Vísir - 04.12.1958, Síða 9

Vísir - 04.12.1958, Síða 9
JÓLABLAÐ VÍSIS 9 A siglingu á lóninu fyrir framan Breiðabólstað. legu sjónarmiði var því engin fjarstæða þó horft væri eftir strandi, og strönd talin eitt af höppum þess tíma. matarkreppa í Suðursveit, ef ekki gaf á sjó, eins var með eldsneyti til matarsuðu og ljósa. Hljóp jakkalaus. Þriðja strandið, sem ég heyrði talað um, var hið svo kallaða Steinafjörustrand, — en Steina- fjara er sama og Sléttaleitis- fjara, því að á Sléttaleiti var reist hyggð þegar Steinar fóru í eyði, eða með öðrum orðum byggðin frá Steinum er flutt að Sléttaleiti. Hjá eldra fólki í mínu byggðarlagi hafði þetta sfrand fengið þetta sérnafn af því að það var fyrsta strandið sém kom á þessa fjöru. Flem komu þar síðar, eins og frá mun greint. Þetta strand kom á árunum 1888—1892, en hvert árið er ég ekki viss um. Það mun hafa verið síðari hluta góu eða fyrri Iiluta einmánaðar, að strandið kom. Það var mannlaust og fá- tækt að vistum. Daginn, sem strandið kom, var blítt veður, logn og sólskin, en með kvöld- inu gerði austanbyl og hörku- írost. Breiðabólstaðarbændur, þeir synir Steins á Breiðabóls- stað, Þórður, Þórarinn og Björn voru að saga tré þennan dag, sem þeir áttu í félagi, og rekið hafði á fjöru þeirra. Fór sögun- in fram á Gerði. Þórður faðir minn hafði farið frá gegning- um um morguninn jakkalaus í veðurbliðunni, að söguninni. Þegar skútan sigldi fullum seglum í land, hlupu þeir bræð- ur frá söginni á strandstaðinn, sem er 2—3 km. Leiðin var bein i þetta sinn, því að Breiða- bólstaðarlón var á haldi. Faðir minn gaf sér ekki tíma til að fara heim, eru það þó ekki nema kringum 200 metrar, til að sækia sér jakka. Fékk hann þvi lánaðan jakka af Þórarni bróð- ur sínum á Gerðii En mikið Ságðist hann hafa verið búinn að bölva jakkanum fyrir það hvað hann var þröngur og skjóllaus þegar bylurinn skall á;; Það þótti líka dálítill kostur að vera í víou fati yztu klæða, -þegar farið var til strands. Vel gátu strandmennirnir skotið e'inhverju að þeim, sem komu til að bjarga; var þá gott að geta skotið því í skyndi á nokk- uð öruggan stað, svo hrepp- stjórinn sæi það ekki, — en hann var venjulegast á vakki yfiy þar sem björgun á strand- „góssi“ fór fram. Á vorin og seinni part vetrar var helzt „Helvítis fátæktm . . . Á Breiðabólstaðarbæjum var orðið olíulaust að þessu sinni. Þeir bræður fundu brúsa með olíu í, sem tók 50—60 lítra. Halda var fest í hann, þar sem hann byrjaði að mjókka upp. Þegar þeir bræður fóru af strandstaðnum um kvöldið, tóku > eir dunkinn með sér, kom það í hlut Þórðar og Björns að bera hann á milli sín á höld- unni heim. Ekki höfðu þeir bræður lengi farið, þegar þeir voru orðnir villtir; var það bæði af náttmyrkri og snjóbyl. Þegar svo var kornið, ráðguð- ust þeir um, hvað gera skyldi. Dunkinn vildu þeir ekki skilja við sig fyrr en í fulla hnefa. Héldu þeir þvi aftur á af stað, en breyttu nokkuð um stefnu, eftir veðurstöðu. Fyrr en varði brast ísinn undan fótum þeirra og þeir stóðu í nær mittisdjúpu vatni. En af því mennirnir voru knáir, tókst þeim að brjótast upp á ísinn og bjarga dunkn- um upp úr. „Helvítis fátæktin hefur margan ætlað að drepa,“ varð Þórði föður mínum að orði um leið' og hann vatt mestu bleytuna úr vettlingum sínum og hagræddi dunknum á ísnum. Nú þóttust þeir sannfærðir um, að vindstaða hefði breytzt. Lyftu þeir nú.dunknum á milli dn, og héldu í öfuga átt við óað, sem áður var. Sóttu þeir nú nær beint móti veðri, í stað bess sem þeir höfðu áður hald- ð sniðhallt undan því. Þegar ’peir höfðu svona haldið um sinn, sáu þeir grilla í dekkju "ram undan. Við nánari athug- urí sást, að þeir voru að nálgast Hamarsbakka, eru þeir nær miðja vega frá strandinu og heim. Rhiu ’iðn5g!,‘‘. , . Héldu þeir nú upp undir bakkana og tylltu sér niður í skjóli þeirra. Björn þreif til vestisvasa síns, dró þar upp væna tóbaksrullu og mátaði hóf lega frá enda hans að nögl sér og sagði við föður minn um leið og hann stakk endanum í munn hans: „Bíttu við . nögl.“ .■ „Æ, guðlaun,“ hraut út úr föður mínum. Nú tóku þeir það ráð, að skilja brúsann þarna eftir í snjóhengju. Frost var nú tek- hð að vægja og snjókoman að ^erða bleytukenndari. Þegar þeir stóðu upp, voru þeir nokk- uð vissir á stefnunni heim. Út úr miðnætti náðu þeir heilir á húfi húsum. Höfðu þeir þá ver- ið að villast með brúsann á nilli sin í meira en 5 klukku- ima á Breiðabólstaðarlóni. Daginn eftir var dunkurinn sóttur. Lengi var hann við líði á Breiðabólstað eftir að ég mundi. Of stór þótti hann að hafa til að kaupa olíu á til vetrarins. (Þá fóru olíukaup á heimilum víða ekki yfir 20 —25 potta yfir árið). Stóð dunkurinn því lengst af í smiðj- unni á Breiðabólstað á þrepi, sem var þar inn við stafninn. Konur á ráðstefnu. Árið 1901, á byrjuðum engja- slætti, kom næsta strand á Steinafjöru, beint fram af Sléttaleitisbænum. Frá Slétta- leiti fram á fjöruna er tæpur kílómetri. Þetta ár bjó Björn Klemenzson á Sléttuleiti. Ég var átta ára, þegar þetta strand kom, en man þó heldur lítið frá því að segja. Ég fékk ekki að koma á strandið fyrri en uppboðsdaginn. Það man ég, að kvenfólkið á Breiðabólstaðar- bæjum var aðallega við hey- skapinn meðan á björgun stóð úr strandinu, því karlmennirnir voru við það. í minni er mér (sérstaklega) einn þurrkdagur meðan á björgun stóð, og þá sérstaklega fyrir það, að ráð- stefnu var skotið á meðal kvenna á Breiðabólstaðarbæj- um, sem voru í samvinnu við heyskapinn meðan á því stóð að bjargað var ýmsu, sem til- heyrði strandinu, hver þeirra ætti að binda heybaggana og láta þá til klakks. Dæmdist það á Þóreyju Þorláksdóttur, sem þá var á Breiðabólstað, tuttugu og fjögra ára gömul. Líka kom það í hennar hlut, að fara upp á baggann og binda hann. Næst Þóreyju með alla þrekraun við þurrheyið gekk Auðbjörg móðuxsystir mín. Strandmenn- irnir höfðust sumir við á Reyni- völlum hjá Eyjólfi Runólfssyni hreppstjóra, en sumir í tjaldi á fjörunni. Oft lágu leiðir þeirra um milli strandsins og Reyni- valla, (sá vegur er um 5—6 km.). Fóru þeir þá um þjóðveg- Lýsissamlag íslenzkra betnvörpsifa Símar: 17616, 13428. Símnefni: Lýsissamlag, Reykjavík. Stærsta og fullkomnasta kaíclhreinsunarstöð á Isiandi Lýsissamlagið selur lyfsölum, kaupmönnum og kaupfélögum fyrsta flokks kaldhreinsað meðalalýsi, sem er framleitt við hin beztu skilyrði. inn fyrir ofan túnið á Breiðaból- staðarbæjum. Heldur var kven- fólkinu illa við þessar ferðir þeirra og létu sem minnst á sér bera, þegar þeir fóru á milli. Frakkar nálgast. Einn daginn komu nokkrir strandmenn vaðandi upp í Breiðabólstaðarlón, miðju vega milli Breiðabólstaðar og Slétta- leitis, og stefndu upp í Breiða- bólstaðarteiga. Þegar kvenfólk- l , 1 ið sa til ferða þeirra, for að ' koma kurr í liðið. Orð fór af ! því, að útlendingar gætu verið skollinn mátti vita hvað þessir strandmenn tækju fyrir, ef þeir kæmust í kvennahóp. Þennan dag voru konurnar að slá á svokölluðu Innra-Rofi, stutt vestan við Hala-bæinn, þar sem nátthaginn var síðar og nú mat- jurtagarðar. Ráðstefnu var skotið á,.hvað til bragðs skyldi taka, ef þeir frönsku kæmu. Bezt var að halda hópinn, hafa barefli í höndum og ógna þeim frönsku með, ef þeir ætluðu að sýna sig, lagði einhver til. Þetta þótti snjallræði. Önnur benti á sela- keppi, sem voru þar á hverjum j bæ og notaðir voru við sela- djarfteknir til kvenna, og dráp á Hrollaugseyjum vor og

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.