Vísir - 21.12.1976, Síða 24
vísir
Þriðjudagur 21. desember 1976
o DAGAR TIL
° JÓU
Um 150%
aukning
Alútflutningur hefur aukist
um ca. 150% aö magni til
fyrstu niu mánuði ársins, miö-
að viö sama tíma i fyrra.
Á timabilinu janúar-
september i ár voru flutt út
62.3 tonn af áli, en á sama tima
i fyrra aðeins 25.1 tonn. Fram-
leiðslan var einnig heldur
meiri en i fyrra, eða 48.1 tonn
á móti 44.5 tonnum.
Að verðgildi til nam útflutn-
ingur áls fyrstu niu mánuði
ársins 9495 milljónum króna,
en 2886 milljónum á sama
timabili i fyrra. —ESJ
Skattsvikin:
Sex millj.
í sekt og
varðhald
Dómur sakadóms Reykja-
vikur vegna ákæru saksókn-
ara á hendur Sigurbirni Ei-
rikssyni og Magnúsi Leopolds-
syni var kveðinn upp i gær.
Málið var höfðað á hendur
þeim vegna brota á lögum um
söluskatt, lögum um tekju-
skatt og eignarskatt og bók-
haldslögum. Samkvæmt
ákæru saksóknara námu upp-
hæðir vanskila tæpum 38
milljónum króna, en i Visi i
gær var ranglega sagt aö
skattsvik næmu þessari upp-
hæð.
Sigurbjörn Eiriksson var
dæmdur i sex milljón króna
sektog fjögurra mánaða varð-
hald. Er þetta ein hæsta sekt
sem einstaklingur hefur verið
dæmdur til að greiða hér-
lendis. Magnús var dæmdur i
90 þúsund króna sekt og 40
daga varðhald, skilorðsbund-
ið. — Sjá bls. 9
Annríki hjó
slökkviliði
Slökkviliöið var kallað út á
Reykjavikurflugvöll i nótt á
þriðja timanum af öryggis-
ástæðum. Var erlend flugvél
að lenda og reyndist um ein-
hverja bilun aö ræða I henni.
Lendingin tókst þó vel og kom
ekki til kasta slökkviiiösins.
t gær hafði slökkviliðiö i
nógu að snúast i Reykjavík.
Rétt fyrir klukkan sjö var
komið með bil til slökkviliðs-
ins, en einhver reykur
reyndist i honum. Þá var farið
i hús við Ljósaland þar sem
mikinn reyk lagði frá potti.
Rétt eftir klukkan átta kom
upp eldur i bifreiðaverk-
stæðinu i Blesugróf 27. Kvikn-
aði i út frá logsuöutækjum, en
fljótlega tókst að slökkva eld-
inn. Enn einu sinni var svo
kveikt i áramótakesti, i þetta
sinn við Holtaveg. Var farið á
staðinn tilþess að kæfa eldinn.
— EA
Yfirheyrslur áfram í nýja handtökumáiinu í Keflavík í dag
Handtökumáljð frá í vor
er enn til rannsóknar
Umboösdómarinn I handtöku-
málinu hélt til Keflavikur i
morgun og þá væntanlega til að
yfirheyra Hauk Guðmundsson
rannsóknarlögreglumann.
Steingrimur Gautur sagði i
samtali við Visi i þann mund er
hann var að leggja af stað, að
svo gæti farið að rannsókn iyki i
dag, en varðist að öðru leyti
allra frétta.
Þegar Visir hafði tal af Hauki
Guðmundssyni i morgun kvaðst
hann ekki hafa verið boðaður
fyrir rétt og hann hefði aðeins
haft lausafregnir af gangi
þessarar rannsóknar.
Er Steingrimur Gautur um-
boðsdómari hefur lokið rann-
sókn sinni mun hann senda gögn
málsins til saksóknara sem
tekur ákvörðun um framhald
málsins.
Enn er ekki lokið rannsókn á
kæru sem örn Clausen hæsta-
réttarlögmaður bar fram á þa
Hauk og Kristján Pétursson i
vor vegna meintrar ólöglegrar
handtöku á tveimur varnarliðs-
mönnum. Setudómari var
skipaður i málinu i vor en siðan
hafa litlar fréttir af þvi borist.
Nú hafa málin hins vegar
skipast á þann veg, að örn
Clausen er kærður ásamt Guð-
bjarti Pálssyni fyrir meint fjár-
málamisferli gagnvart verslun
á Akureyri.
I sératkvæði Þórs Vilhjálms-
sonar hæstaréttardómara er
varðhaldsúrskurður Guðbjarts
var tekinn fyrir, kemur meðal
annrs fram, að i kærunni segi að
tilteknir menn, þar á meðal
varnaraðili (Guðbjartur) hafi
lofað að veita versluninni lán að
upphæð 1,5 milljónir, fengið frá
henni vixla að upphæð tvær
milljónir og tryggingabréf, en
ekki greitt lánsféð þá eins og um
var samið og aldrei að fullu.
Hlutur Guðbjartsi þessu máli sé
um margt óljós, en hann hafi
viðurkennt afskipti af málinu.
—SG
Brunaverðir f Reykjavik unnu við það f morgun aðstilla upp tækjum sinum f Austurbæjarbfói. Þar er
hafin sýning á kvikmyndinni Logandi vfti (The Towering Inferno) sem sögð er „langbesta stórslysa-
myndin” sem framleidd hefur verið. Ætla brunaverðir að nota tækifærið og vekja athygli á eldvörn-
um. A bls. 16er fjallaðum þessa mynd. (Ljósm. Loftur)
Guðbjartsmálið:
Yfírheyrslur
gœtv hafíst
fljótlega
,,Það var min ákvörðun að
ekki væri ástæða tíl að kveða
upp annan gæsluvarðhaldsúr-
skurð þegar Hæstiréttur hafði
ómerkt úrskurðinn frá Kefla-
vfk” sagði Eria Jónsdóttir
fulltrúi sakadóms f samtali við
Visi.
Hún sagði ennfremur, að
sakarefni sem nefnt var á sér-
atkvæði Þórs Vilhjálmssonar
væri þegar til rannsóknar hjá
sakadómi. Það var i siðasta
mánuði sem sakadómur fór að
rannsaka viðskipti Guðbjarts
við mann sem nú er fangi á
Litla Hrauni.
Erla sagðist vera með fulla
skrifstofu af skjölum og væri
hún að kynna sér innihald
þeirra. Ekki kvaðst hún geta
fullyrt hvenær yfirheyrslur
hjá Sakadómi Reykjavikur
hæfust i Guðbjartsmálinu, en
einhverjar yfirheyrslur gætu
jafnvel farið fram mjög fljót-
lega.
—SG
Sjálfstœðis-
BANKARAÐSKOSNINGAR
Á ALÞINGI í GÆRKVÖLDI:
menn kyngdu Krístni
Kjörið var i bankaráð ríkis-
bankanna á Alþingi f gærkvöldi.
Mikil óánægja var meðal þing-
manna Sjálfstæðisflokksins með
að þurfa að kjósa Kristin Finn-
bogason i bankaráð Landsbank-
ans, og náðist ekki samstaða um
það efni i þingflokknum fyrr en
framsóknarmenn höfðu hótað
að rjúfa stjórnarsamstarfiö ef
þingmenn Sjálfstæðisflokksins
greiddu ekki atkvæði með
stjórnarlistanum.
Mikil átök hafa átt sér stað
um kosningu bankaráðanna að
þessu sinni, og var þvi ekki hægt
að kjósa það fyrr en i gærkvöldi.
Má segja, að það hafi verið sið-
ustu forvöð, þvi þingslit eru I
dag.
Fengu 4 af 5
bankaráðsmönnum
Agreiningsefnin voru einkum
tvö. Annars vegar hvort stjórn-
arflokkarnir ættu að taka eins
marga bankaráðsmenn og sam-
eiginlegur þingstyrkur þeirra
leyfir, þ.e. fjóra af fimm, eða
hvort endurkjósa ætti fulltrúa
Alþýðuflokksins og Samtakanna
i bankaráðinu.
Framsóknarmenn gerðu
strax kröfu til þess að stjórnar-
flokkarnir tækju fjóra menn,
enda þýddi það, að þeir fengu
einum manni fleira i öllum
bankaráðunum. Þingmenn
Sjálftæðisflokksins áttu erfitt
með að sætta sig við að vikja al-
þýðuflókksmönnum úr banka-
ráðum rikisbankanna, en sættut
að lokum á kröfu framsóknar-
manna.
Vildu ekki Kristin
Hitt ágreiningsefnið var
Kristinn Finbogason, fram-
kvæmdastjóri Timans, sem ver-
ið hefur varaformaður banka-
ráðs Landsbanka Islands.
Ýmsir þingmenn Sjálfstæðis-
flokksins risu mjög öndverðir
gegn þvi, að þurfa að kjósa
Kristin' i bankaráðið á nýjan
leik. Var þvi óljóst, hvort nokk-
ur samstaða yrði innan þing-
flokksins um kosninguna i þetta
bankaráð. Það gat hinsvegar
orðið til þess, að annar fulltrúi
framsóknarmanna félli, þar
sem einungis þrir þingmenn
stjórnarflokkanna þurftu að
kjósa lista stjórnarandstæðinga
til þess að fjórði maðurinn á
lista stjórnarflokkanna (sem
var framsóknarmaður) félli.
Hótuðu stjórnarslitum
Forystumenn Framsóknar-
flokksins heimtuðu að þing-
menn Sjálfstæðisflokksins
stæðu saman um lista stjórnar-
innar hvaða framsóknarmenn,
sem á þeim lista yrðu. Stóðu
átök þessi dögum saman, og
gekk á ýmsu. M.a. hótaði for-
maður Framsóknarflokksins,
sem fer með yfirstjórn banka-
mála, þvi að ef annar framsókn-
armaðurinn yrði felldur úr
bankaráðinu, þá myndi hann
skipa Kristin formann banka-
ráðsins, enda myndi ekkert
breyta þeirri ákvörðun fram-
sóknarmanna að hafa Kristin '
áfram sem sinn aðalmenn i
bankaráðinu.
Það var hins vegar ekki fyrr
en þaö kom skýrt fram hjá for-
manni Framsóknarflokksins, að
rikisstjórnin væri búin
að vera ef ekki yrði orðið við
kröfum framsóknarmanna i
þessu efni, að hinir óánægðu
þingmenn Sjálfstæðisflokksins
gáfu sig og samþykktu að styðja
lista stjórnarinnar. Þetta var
um kl. 18 i gær. Við sjálfa kosn-
inguna hlaut stjórnarlistinn 41
atkvæði, en einn stjórnarþing-
maður sat hjá.
Mannabreytingar
Við bankaráðskosningarnar
urðu ýmsar mannabreytingar.
Sem aðalmenn i bankaráði
Landsbankans voru kjörnir i
fyrsta sinn Árni Vilhjálmsson,
prófessor, (S) og Margeir Jóns-
son, útgerðarmaður (F). Nýir
aðalmenn i bankaráði útvegs-
bankans eru Alexander Stefáns-
son, sveitarstjóri (F), og Jón A.
Jónasson, kauþmaður (F), en i
bankaráði Búnaöarbankans
Ágúst Þorvaldsson, bóndi (F).
Þá er Halldór Ásgrimsson, al-
þingismaður, (F) nýliði i
bankaráði Seðlabankans, en
þeir Pétur Sæmundsen, banka-
stjóri (S), og Jón Skaftason, al-
þingismaður (F), eru nú i fyrsta
sinn kjörnir aðalmenn, þótt þeir
hafi setið um hrið i bankaráðinu
vegna fráfalls aðalmanna á
siðasta kjörtimabili.
—ESJ.