hefði numið eigi lægri fjárhæð
en kr. 2.939.290.00. Var ákærði
Sigurbjörn talinn ábyrgur fyrir
allri þeirri fjárhæð en ákærði
Magnús fyrir kr. 590.129.00.
Töldust þeir hér hafa gerst brot-
legir við 26. gr. laga nr. 10, 1960
sem i gildi voru er brotin voru
framin en ekki talið leyfilegt að
beita ákvæðum laga nr. 10, 1974
sem visað var til ákæru. Refsing
skv. ofangreindri 26. gr. 1. nr.
10, 1960 er sektir allt að kr.
100.000.00 eða varðhald.
Þá taldi dómurinn sannað að
ákærði Sigurbjörn hefði van-
rækt skil til skattstjóra á fram-
tölum um laun starfsfólks,
þ.á.m. framreiðslumanna, sem
næmi eigi lægri fjárhæð en kr.
29.598.605.00 og taldist það
varða við 3. mgr. 48. gr. laga um
tekjuskatt og eignaskatt. Við
ákvörðun refsingar var hins
vegar tekiö tillit til þess að ekk-
ert hefði annað komið fram i
málinu en að viðkomandi
starfsfólk hefði greitt opinber
gjöld af launum þessum og brot
þetta þvi ekki leitt til tjóns fyrir
hið opinbera svo sannaö væri.
Þá var talið sannað að með
þvi að vanrækja að telja fram til
tekjuskatts og eignaskatts fyrir
skattárin 1970 og 1971 hafi
ákærði Sigurbjörn komist hjá
greiðslu tekjuskatts sem næmi
eigi lægri fjárhæð en kr.
929.492.00 og útsvars kr.
762.435.00 eða samtals kr.
1.691.927.00. Var þetta talið
varða við 1. mgr. 48. gr. laga um
tekjuskatt og eignaskatt svo og
við lög um tekjustofna sveitar-
félaga.
Að lokum var ákærði Sigur-
björn fundinn sekur um bók-
haldsbrot þar sem mikil óreiða
hafi verið á öllu bókhaldi hans
og jafnframt hafi ýmsum gögn-
um verið haldið skipulega utan
við færslur. Voru þessibrot talin
varða refsingu skv. 262. gr. al-
mennra hegningarlaga nr. 19,
1940.
Refsing ákærða Sigurbjörns
var ákveðin varðhald i 4 mánuði
og sekt I rikissjóð, kr.
6.000.000.00, og komi varðhald i
10 mánuði i stað sektarinnar
verði hún eigi greidd innan fjög-
urra vikna.
Refsing ákærða Magnúsar
var ákveðin varðhald i 40 daga,
skilorðsbundið, og sekt i rikis-
sjóð kr. 90.000.00, og komi varð-
hald i 25 daga i hennar stað
verði hún eigi greidd innan fjög-
urra vikna.
Varðandi kröfu rikissaksókn-
ara um sviptingu leyfa kom
fram að ákærði Sigurbjörn hafði
ekki lengur nein slik leyfi þar
sem hann hafði ekki endurnýjað
þau er þau runnu út. Kom þvi
ekki til álita leyfissvipting að
þvi er hann varðaði. Ákærði
Magnús fékk vinveitingaleyfi
hinn 26. júni 1974 og veitinga-
húsleyfi hinn 30. júli ’74. Varð
það niðurstaða dómsins að hann
skyldi sviptur þessum leyfum.
Akærðu voru að lokum dæmd-
ir til að greiða málskostnað þar
með talin málsvarnarlaun skip-
aðra verjanda sinna. Akærði
Sigurbjörn skyldi greiða skipuð-
um verjanda sinum, Inga Ingi-
mundarsyni hrl., kr. 200.000.00
og ákærði Magnús skipuðum
verjanda sinum Hafsteini Bald-
vinssyni hrl., kr. 125.000.00.
Annan málskostnað skyldi
ákærði Sigurbjörn greiða að 3/4
hlutum en ákærði Magnús aö 1/4
hluta.
Dóm þennan kváðu upp Har-
aldur Henrýsson, sakadómari,
og meðdómsmennirnir Ragnar
Ólafsson hrl. og Arni Björnsson
hdl., löggiltir endurskoðendur.
£íru2M&meph.é
tffyezzJuzn zznazzzzzzznazz/rzZz*f d -
Pide- /(7y/y‘rrS'?h€jZÝe//cf fzzí
zrufmzzTy/ - fff/zZzzzyj,
J/ffzzzzúzzn zmzzza zz/tyyyz/zyœje-
zfz/ý zzdéýzfzzzzza/zzzzzzzz zzzf
ý/'/f/zaJdezíz/zfzz'.
'fffzfztezzzf zmA zy/7áz/záz'
féfznzzzfe zz/ffrsf/22 /éz/t'.
Borqarplttrt 1
■wianieinraiml 93-7370
kvtfld o% helfarsfmi 93.-7355