Vísir - 21.12.1976, Side 17
17
vísm
Þri&judagur 21. desember 1976
Nemendur ásamt nokkrum heimamönnum og skólastjórum I borðsal Rafmagnsveitunnar að Ar-
múla 31.
RAFMAGNSVEITAN EFNDI
TIL RITGERÐARSAMKEPPNI
Fyrir um ári var gerð tilraun til
að meta það tjón, sem Rafmagns-
veitan veröur árlega fyrir vegna
skemmda á götuljósakerfinu.
Þær tölur voru birtar I fjölmiölum
og vöktu talsverða athygli. Menn
ræddu um, hverjar orsakirnar
væru. Hafin var vlðtæk kynning i
skólunum á kerfi Rafmagnsveit-
unnar og þó sérstaklega gildi
götulýsingar og kostnaði við
hana. Að lokum var efnt til rit-
gerðarsamkeppni með afmörk-
uðu úrlausnarefni fyrir hvern
aldursflokk. 1 hverjum skóla, sem
þátt tók i þessari samkeppni,
voru valdar bestu úrlausnirnar og
þær sendar Rafmagnsveitunni til
frekari meðferðar.
Sérstök dómnefnd valdi bestu
úrlausnina fyrir hvern aldurs-
flokk. Þeir átta nemendur, sem
að dómi nefndarinnar skiluðu
bestum ritgerðum, fengu við upp-
sögn skólanna I vor afhent verð-
laun. Auk þess var höfundum
bestu úrlausnanna úr hverjum
skóla boðið að koma i kynnisferð
til Rafmagnsveitunnar. Þetta
voru um 60 nemendur úr öllum
aldursflokkum skyldunámsstigs-
ins og vfðs vegar að af orkuveitu-
svæðinu, allt ofan af Kjalarnesi
og suður í Garðabæ. Af hálfu
Rafmagnsveitunnar var lagt
kapp á að kynnisferðin gæti orðið
nemendum bæði til fróðleiks og á-
nægju. Farið var i Elliðaárstöð-
ina, aðveitustöðina á Hnoðraholti
og 130 kv aðveitustöðina við
Lækjarteig. Að lokum skoðuðu
gestirnir hina nýju bækistöð Raf-
magnsveitunnar að Ármúla 31 og
þágu þar veitingar.
Börnin sýndu ótrúlega mikinn
áhuga. Margir tóku myndir og
skrifuðu hjá sér upplýsingar. Af
þeim mörgu spurningum, sem
fram komu i skoðunarferðinni,
var augljóst, að skólarnir veita
góða undirstöðufræðslu á raf-
magnssviðinu. Þeir áhugasömu
nemendur, sem komu i þessa
heimsókn, virtust hafa af þvl
mikla ánægju aö kynnast rafveitu
örlitið af eigin raun.
A myndinni eru, talið frá vinstri, þeir nemendur, sem hlutu 1. verðlaun f hverjum aldursflokki. Enn-
fremur Haukur Pálmason, yfirverkfræðingur, og Aðalsteinn Guðjohnsen, rafmagnsstjóri. Sigurður
Sverrir Stephensen, Alftamýrarskóla, Björn Þorsteinsson. Alftamýrarskóla, Elsa Kristin Ellsdóttir
Fellaskóla, Agnar Rúnar Agnarsson, Fossvogsskóla, Sigrún Eysteinsdóttir Hvassaleitisskóla, Sig-
urður Flosason Hllðaskóla og Þráinn Valur Hreggviðsson Garðaskóla. A myndina vantar Brynhildi
Benediktsdóttur, Hvassaleitisskóla.
SAMAX
im
■
hillu.
samstæðan
komin
aftur,
og
veiztu,
hún
er
með
þeim
tmmtilegri.
Ekki bara hillur,
skúffur, skápar,
skrifborð og plötuskápur. Hlutir sem þú raðar eftir
©þínu höfði. Komdu og skoðaðu.
Húsgagnaverslun Reykjavíkur hf.
Braufarholtí 2 - Símar: 1-19-40 S 1-26-91
Tœknifrœðingur
Rafafl svf. óskar eftir að ráða rafmagns-
tæknifræðing (sterkstraum) til starfa við
Kröfluvirkjun. Æskilegt að viðkomandi
hafi rafvirkjamenntun.
Allar nánari uppl. gefnar i sima 28022.
RAFAFL SVF
Ódýrir stereóplötuspilarar
með magnara og
hótölurum.
Verð fró kr. 33.630.-
F. Björnsson radíóverslun
Bergþórugötu 2, simi 23889.
Byggingatœknifrœðingur
Rafmagnsveitur rikisins óska að ráða
byggingatæknifræðing til starfa i Linu-
deild. Laun skv. kjarasamningum rikis-
starfsmanna. Upplýsingar gefur starfs-
mannastjóri.
Rafmagnsveitur rikisins
Laugavegi 116
Reykjavik
„KREBS"
Málningarsprautur eru jafn handhægar og
máhingarpenslar, en margfalt hraðvirkari og
gefa slétta áferð og möguleika að þekja fleti
sem ekki er hægt að snerta á annan hátt.
Fljótlegt aö skipta um liti.
40 vatta 4 mm. stimpill, afköst 9 Itr. klst.
60 vatta 5 mm. stimpill, afköst 12 Itr. kls.
80 vatta 5 mm. stimpill, afköst 18 Itr. kls.
Þrýstingur við spiss 70 kg. sm
Sveinn Egilsson h/f#
Skeifan 17, Iðngörðum
Af hver/'u bara að biðja um „litfilmu"
þegar þú getur fengið AGFA